Á lista yfir eftirlýsta glæpamenn

Þegar Rússar réð­ust inn í Úkraínu sat Maria Alyok­hina í varð­haldi í Rúss­landi. Hún tók fljót­lega þá ákvörðun að reyna að koma sér í burtu frá land­inu þegar tæki­færi gæf­ist. Þar í landi er algengt að gagn­rýnið fólk sem hefur áhrif sé fang­elsað.

Pussy Riot
Pussy Riot Þær Alina, Masha, Olga og Diana sáu sig knúnar til að yfir­gefa Rússland hver í sínu lagi á síð­asta ári. Það var væn­leg­asti kost­ur­inn í stöð­unni til þess að geta haldið áfram að gagn­rýna stjórn­völd í Rúss­landi. Mynd: Tara Tjörvadóttir

 „Ég var í varð­haldi [...] þegar ég heyrði það í útvarp­inu sem ég var með í klef­anum mínum að stríð væri hafið,“ segir Maria Alyok­hina í sam­tali við Heim­ild­ina um þá ákvörðun hennar að forða sér í burtu frá Rúss­landi. Þegar úr varð­haldi var komið þurfti hún að ákveða sig hvað hún ætl­aði að gera í fram­hald­inu. Hún vissi það eitt að hún vildi styðja mál­stað Úkraínu og að það yrði erfitt innan landamæra Rúss­lands.

Heim­ildin ræddi við Pussy Riot um miðjan júlí á Seyð­is­firði en þangað voru þær komnar til þess að taka þátt í dag­skrá LungA, Lista­há­tíð ungs fólks á Aust­ur­landi. Raunar voru þær að koma úr löngu flakki um Evrópu sem líkja mætti við tón­leika­ferða­lag þar sem þær sýndu verk sitt Riot Days. Það ætl­uðu þær líka að gera á Seyð­is­firði.

Þær fóru allar, hver í sínu lagi frá Rúss­landi á síð­asta ári. „Fyrir mér var þetta erf­ið­asta ákvörðun sem ég hef tekið og ég get ekki ímyndað mér líf mitt án Rúss­lands. Það er engin spurn­ing að ég mun snúa aftur. Ég veit ekki hvernig staðan verður þegar ég fer til baka en ég mun gera það,“ segir Maria, sem iðu­lega er kölluð Masha, um ákvörðun sína um að yfir­gefa landið. Frá Rúss­landi fór hún yfir til Belarús og þaðan inn í Litháen, en það gekk ekki þrauta­laust fyrir sig.

Átti frekari fangelsisvist yfir höfði sér

Þegar hún lagði af stað frá Rúss­landi vissi Masha að þar biði hennar frek­ari fang­els­is­vist. „Þegar ég fór yfir landa­mæri Belarús og inn í Evr­ópu­sam­bandið [til Litháen] í lok apríl á síð­asta ári þá var stærsta spurn­ingin sem ég stóð frammi fyrir: Hvað á ég að gera? Ég átti yfir höfði mér 24 daga fang­els­is­dóm og nú er ég komin á lista yfir eft­ir­lýsta glæpa­menn. Hvort átti ég að taka út mína refs­ingu og þurfa lík­leg­ast að standa í fleiri dóms­málum í kjöl­farið eða að taka stöðu með Úkraínu? Það var valið sem ég stóð frammi fyrir.“

Til þess að geta fjallað með gagn­rýnum hætti um stjórn­völd í Rúss­landi og stríðið sem þau reka í Úkraínu þurfti hóp­ur­inn að yfir­gefa heima­landið. „Það er þaggað niður í meiri­hluta fólks sem hefur ein­hver alvöru áhrif því það er allt í fang­elsi,“ segir Olga Borisova, annar með­limur Pussy Riot um stöðu þeirra sem gagn­rýnin eru á ástandið.

Hætt að trúa á friðsamleg mótmæli

Þó svo að harka­lega sé tekið á mót­mælum og að fjöldi póli­tískra fanga sé hár, bendir Olga á að enn finn­ist dæmi um bar­áttu gegn stríð­inu.

Til dæmis skæru­að­gerðir á borð við íkveikjur á stöðum þar sem her­skrán­ing fer fram, auk þess sem skemmd­ar­verk hafa verið unnin á lest­ar­stöðvum. 

„Þetta eru því ekki „frið­sam­legir mót­mæl­endur“ en ég er hætt að trúa á frið­sam­leg mót­mæli,“ bætir Olga við.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    Samt finnst mér ég vera alveg stál heppin að hafa fæðst á íslandi þrátt fyrir allt
    1
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Að búa í landi sem er stjórnað af aumingja og mannleysu með lilla tilla komplexa kann ekki góðri lukku að stríða.
    0
  • SME
    Sigurður Már Einarsson skrifaði
    Góð grein
    1
  • Axel Axelsson skrifaði
    áróðurspönk í boði síæey . . .
    -4
    • SSS
      Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
      Þú þreytist ekki á því að hafa sjálfnn þig að algjöru fífli fyrir framan alþjóð.
      4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár