Framtíð íslenskunnar er björt

Nú á dögum þegar ekki er talað um okkar ylhýra öðru­vísi en með and­varpi, áhyggjum og dóma­dags­spám þá er upp­lífg­andi að tala við Rafael García Perez, þýð­anda og pró­fessor við Háskól­ann Carlos III í Madríd. Hann talar ekki aðeins þá fal­leg­ustu íslensku sem heyra má nú á dögum heldur heyrði und­ir­rit­aður að eftir klukku­stunda spjall varð honum ekki á að missa út úr sér eina ein­ustu slettu.

Framtíð íslenskunnar er björt
Þýðandi „Mér finnst að ljóða­gerð sé mjög sterk á Íslandi, og það gleður mig mikið,“ segir Rafael.

Rafael talar ekki um að fá sendan link heldur biður kurt­eis­lega um að fá krækj­una senda. Á rit­vell­inum verður honum heldur ekki á einsog sjá má á Laxdælu þeirri sem búið er að snara yfir á spænsku. Og hvað er þá hægt að segja um þýð­ing­una á ljóða­bálknum Blóð­hófnir þar sem Gerður Kristný sökkti öngli í vor­stillt vatn og sólin kveikti glit í gárum? Hvernig fór hann að því að koma þessu sóma­sam­lega upp á spænsk­una?

Ja, kannski eru ein­hver brögð í tafli en tíð­inda­maður komst að því að íslensku­fer­ill Rafaels hófst eimitt hjá Sæmundi í Sorbonne en við slíkar aðstæður geta galdrar gerst eins og við Íslend­ingar þekkjum. En kannski er þessi skarpa inn­sýn hans ávöxtur þess dálætis sem hann hefur á tungu vorri, bók­menntum og þjóð. Svo römm er ást hans á Íslandi að hann dýrkar meira að segja skamm­deg­isnótt­ina.

Í íslenskunámi hjá Sæmundi í Sorbonne

…
Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Ég ranka við mér eftir lestur svona greina hversu stutt er í minnimáttarkenndina hjá okkur mörlöndum, að einhver erlendis skuli hafa áhuga á þessu skeri hér norður í ballarhafi. Góð grein og þökk sé fólki eins og Rafael og Jóni Sigurði.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár