Samherji selur sig frá Færeyjum

Búið er að ganga frá sölu á hlutum Samherja í fær­eysku útgerð­inni Fram­herja. Á sama tíma eru eig­endur Samherja búnir að kaupa hluti Fær­ey­inga í íslensku útgerð­inni.

Samherji selur sig frá Færeyjum
Til og frá Færeyjum Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja og var lengst af einn stærsti eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Hann leiddi fyr­ir­tækið þegar það hóf sam­starf við fær­eysku útgerð­ina Fram­herja. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Samherji hefur selt allt hlutafé sitt í fær­eysku útgerð­inni Fram­herja. Á sama tíma hafa eig­endur Samherja keypt hlut fær­eyska sam­starfs­fólks síns Blika, sem átt hefur tólf pró­senta hlut í íslenska útgerð­ar­ris­anum. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu á vef Fram­herja. Þar segir að sam­starf fær­eysku eig­end­anna við þá íslensku hafi verið gott og staðið síðan 1994. „Við í Fram­herja viljum þakka Samherja fyrir gott sam­starf,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Útgerð­ar­starf­semin í Færeyjum hefur verið tals­verð á síð­ustu árum. Samkvæmt til­kynn­ing­unni á Fram­herji og gerir út fimm skip; upp­sjáv­ar­skipin Fagra­berg, og Högaberg, frysti­togar­ann Akraberg og línu­skipin Jóvan I og Stapan. Fram­herji er þriðja stærsta útgerðin í Færeyjum. 

Samherji hefur lengi farið með fjórð­ungs­hlut í fær­eysku útgerð­inni, en líkt og á Íslandi eru tak­mörk á hversu stóran eign­ar­hlut erlendir aðilar geta átt í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi. Samstarf Fram­herja og Sam­herja­tengdra félaga hefur á þessum tíma verið náið. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Alltaf og alla tið "Vafningur" flestusem Samherji og þeirra dotturfelög eiga aðild að.
    Það er einkennilegt að þessir menn skulu lata svona þau eiga nog af vinum,nog af peningum
    og hafa styrkt goð malefni,selja fyritækið til barna sinna sem er kapituli fyrir sig.

    En munum eitt við höfum ekki grun um hvað þessi storu fyrirtæki i utgerðinni eiga fyrirtæki
    her a Islandi og um viða veröld við getum ekki einu sinni gert upp fall bankanna 2008 þvilikt og annað rugl.

    ISLANDSBANKI , L.I. BORGUN,KVOTABRASK, EG NENNI EKKI AÐ TELJA ÞETTA RUGL UPP
    Lög er lög og þeim ber að fylgja hvort okkur þyki þau rettlat eða ekki.

    Sumir i þesu landi komast upp með brjota þessi LÖG aftur og aftur komast upp með
    það og við borgum .

    Veðsetjið fiska i annarra manna burum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár