Hlutur olíufélaganna í hverjum seldum bensínlítra undir 50 krónur í fyrsta sinn á árinu

Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­lítra stendur nán­ast í stað milli mán­aða. Líklegt inn­kaupa­verð hans hækkar hins vegar um tíu pró­sent, sem er í takti við þróun á heims­mark­aði. Að óbreyttu má vænta hækk­unar á því verði sem neyt­endur þurfa að greiða.

Hlutur olíufélaganna í hverjum seldum bensínlítra undir 50 krónur í fyrsta sinn á árinu
Bens­ín­stöð Þrátt fyrir að þeim sem keyra um á raf­bílum fjölgi hratt þá er langstærsti hluti íslenska bíla­flot­ans enn knú­inn áfram af jarð­efna­elds­neyti. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hlutur olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum bens­ín­lítra var 49,92 krónur um miðjan þennan mánuð. Það er í fyrsta sinn á þessu ári sem það hefur farið undir 50 krónur. Hlutur þeirra í hverjum seldum lítra náði sögu­legum lág­punkti í byrjun síð­asta sum­ars. Í maí 2022 fór hann niður í 31,24 krónur á lítra. Hálfu ári síðar stóð hann í 71,09 krónum á lítra, sem er hækkun upp á 128 pró­sent. Hlutur olíu­fé­lag­anna nú er 56 pró­sent minni en hann var í des­em­ber í fyrra. 

Þetta kemur fram í nýrri bens­ín­vakt Heim­ild­ar­innar. 

Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­lítra stendur nán­ast í stað milli mán­aða. Það er nú 303,8 krónur sem er tíu aurum meira en það var um miðjan júlí. Verðið hefur ekki verið jafn lágt í krónum talið og það hefur verið síð­ustu tvo mán­uði síðan í apríl í fyrra. Hæst fór það í 341,9 krónur á lítra um mitt síð­asta sumar. Þegar tekið er til­lit til verð­bólgu þá var hæsta verðið þó í apríl 2012, þegar lítr­inn kost­aði 401 krónur á núvirði. 

Við­mið­un­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­tölu hverju sinni til að forð­ast áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.

Hækkanir gætu verið í kortunum

Þessi staða bendir til þess að það megi búast við tölu­verðum verð­hækk­unum á bens­íni í nán­ustu fram­tíð. Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur hækkað um rúm­lega tíu pró­sent á mán­uði. Íslensku olíu­fé­lögin kaupa alla sína olíu af sama aðilum, Equinor í Noregi og eiga vana­lega tölu­vert af birgðum. Líklegt inn­kaupa­verð íslenskra olíu­fé­laga ákvarð­ast einkum af heims­mark­aðs­verði og gengi krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal. Samkvæmt útreikn­ingum Bens­ín­vakt­ar­innar hækk­aði það um tíu pró­sent milli mán­aða. Við næstu inn­kaup ætti inn­kaupa­verðið sam­kvæmt öllu að hækka, og miðað við hvað hlutur olíu­fé­lag­anna hefur dreg­ist saman þá ætti það að leiða til hækk­unar á smá­sölu­verði. 

Hlutur rík­­­­­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­­­­­­­­­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi. Alls er virð­is­auka­hlut­fallið sem leggst á bens­ín­lítr­ann 19,35 pró­sent, almenna bens­ín­gjaldið hækk­aði úr 30,2 krónum í 32,5 krónur um síð­ustu ára­mót og sér­staka bens­ín­gjaldið fór úr 48,7 krónum í 52,45 krónur. Þá hækk­aði kolefn­is­gjaldið úr 10,5 krónum í 11,3 krónur. 

Alls tekur íslenska ríkið nú um 155,10 krónur af hverjum seldum lítra af bens­íni, eða um 51 pró­sent. 

Gögn og aðferðafræði

Hér að ofan er birt nið­ur­staða útreikn­inga og áætl­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila.

  • Við­mið­un­ar­verð er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.

  • Hlutur rík­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­falls­legir. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.

  • Líklegt inn­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veitum. Mismunur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.

  • Hlutur olíu­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­stærð enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­berar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­ar­við­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­upp­lýs­ingar mið­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­færð mán­að­ar­lega í kringum 15. hvers mán­aðar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár