Verslanir ekki tekið vörur á úkraínskum sniðgöngulista úr hillum sínum

Á lista yfir fyr­ir­tæki sem úkra­ínsk sam­tök hvetja til snið­göngu á eru fyr­ir­tæki sem fram­leiða vörur sem íslenskir neyt­endur þekkja vel. Krónan og versl­anir Haga hafa ekki hætt sölu á vörum fyr­ir­tækj­anna. Vöru­fram­boð hefur þó breyst í kjöl­far stríðs­ins.

Matvöruverslun
Mat­vöru­verslun Bónus og Krónan eru turn­arnir tveir á íslenskum mat­vöru­mark­aði og hafa á und­an­förnum árum skipst á að hafa mestu mark­aðs­hlut­deild­ina.

Hvorki Krónan né Hagar hafa tekið ákvörðun um að hætta sölu á vörum sem fólk er hvatt til að snið­ganga af úkra­ínskum sam­tökum sem berj­ast gegn spill­ingu. Vöru­fram­boð í versl­unum Haga sem og í Krónunni hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum frá því að Rússar réð­ust inn í Úkraínu en það er fyrst og fremst vegna utan­að­kom­andi áhrifa. Þetta kemur fram í skrif­legum svörum frá fyr­ir­tækj­unum tveimur við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. 

Líkt og Heim­ildin hefur fjallað um þá er Marabou súkkulaði orðið að eins konar tákn­mynd í Svíþjóð fyrir snið­göngu á vörum sem tengdar eru við­skiptaum­svifum í Rúss­landi. Sífellt fleiri Svíar sneiða hjá súkkulað­inu jafn­vel þó að allt Marabou súkkulaði sé fram­leitt í Svíþjóð. Ástæðan er sú að umsvif móð­ur­fyr­ir­tækis Marabou, Mondelēz, eru mikil í Rúss­landi og Mondelēz er þar af leið­andi komið á svartan lista úkra­ínskra yfir­valda sem hvetja til snið­göngu fyr­ir­tæk­is­ins og vörum þess.

Marabou er ekki eina vöru­merkið í eigu Mondelēz sem íslenskir nammigrísir gætu kann­ast við. Prince Polo, Cadbury, Daim, Lu, Milka, Oreo, Ritz og Tobler­one eru allt vöru­merki í eigu stór­fyr­ir­tæk­is­ins.

Fjöldi þekktra vörumerkja undir

Á umræddum lista eru einkum tvö önnur fyr­ir­tæki sem ættu að vera Íslend­ingum vel kunn. Það eru Unilever og Procter & Gamble. Unilever fram­leiðir alls kyns mat­vörur og hrein­lætis- og snyrti­vörur undir vel þekktum vöru­merkjum á borð við Knorr, Ben & Jerry’s, Hell­manns, Magnum og Dove. Vöru­merki undir hatti Procter & Gamble eru sér­stak­lega tengd hrein­læti, bæði heim­ilis og lík­ama. Í þeirra eigu eru vöru­merki á borð við Gillette, Pampers, Ariel, Crest, Always og Tampax. Allt eru þetta vöru­merki sem úkra­ínsku sam­tökin hvetja til snið­göngu á.

Heim­ildin kann­aði stöð­una á við­horfi til snið­göngu hjá Krónunni ann­ars vegar og Högum hins vegar en Hagar reka meðal ann­ars Bónus og Hagkaup. Þessar þrjár versl­anir höfðu rúm­lega 70 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á íslenskum mat­vöru­mark­aði árið 2021, sam­kvæmt grein­ingu Meniga. Meðal þess sem spurt var að var hvort komið hafi til tals að draga úr vöru­fram­boði eða hætta sölu á vörum Mondelēz.

Fylgjast vel með stöðu mála

„Við hjá Krónunni erum með­vituð um umræðu og snið­göngu Svía á Marabou súkkulaði vegna starf­semi móð­ur­fyr­ir­tæk­is­ins Mondelez í Rúss­landi og við fylgj­umst vel með umræð­unni um fram­leið­endur á svörtum lista úkra­ínskra stjórn­valda. Marabou vöru­merkið er ekki í vöru­vali versl­ana okkar en Krónan kaupir aðrar vörur fram­leiddar af Mondelez af heild­söl­unni Innnes. Við höfum ekki tekið ákvörðun um að hætta sölu á vörum frá umræddum fram­leið­anda enn sem komið er en fylgj­umst vel með stöðu mála,“ segir í skrif­legu svari Guðrúnar Aðal­steins­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Krón­unnar, við fyr­ir­spurn­inni.

Það sama er uppi á ten­ingnum varð­andi vörur frá öðrum fyr­ir­tækjum á snið­göngu­list­anum, líkt og Unilever og Procter & Gamble. „Við höfum ekki tekið ákvörðun um að hætta sölu á vörum frá þessum fram­leið­endum en við fylgj­umst vel með þróun þess­arar umræðu,“ skrifar Guðrún.

Heim­ildin spurði einnig að því hvort vöru­fram­boð hafi tekið ein­hverjum breyt­ingum eftir inn­rás Rússa í Úkraínu ákvarð­ana sem teknar voru innan fyr­ir­tæk­is­ins. Fram kemur í svari Guðrúnar að umtals­verð áhrif megi merkja á vöru­úr­vali Krónunar eftir að stríðið hófst, meðal ann­ars vegna keðju­verk­andi áhrifa sem stríðið hefur haft á aðfanga­keðjur heims­ins með til­heyr­andi óróa á hrá­vöru­mörk­uðum. Verð­hækk­anir hafi auk þess verið tíðar á und­an­förnum miss­erum sem Krónan reyni að berj­ast gegn. 

„Við höfum tekið fjöl­margar ákvarð­anir um að hætta með vörur/vöru­merki þar sem við höfum ekki sam­þykkt boð­aða verð­hækkun og valið að vinna með aðrar vörur eða vöru­merki í stað­inn,“ skrifar Guðrún og bætir því við að við­skipta­vinir hafi í auknum mæli valið ódýr­ari kosti í stað þekktra vöru­merkja vegna verð­lags­þró­unar.

Innkaup og vöruframboð breyst töluvert

Líkt og áður segir eru tvær stórar mat­vöru­versl­anir reknar af Högum, Bónus og Hagkaup. Þar hafa vörur sem fram­leiddar eru af fyr­ir­tækj­unum á umræddum snið­göngu­lista ekki verið teknar úr hillum. „Innan veggja Haga fara fram dag­leg sam­töl um hvernig hægt er að tryggja vörur á hag­kvæmu verði í sem hæsta gæða­flokki frá birgjum Haga til við­skipta­vina okkar og einnig við hvaða birgja við verslum,“ segir í skrif­legu svari Elísa­betar Austmann, for­stöðu­manns nýsköp­unar- og mark­aðs­mála hjá Högum.

Ekki hafa verið teknar neinar ákvarð­anir um snið­göngu þeirra var sem hvatt er til snið­göngu á, „en þó er ljóst að inn­kaup og vöru­fram­boð i versl­unum Haga hefur breyst tölu­vert vegna stríðs­ins í Úkraínu,“ ritar Elísabet. Það hafi einkum verið gert til að tryggja hag­kvæmni.

„Að því sögðu erum við sífellt að fylgj­ast með mark­aðnum og umhverf­inu, og munum halda áfram að gera það.“

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Í verslun ber að beita siðblindu ef afkomu kröfur krefjast þess, er það ekki?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár