„Gjordist Thorgerður heldur óð“
– Sumar í utanríkisþjónustu Samherja

Íslensk stjórn­völd beittu fær­eysk ráðu­neyti miklum þrýst­ingi þegar breyta átti lögum um erlent eign­ar­hald í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi, sem snertu hags­muni eins íslensks fyr­ir­tækis. Þetta sýna gögn sem Heim­ildin fékk afhent úr tveimur fær­eyskum ráðu­neytum og íslensk stjórn­völd vildu ekki að birt­ust almenn­ingi. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, sem fyrir tveimur árum þvertók fyrir að hafa rætt málið við fær­eysk stjórn­völd, gerði það hins vegar og flutti að sögn reiði­lestur yfir fær­eyskum starfs­bróður sínum.

„Gjordist Thorgerður heldur óð“  <br>–  Sumar í utanríkisþjónustu Samherja
Óvenju­leg harka Íslenskir ráð­herrar og emb­ætt­is­menn eyddu drjúgum tíma í að fá Fær­eyr­inga ofan af því að setja lög sem bönn­uðu útlend­ingum að eiga útgerðir með veiði­heim­ildir í Færeyjum. Eitt íslenskt fyr­ir­tæki átti þá hlut í fær­eyskri útgerð. Íslensk stjórn­völd eru sögð hafa lagt til að það félag yrði eitt und­an­þegið lög­unum. Mynd: Hlíf Una

Sam­herj­a­f­rændur og fjöl­skyldur þeirra hafa selt sig út úr fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi. Fær­eyskir með­eig­endur þeirra í útgerð­ar­fé­lag­inu Fram­herja í Fugla­firði keyptu fjórð­ungs­hlut Samherja. Þar með lýkur nærri þriggja ára­tuga þátt­töku Samherja – og um leið Íslend­inga – í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi. Sögu sem hófst árið 1994, þegar Sam­herj­a­f­rænd­urnir þrír tóku höndum saman með fær­eyska útgerð­ar­mann­inum Anfinn Olsen og keyptu togar­ann Akraberg. Við­skipti sem mörk­uðu í raun upp­haf að útrás Samherja erlendis.

Færeysku útgerð­inni óx smám saman fiskur um hrygg, fleiri og stærri skip bætt­ust við flot­ann og starf­semi í landi sömu­leiðis. Fram­herji varð ein stærsta útgerð eyj­anna og hand­hafi stórs hluta veiði­réttar og afla­heim­ilda Fær­ey­inga. Færeyski fjöl­mið­ill­inn Fri­heds­bre­vet sagði frá því á dög­unum að verð­mæti Fram­herja væri nú um 40 millj­arðar króna.

Kynslóðaskipti í Færeyjum

Sú upp­hæð tekur mið af því hvernig nýstofnað eign­ar­halds­fé­lag, …

Kjósa
138
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (11)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Skuli Waldorff skrifaði
    Ég er Skúli Waldorff
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Grófleg afskipti af innanríkismálum Færeyja - að öðru ótöldu.
    1
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Viðreisn er nýfrjálshyggjuflokkur, þ.e. flokkur sem leggur megináherslu á að einkavæða ríkiseignir og minnka umsvif ríkisins og efla taumhald og einræðisvöld stórfyrirtækja yfir almenningi. Formaðurinn er lánaafskriftadrottning líkt og formaður Sjálfstæðisflokksins.
    Hvað þýðir þetta fyrir íslenskt samfélag? Nú Landspítalinn telst m.a. til ríkiseigna og einkavæðingarsinnar munu þannig aldrei leysa þann vanfjármögnunarvanda sem Landspítalinn glímir við vegna einræðis Sjálfstæðisflokksins (annars einkavæðingarflokks) yfir fjármálum þjóðarinnar. Vanfjármögnunarvandinn hefur svo í för með sér takmarkaðan áhuga einkavæðingarflokkanna á að hækka tekjur hjúkrunarfræðinga og að færa tekjurnar upp í samræmi við ábyrgð og álag á stéttina.
    Einkavæðingarflokkarnir eru ekki lausnin á vanda íslensks heilbrigðiskerfis.
    9
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Gott að fá þetta fram. Spurning hvort Viðreisn þurfi ekki að stokka upp í forystunni?
    10
  • Jon Arnfinnsson skrifaði
    Held að það sé engin ástæða láta sér undra þessar gjörðir hennar, hún er uppalin í Sjálfstæðiaflokknum, þó svo hún skiptir um flokk þá er manneskja og hennar eðli alltaf það sama!
    12
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Það sem gerir lygara að lélegum lygara (í tilfelli þorgerðar katrínu), er að muna ekki egin lygar. Nema að hún sé svo forstokkuð ☻g viss í sinni lyga sök að hún teldi sig svo örugg um að engar beinagrindur kæmu út úr lygaskáppnum hennar. Sem henni að óvarðri raungerðist. Þökk sé Heimildinni!
    Ég hef sagt það allar götur síðan að viðreisn var sett á laggirnar.
    Að það flokksskrípi væri ekkert annað en viðhangandi varta á sjálfsæðisflokknum, stærstu skipulögðu glæpasamtökum Íslands.
    10
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Af hverju hættir maður aldrei að verða hissa á yfirganginum, frekjunni og þjónkuninni við auðvaldillð?
    7
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Þorgerður talaði niður réttarfarið í Namibíu þegar vinir hennar voru dregnir fyrir dóm þar. Hún er greinilega í liði með glæpamönnum.
    13
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ef venjulegi Viðreisnar-kjósandinn krefts þess ekki að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hirði pokann sinn, vegna ótrúlegra afskipta af innanríkismálum Færeyinga þá er ekki við góðu að búast frá þeim flokki, sem talar digurbarkalega um almannahagsmuni gegn sérhagsmunum, hvílíkt FALS !! Þorgerður Katrín var og er í fullri vinnu fyrir Samherja-forstjórann, líkt og Guðlaugur Þór og Kristján Þór ásamt fótgönguliðum/skósveinum sínum í ráðuneytum sjávarútvegs og utanríkis.
    14
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Þetta er sannarlega ekki í fyrsta skiptið sem Þorgerður Katrín lýgur.

    Þarf hún kannski að fara í endurmenntun ?

    :-) :-) :-)
    11
    • SIB
      Sigurður I Björnsson skrifaði
      Ég held að það sé góð hugmynd hjá þér að hún þurfi endurmenntun.
      7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár