Missti eiginmanninn og þurfti að greiða tekjuskatt af jarðarsölu

„Þetta átti að verða elli­heim­ilið okkar. Þegar Kópa­vogs­búar fóru á Sunnu­hlíð fórum við í Þver­ár­hlíð. En svo veikt­ist mað­ur­inn og þetta fór allt á versta veg,“ segir Anna J. Hall­gríms­dóttir, sem harmar það að vera á hátekju­list­anum fyrir árið 2022. Vera hennar á list­anum kemur ekki til af góðu.

Skógarbændurnir á Hamri
Skóg­ar­bænd­urnir á Hamri Hjónin Anna J. Hall­gríms­dóttir og Jóhannes Bergur Helgason keyptu jörð­ina Hamar á Vest­ur­landi árið 1999. Skógrækt var þeirra yndi, en vegna skóg­rækt­ar­innar á jörð­inni þurfti Anna að greiða tekju­skatt af sölu jarð­ar­innar, eftir að skamm­vinn veik­indi drógu Jóhannes til dauða á síð­asta ári.

Anna J. Hall­gríms­dóttir, fyrr­ver­andi skóg­ar­bóndi, hafði alls tæpar 109 millj­ónir króna í tekjur á síð­asta ári og er því í 295. sæti hátekju­list­ans. „Jæja, já. Ég er bara mjög fúl yfir því,“ svar­aði hún er blaða­maður til­kynnti henni að hún væri á þessum stað á list­anum.

Af hverju?

„Af því að ég missti mann­inn minn og neydd­ist til að selja jörð­ina mína og fékk skatta­á­lagn­ingu fyrir sölu á jörð­inni sem tekju­skatt, en ekki neinn annan skatt. Það varð nú ekki til þess að bæta ofan á erf­ið­leik­ana á heim­il­inu, að fá 50 millj­óna króna skatta­á­lagn­ingu. Ég er bara mjög fúl yfir þessu öllu saman, en fæ ekki roð við reist. Þetta er nú ástæðan fyrir því að ég er þarna inni núna [á list­anum].“

Hvaða jörð áttuð þið hjónin?

„Við áttum Hamar í Þver­ár­hlíð.“ 

Voruð þið í skóg­rækt þar?

„Já, einmitt. Þetta átti …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár