Stuðningur við ríkisstjórnina heldur áfram að minnka

Mið­flokk­ur­inn bætir lít­il­lega við sig og Viðreisn dalar. Litlar breyt­ingar eru á fylgi flokka frá síð­ustu könnun en stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina heldur áfram að minnka. Sam­fylk­ingin er enn stærsti flokk­ur­inn.

Stuðningur við ríkisstjórnina heldur áfram að minnka
Missa fylgi Vinstri græn, undir stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, Sjálf­stæð­is­flokkur, sem Bjarni Bene­dikts­son fer fyrir, og Fram­sókn­ar­flokkur Sigurðar Inga Jóhanns­sonar hafa misst tölu­verðan stuðn­ing á síð­ustu miss­erum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sam­fyk­ingin mælist enn stærsti flokk­ur­inn og fylgi Sjálf­stæð­is­flokks mælist enn næst mest, með 21 pró­sent fylgi. Litlar breyt­ingar eru á fylgi flokka frá síð­ustu mæl­ingum en stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina heldur áfram að drag­ast saman. Stuðn­ing­ur­inn mælist 33 pró­sent en fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist meira.

Þetta sýnir nýr Þjóð­ar­púls Gallup sem greint var frá á RÚV í kvöld. 

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist 28,6 pró­sent. Það myndi skila flokknum 21 þing­manni. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks mælist í 21 pró­senti, sem þýddi 15 þing­menn. Píratar njóta stuðn­ings 10,5 pró­sent fólks, sem gæfi flokknum 6 þing­menn. Aðrir flokkar mæl­ast undir 10 pró­sentum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 8,9 pró­sent stuðn­ing og fengi 6 þing­menn; Mið­flokk­ur­inn með 8,5 pró­sent, sem færði flokknum 5 þing­menn, og Viðreisn mælist með 7 pró­sent og fengi 4 þing­menn. Fylgi við Vinstri græn, flokk for­sæt­is­ráð­herra, mælist 6,1 pró­sent og þýddi það að flokk­ur­inn fengi aðeins 3 þing­menn.

Flokkur fólks­ins mælist í könn­un­inni með 5,7 pró­sent fylgi, sem myndi skila 3 þing­mönnum, og Sós­í­alistar mæl­ast með 3,6 pró­sent sem myndi senni­lega ekki duga fyrir til að koma mönnum að.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Var það ekki skítseyðið og foringi stærstu skipulöðu glæpasamtaka Íslands, sjálfstæðisflokksins bjarN1 benediktsson gjaldþrota kóngur sem stóð froðufellandi í púltinu á hinu lágt virta alþingi um að Jóhanna Sig ætti SKO að skila lyklunum vegna þess að í skoðanakönnunum væri hennar ríkisstjórn BARA með 35% stuðning landsmanna.
    Hvar eru lyklarnir siðblindi bjarN1 glæpa hundur ?
    Nú er fínt tækifæri fyrir glæpa hundinn að sína smá manndóm og skila lyklunum
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Rikistjornin er fallin og þarf að hætta, engin þessara 3ja flokka er með aðild að EU
    a sinni stefnuskra. Þetta folk vill halda Dauðahaldi i Kronuna og halda folki með litið að moða ur i GAPASTOKK.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár