Súkkulaðið sem Svíar hafa snúið bakinu við

Sænski súkkulaði­fram­leið­and­inn Marabou hefur verið á milli tann­anna á Svíum að und­an­förnu vegna þess að móð­ur­fé­lag þess, stór­fyr­ir­tækið Mondelēz, fram­leiðir umtals­vert af sínum vörum í Rúss­landi. Margir Svíar hafa brugðið á það ráð að snið­ganga súkkulaðið jafn­vel þó það sé og hafi alltaf verið fram­leitt í Svíþjóð.

Súkkulaði
Súkkulaði Umsvif stór­fyr­ir­tæk­is­ins Mondelēz í Rúss­landi hafa bakað dótt­ur­fyr­ir­tæk­inu Marabou umtals­verð vand­ræði í Svíþjóð. Mynd: Shutterstock

IKEA í Svíþjóð, opin­bera lestar­fé­lagið SJ og allir stærstu skemmti­garðar Sví­þjóðar eru á meðal þeirra fyr­ir­tækja og stofn­ana sem hafa ákveðið að hætta að selja eða bjóða upp á vörur sænska súkkulaði­fram­leið­and­ans Marabou. Marabou er meðal þekkt­ustu vöru­merkja Sví­þjóðar en súkkulaði undir þessu vöru­merki hefur verið fram­leitt í rúma öld og alltaf í næsta nágrenni við höf­uð­borg­ina Stokk­hólm. Ástæðan fyrir snið­göng­unni er sú að móð­ur­fyr­ir­tæki Marabou, Mondelēz, starf­rækir enn verk­smiðjur í Rúss­landi og er þar af leið­andi komið á svartan lista úkra­ínskra yfir­valda.

Á vef­svæði sem heldur utan um gagna­grunn fyrir efna­hags­þving­anir í kjöl­far inn­rás Rússa í Úkraínu kennir ýmissa grasa. Gagna­grunn­ur­inn er sá umfangs­mesti yfir fólk og fyr­ir­tæki sem hafa stjórn­mála­leg tengsl við rúss­nesk yfir­völd og er verk­efnið styrkt af utan­rík­is­ráðu­neyti Úkraínu og þar­lendri stofnun sem berst gegn spill­ingu. Þar má finna sér­stakan lista yfir alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki, sem kölluð eru alþjóð­legir styrkt­ar­að­ilar stríðs­ins. Á þeim lista má finna Mondelēz, sem og önnur stór­fyr­ir­tæki í hinum ýmsu geirum, þar á meðal fyr­ir­tæki sem fram­leiða bíla, raf­tæki og neyslu­vörur, verk­taka­fyr­ir­tæki, fyr­ir­tæki í smá­sölu og evr­ópska banka, svo eitt­hvað sé nefnt.

Góðkunningjar íslenskra neytenda á sniðgöngulistanum

Meðal þeirra fyr­ir­tækja sem finna má á list­anum eru nokkur alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki sem fram­leiða vörur undir vöru­merkjum sem eru íslenskum neyt­endum vel kunn. Til að mynda Unilever sem fram­leiðir alls kyns mat­vörur, hrein­læt­is­vörur og snyrti­vörur undir vel þekktum vöru­merkjum á borð við Knorr, Ben & Jerry’s, Hell­manns, Magnum, Dove, og svona mætti lengi telja. Á list­anum er einnig Procter & Gamble en meðal vöru­merkja sem finna má undir þeirra hatti eru Gillette, Pampers og Ariel.

Mondelēz sér­hæfir sig hins vegar í þekktum vöru­merkjum fyrir mat­væli og þá sér­stak­lega sæt­indum. Cadbury, Daim, Lu, Milka, Oreo, Ritz og Tobler­one. Þetta eru allt vöru­merki sem flestir Íslend­ingar kann­ast við og þau eiga það sam­eig­in­legt að vera í eigu Mondelēz.

Súkkulaðið alltaf framleitt í Svíþjóð

Það er þó ekki þar með sagt að vör­urnar sem um ræðir séu fram­leiddar í Rúss­landi. Allt súkkulaði sem fram­leitt er undir merkjum Marabou er til að mynda fram­leitt í Svíþjóð og þannig hefur það verið frá því að fyr­ir­tækið var stofnað. Nú eru verk­smiðjur fyr­ir­tæk­is­ins stað­settar skammt norður af Stokk­hólmi í Upplands Väsby en í upp­hafi var súkkulaðið fram­leitt í Sund­byberg sem er sveit­ar­fé­lag sem liggur alveg við Stokk­hólm og má líkja við úthverfi höf­uð­borg­ar­innar.

Fyr­ir­tækið var stofnað af Norð­mann­inum Johan Throne Holst sem þá var eng­inn aukvisi í súkkulaði­gerð. Skömmu eftir að súkkulaði­verk­smiðjan Freia var sett á lagg­irnar í Ósló keypti hann fyr­ir­tækið. Á tíma Holst sem for­stjóra varð Freia stærsti súkkulaði­fram­leið­andi Noregs.

Þegar komið var að því að færa út kví­arnar til Sví­þjóðar þurfti Holst að finna nýtt nafn á sænska fyr­ir­tækið því nafnið Freia var þegar í notkun. Marabou varð fyrir val­inu, eftir stork­teg­und einni en storkur er ein­kenn­is­tákn norska súkkulað­is­ins og mynd hans er þrykkt í súkkulaðið í Noregi. Freia er í dag eitt af þeim vöru­merkjum sem er í eigu Mondelēz og Norðmenn hafa gripið til þess snið­ganga súkkulaðið á svip­aðan hátt og Svíar snið­ganga Marabou.

Umfangsmikil starfsemi Mondelēz í Rússlandi

Á list­anum yfir þá lög­að­ila sem kall­aðir eru alþjóð­legir styrkt­ar­að­ilar stríðs­ins í Úkraínu má finna upp­lýs­ingar um hvert fyr­ir­tæki fyrir sig. Þar kemur fram að Mondelēz rekur þrjár verk­smiðjur í Rúss­landi í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Mon'delys Rus en í verk­smiðj­unum eru fram­leidd mat­væli af ýmsu tagi fyrir Rúss­lands­markað, til að mynda Milka súkkulaði og Oreo kex. Ekkert fyr­ir­tæki selur meira af súkkulaði og kexi í Rúss­landi en Mondelēz auk þess sem það hefur næst­mesta mark­aðs­hlut­deild þar í landi á mark­aði með tyggigúmmí og kara­mellur.

Í kjöl­far þess að Rússar réð­ust inn í Úkraínu sendi starfs­fólk Mondelēz í Eystra­salts­ríkj­unum erindi til for­stjór­ans Dirk Van de Put þar sem óskað var eftir því að öll við­skipti félags­ins í Rúss­landi yrðu stöðvuð. Hann gaf í kjöl­farið þau svör að ekki yrði ráð­ist í fjár­fest­ingar í Rúss­landi, hvorki í bún­aði né mark­aðs­efni.

Fram kemur á vef­svæði gagna­grunns­ins að árið 2022 hafi rúss­neskt dótt­ur­fé­lag Mondelēz hagn­ast um 339 millj­ónir dala, eða sem sam­svarar tæpum 45 millj­örðum íslenskra króna á gengi dags­ins í dag. Skattar félags­ins sem renna í rúss­neskan rík­is­sjóð hafi því numið að lág­marki 61 milljón dala í fyrra, eða um átta millj­örðum króna.

Hófst í kringum Melodifestivalen

Það var um það leyti sem for­keppni Melodi­festivalen stóð sem hæst fyrr á þessu ári sem sænskir fjöl­miðlar fóru að fjalla um umsvif Mondelēz í Rúss­landi. Tíma­setn­ingin var engin til­viljun en Marabou hefur verið einn af aðal­styrkt­ar­að­ilum Melodi­festivalen um ára­bil en keppnin er for­keppni Svía fyrir Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva. 

Þá fór bolt­inn af stað og hægt og rólega hafa æ fleiri Svíar ákveðið að taka þátt í því að snið­ganga súkkulaðið frá Marabou. Þar að auki fækk­aði útsölu­stöðum súkkulað­is­ins að ein­hverju leyti þegar fyr­ir­tæki og stofn­anir ákváðu að hætta að selja vörur fyr­ir­tæk­is­ins.

Nú fæst ekk­ert Marabou um borð í lestum opin­bera lestar­fé­lags­ins SJ og ekki heldur um borð í flug­vélum SAS. Sænska knatt­spyrnu­sam­bandið hefur gert hlé á aug­lýs­inga­samn­ingi sínum við Marabou og gestir IKEA í Svíþjóð geta ekki náð sér í dísætan orku­skammt í formi Marabou súkkulaðis að lok­inni langri ferð um rang­hala hús­gagna­versl­un­ar­innar.

Þá ákvað borg­ar­stjórn Gauta­borgar um miðjan júní að setja blátt bann við inn­kaupum á vörum frá Mondelēz í þeim opin­beru fyr­ir­tækjum sem eru á for­ræði borg­ar­innar.

Sérfræðingar ekki sammála um áhrifin

Aðdá­endur Marabou hafa getað gengið að súkkulað­inu vísu úti í næsta stór­mark­aði. Í júní ákváðu aftur á móti sífellt fleiri versl­un­ar­stjórar ICA versl­ana vítt og breitt um Svíþjóð, en versl­ana­keðjan er með um þriðj­ungs mark­aðs­hlut­deild á dag­vöru­mark­aði, að taka súkkulaðið úr hillum sínum eða setja upp miða þar sem finna má upp­lýs­ingar um Mondelēz, umsvif þess í Rúss­landi og veru stór­fyr­ir­tæk­is­ins á lista yfir þau fyr­ir­tæki sem kallað er eftir að fólki snið­gangi.

Sér­fræð­ingar eru ekki sam­mála um hvaða áhrif snið­ganga Svía á súkkulað­inu kann að hafa. Í sam­tali við SVT í síð­asta mán­uði sagði Heidi Wold, sér­fræð­ingur í krísu­stjórnun, að það ætti eftir að taka tölu­verðan tíma fyrir Mondelēz að laga þann skaða sem orð­spor fyr­ir­tæk­is­ins hefur orðið fyrir að und­an­förnu. Því lengri tíma sem snið­gangan stæði yfir því meiri áhrif hefði það á vöru­merkið og orð­spor þess. Vöru­merkja­sér­fræð­ing­ur­inn Niklas Turner Olovzon sagði hins vegar í sam­tali við Dagens Nyheter að það væri erfitt fyrir Svía að hafa merkj­an­leg áhrif á stór­fyr­ir­tækið Mondelēz með því að snið­ganga eina teg­und af súkkulaði.

Ekki ákvörðun sem var tekin í Svíþjóð

Í yfir­lýs­ingu sem Martina Flemström, fram­kvæmda­stjóri hins sænska Mondelēz Sverige, sendi frá sér í kjöl­far þess að snið­ganga á vörum Marabou hófst segir að hún hafi skiln­ing á þeim við­brögðum sem ákvörðun Mondelēz International um að halda áfram starf­semi í Rúss­landi kalli fram. Engu að síður sé hún og starfs­fólk Marabou miður sín yfir þeirri nei­kvæðu athygli sem fyr­ir­tækið hafi fengið. 

„Hjá Marabou starfar ekki einn ein­asti starfs­maður sem ekki for­dæmir stríð Rússa gegn Úkraínu og við viljum ekk­ert heitar en að stríðið endi umsvifa­laust,“ segir í yfir­lýs­ingu Flemström.

Hún segir að versl­un­ar­fólk sem ákveði að taka vörur Marabou úr hillum sínum sé í fullum rétti til að gera það. Hún nefnir það þó að þá þurfi að huga að því að það séu mun fleiri vörur en bara súkkulaðið frá Marabou sem ætti að hverfa úr hill­unum.

„Umsvif Mondelēz International í Rúss­landi er ekki ákvörðun sem var tekin í Svíþjóð,“ segir Flemström í yfir­lýs­ingu sinni og bætir því við að Marabou eigi í stöð­ugum sam­skiptum við móð­ur­fé­lagið í Banda­ríkj­unum til þess að upp­lýsa um stöð­una og umræð­una í Svíþjóð. Hún seg­ist vona að kollegar sínir sem eru í svip­aðri stöðu geri slíkt hið sama gagn­vart sínum móð­ur­fé­lögum. „Þá getum við ef til vill í sam­ein­ingu haft áhrif.“

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár