Vilja ferlíkið Bibby í burtu

Hann er stór og hann er ljótur og liggur nú við bryggju í Portland í Dorset-sýslu sem þekkt er fyrir nátt­úru­feg­urð. En það er þó umdeilt hlut­verk prammans Bibby Stockholm sem ekki síst hefur farið fyrir brjóstið á fólki. Um borð vilja stjórn­völd að fólk í leit að vernd, allt að 500 manns í einu, dvelji á meðan unnið er að úrlausn þeirra mála.

Vilja ferlíkið Bibby í burtu
Í slipp Bibby Stockholm fékk and­lits­lyft­ingu áður en honum var siglt til Portland í Dorset-sýslu þar sem hann mun liggja í að minnsta kosti eitt og hálft ár. Mynd: AFP

Lúxuslíf um borð. Með nátt­úru­legri loft­ræst­ingu og þráð­lausu neti býður Bibby Stockholm upp á frá­bæra lausn við verk­efni alls staðar um heim­inn.“

Verk­efnin sem Bibby þessi, prammi með 222 káetum í því sem lík­ist stöflum af gáma­húsum eða fljót­andi blokk í anda gamla sov­éts­ins, hefur helst sinnt síð­ustu þrjá ára­tug­ina eru í allra handa stór­fram­kvæmdum. Hin góða lausn sem aug­lýst er á síðu skipa­fé­lags­ins Bibby Marine felur í sér ódýra gist­ingu fyrir verka­menn.

Lík­ams­rækt­ar­salur. Afþrey­ing­ar­her­bergi. Veit­inga­hús og bar, segir í aug­lýs­ing­unni. Rétt eins og Bibby sé lysti­skip á leið í Kar­ab­íska hafið.

BarinnBúið er að breyta Bibby Stockholm svo engan bar er þar lengur að finna. Barinn var not­aður til að selja lúx­uslífið áður.

En nú er komið að stærsta og umdeildasta verk­efni Bibbys og bar­inn verður ekki opinn á meðan því stendur: …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár