Ákvörðun Kristjáns Þórs talin hefnd vegna lagasetningar Færeyinga

Ákvörðun um að aft­ur­kalla heim­ildir Fær­ey­inga til loðnu­veiða við Ísland árið 2017 var tekin í kjöl­far laga­setn­ingar sem bann­aði erlent eign­ar­hald í fær­eyskum útgerðum. Þar átti Samherji mest undir. Kristján Þór Júl­í­us­son þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra neit­aði því að svo hefði verið en í skýrslu um sam­skipti Íslands og Færeyja er það hins vegar stað­fest.

Ákvörðun Kristjáns Þórs talin hefnd vegna lagasetningar Færeyinga
Neitaði en skýrslan segir annað Kristján Þór neit­aði því að aft­ur­köllun veiði­heim­ild­anna hefði verið vegna nýrrar lög­gjafar Fær­ey­inga en það kemur hins vegar fram í skýrslu um sam­skipti þjóð­anna að svo hafi verið. Mynd: Hlíf Una

Færeyska þingið sam­þykkti um miðjan des­em­ber árið 2017 frum­varp um sjáv­ar­út­vegs­mál sem hafði í för með sér bann við eign­ar­haldi erlendra aðila í fær­eyskri útgerð. Íslensk stjórn­völd höfðu lagst hart á fær­eysk stjórn­völd og beitt miklum þrýst­ingi til að reyna að koma í veg fyrir laga­setn­ing­una, eða í það minnsta koma í veg fyrir að þeim íslensku aðilum sem fyrir voru í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi yrði úthýst. Það er að segja Samherja. Þegar það tókst ekki beitti nýr sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Íslands, Kristján Þór Júl­í­us­son, því hefnd­ar­bragði að aft­ur­kalla heim­ildir fær­eyskra skipa til loðnu­veiða á Íslands­miðum.

Færeysk stjórn­völd boð­uðu á árinu 2017 rót­tækar breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi, breyt­ingar sem meðal ann­ars hefðu haft í för með sér bann við erlendu eign­ar­haldi í útgerð­ar­fyr­ir­tækjum, sem aftur hefðu gert Samherja að selja hlut sinn í fær­eysku stór­út­gerð­inni Fram­herja árið 2023. Eftir mik­inn þrýst­ing, ekki síst frá íslenskum stjórn­völdum var gild­is­töku lag­anna frestað, fyrst til árs­ins 2023 en síðar til árs­ins 2032.

Samþykkt lag­anna, þvert ofan í og þrátt fyrir, mikla and­stöðu íslenskra stjórn­valda virð­ist hafa valdið því að hefnd­ar­hugur hljóp í íslenska stjórn­mála­menn. Í það minnsta til­kynnti Kristján Þór sjáv­ar­út­vegráð­herra 30. des­em­ber 2017, hálfur mán­uði eftir sam­þykkt lag­anna fær­eysku, að hann hygð­ist fella úr gildi heim­ildir fær­eyskra skipa til loðnu­veiða á Íslandi. Loðnu­ver­tíð var þá að hefj­ast. Afleið­ing­arnar yrðu líka tals­verðar fyrir Íslend­inga sem á móti gætu ekki veitt kolmunna í fær­eyskum sjó en þær veiðar færu fram mun síðar á árinu. 

Kristján Þór gaf þá skýr­ingu að Fær­ey­ingar hefðu gert ósann­gjarnar kröfur í samn­inga­við­ræðum þjóð­anna fyrr í sama mán­uði. Fær­ey­ingar komu af fjöllum í við­brögðum sínum og sögðu ekk­ert í við­ræð­unum hafa gefið til­efni til að slíta þeim eða grípa til þess­ara aðgerða. Mánuði síðar settl­að­ist málið og samn­ingar náð­ust.

Ástæðan ekki gefin upp í færeysku útgáfunni

Þó lítið væri rætt um það opin­ber­lega grun­aði marga að Kristján Þór hefði fyrir hönd íslenskra stjórn­valda, gripið til aðgerð­anna í árs­lok 2017 í hefndar- eða mót­mæla­skyni við ákvörðun Fær­ey­inga um að að úthýsa erlendri fjár­fest­ingu úr fær­eyskum útvegi. Þá helst og raunar ein­göngu Samherja, fyr­ir­tæk­inu sem Kristján tengd­ist, haf­andi verið stjórn­ar­for­maður félags­ins til árs­ins 1998. Kristján Þór stóð þó alltaf fast á því að ástæðan væri fyrst og fremst stífni Fær­ey­inga í samn­ingum.

„Þetta breytt­ist í des­em­ber 2017 eftir sam­þykki fisk­veiði­frum­varps­ins“
Úr skýrslu um sam­skipti Íslands og Færeyja.

Það var þó ekki mat utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins íslenska, ef marka má hvaða ástæða var gefin fyrir þessum aðgerðum gegn Fær­ey­ingum, í skýrslu sem kom út árið 2021 undir for­ystu Júlíusar Hafstein sendi­herra, að beiðni utan­rík­is­ráð­herra, um sam­skipti Íslands og Færeyja. Þar er ákvörðun Krist­jáns Þórs um aft­ur­köllun veiði­heim­ilda Fær­ey­inga, sögð við­bragð við laga­setn­ingu Fær­ey­ing­anna:

„Fær­ey­ingar hafa um ára­tuga skeið fengið til­slak­anir frá Íslandi, t.d. varð­andi magn kvót­anna, skipt­ingu teg­unda eða lönd­un­ar­tíma­bil. Þetta breytt­ist í des­em­ber 2017 eftir sam­þykki fisk­veiði­frum­varps­ins, en þá sam­þykkti Alþingi þings­á­lyktun sem lok­aði á loðnu­veiðar Fær­ey­inga á Íslands­miðum 2018 nema sam­komu­lag næð­ist um aðgang íslenskra skipa til kolmunna­veiða í fær­eyskri lög­sögu 2018.“

Skýrslan, Sam­skipti Íslands og Færeyja, var kynnt af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra í sept­em­ber 2021, í íslenskri og fær­eyskri útgáfu. Sú síð­ar­nefnda er ólík þeirri íslensku um eitt. Í henni er ekki minnst á fisk­veiði­frum­varpið fær­eyska sem ástæðu eða und­an­fara ákvörð­unar Íslands um að loka á loðnu­veiðar Fær­ey­inga. Orðin þrjú: „eftir sam­þykkt fisk­veiði­frum­varps­ins“ voru ólíkt öðru í skýrsl­unni, aldrei þýdd. Í það minnsta skil­uðu þau sér ekki í fær­eysku útgáfu skýrsl­unnar.

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Takk Heimildin!
    Halda svo áfram að vinda ofan af þessum lygamörðum ÖLLUM.
    Bæði fyrrum og núverandi ráð-eitthvað og það sama um þingmenn fyrrverandi og núverandi.
    Heimildin ber nafn með rentu.
    4
  • Djísús.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár