Ferðamannaparadís brennur

Hawaii-eyjar voru ekki vanar að brenna. Nema þá undan gló­andi hrauni eld­fjalla. En núna er öldin önnur, inn­lendur gróður hefur vikið fyrir gras­lendum svo langt sem augað eygir sem á sinn þátt í því að gróð­ur­eld­arnir sem nú loga eru þeir mestu í manna minnum.

Ferðamannaparadís brennur
Í ljósum logum Bygg­ingar brenna í strand­bænum Lahaina á Maui. Mynd: Skjáskot

Það er engu lík­ara en að heimsendir sé í nánd,“ segir íbúi á Maui, næst­stærstu eyju Hawaii, um gróð­ur­eldana sem þar geisa og hafa kostað að minnsta kosti 36 mann­eskjur lífið. Vindur vegna felli­byls sem þó er í tölu­verðri fjar­lægð reynd­ist olía á eldana sem hafa ætt yfir strand­bæ­inn Lahaina, einn vin­sælasta ferða­manna­stað Maui. Hvert hverfið á fætur öðru hefur brunnið til kaldra kola og vest­ur­hluti eyj­unnar nær ein­angr­ast í eld­haf­inu. Stór svæði hafa verið án raf­magns enda vind­hrað­inn náð miklum hæðum.

Þúsundir hafa orðið að yfir­gefa dval­ar­staði sína og hafa sumir brugðið á það ráð að kasta sér í sjó­inn á flótta undan eld­tung­unum. Banda­ríska strand­gæslan þurfti að bjarga fjórtán manns úr sjónum við höfn­ina í borg­inni Lahaina og eig­endur versl­ana við aðal versl­un­ar­göt­una segj­ast hafa horft skelf­ingu lostnir upp á bygg­ingar hverfa inn í eld­hafið. Slökkvi­lið ráða ekki við umfangið og hafa ekki náð í tæka tíð …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Það sorglega er að almenningurinn ætti að hafa vitað síðan 1992 (Rio-ráðstefnan) að svo muni koma, stjórnmálamenn síðan 1980 og vísindamenn voru að ræða þann möguleika síðan 1950.
    Það minnir á auglýsingu innheimtufyrirtækis fyrir nokkrum árum: það er dýrt að gera ekki neitt.
    1
    • HR
      Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
      en það er enn fullt af fólki sem segir að þetta sé bara ímyndun og áróður og eðlilegar sveiflur. Alveg magnað hvað fólk getur kreist aftur augun!
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár