„Við fengum ekki að velja hvar við fæddumst“

Aðgerða­sinn­arnir í Pussy Riot eru í sjálf­skip­aðri útlegð frá Rúss­landi en þar bíður þeirra fátt annað en fang­els­is­vist. Þær segja stöð­una í heima­land­inu hræði­lega og fari versn­andi. „Þetta er mitt heim­ili,“ segir Maria Alyok­hina um Rússland, sem hún býst við að snúa aftur til einn dag­inn. Hópurinn ræðir aktí­vis­mann, aðstæð­urnar heima fyrir sem og Pútín og stríðið í Úkraínu sem þær berj­ast gegn.

Á Seyðisfirði
Á Seyð­is­firði Liðs­konur Pussy Riot tróðu upp á Lista­há­tíð ungs fólks á Aust­ur­landi, LungA um miðjan júlí­mánuð í kjöl­far langs Evr­óput­úrs. Sýning þeirra sem ber heitið Riot Days var sett upp í þrí­gang í félags­heim­il­inu Herðu­breið. Þær Alina, Masha, Olga og Diana töl­uðu vel um land og þjóð en þeirri síð­ast­nefndu fannst heldur kalt og sum­ar­næt­urnar of bjartar. Mynd: Tara Tjörvadóttir

„Við getum farið til baka, en okkur yrði lík­leg­ast kastað beint í fang­elsi,“ segir Diana Burkot, liðs­kona Pussy Riot, spurð að því hvort hóp­ur­inn sé alfar­inn frá Rúss­landi. Það er Diana sem tekur á móti blaða­manni og ljós­mynd­ara í þétt­setnu hús­inu á Seyð­is­firði hvar sveitin dvelur ásamt aðstoð­ar­fólki sínu í kringum LungA, lista­há­tíðar ungs fólks á Aust­ur­landi. Hingað eru þær komnar til að koma boð­skap sínum á fram­færi. Raunar hafa þær verið í sömu erinda­gjörðum á löngu flakki sínu síð­ustu vik­urnar, flakki sem líkja mætti við tón­leika­ferða­lag en þær hafa sýnt verk sitt, Riot Days, víða um Evrópu. Það gerðu þær líka hér á Seyð­is­firði á lista­há­tíð­inni sem fór fram um miðjan júlí.

Á leið­inni úr and­dyr­inu á jarð­hæð­inni og inn eftir hús­inu rek­umst við á mann og annan. Þarna er umboðs­maður sveit­ar­innar, Alex­ander Cheparukin, ásamt fjöl­skyldu sinni og áður en við tyllum okkur í borð­stof­unni á annarri hæð …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár