Þorgerður Katrín fór rangt með en þykir það miður

Íslensk stjórn­völd lögð­ust af mik­illi hörku á fær­eysk stjórn­völd árin 2017 og 2018 vegna fyr­ir­hug­aðra breyt­inga í sjáv­ar­út­vegi. Þar á meðal var Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir sem hellti úr skálum reiði sinnar yfir kollega sinn í Færeyjum, Högna Hoydal.

Þorgerður Katrín fór rangt með en þykir það miður
Ráðherra verður „óð“ Þor­gerður Katrín leyndi ekki reiði sinni í sam­tali við hinn fær­eyska starfs­bróður sinn. Mynd: Hlíf Una

„Ég átti í tals­verðum sam­skiptum við Högna Hoydal og ber mikla virð­ingu fyrir honum. En þetta mál ræddum við aldrei,“ sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, í sam­tali við Stundina í apríl fyrir tveimur árum. Þar fór Þor­gerður Katrín hins vegar ekki rétt með.

Tilefnið var umfjöllun fær­eyskra fjöl­miðla um harðar deilur sem urðu árin 2017 og 2018, þegar fær­eysk stjórn­völd boð­uðu rót­tækar breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi. Meðal þess var bann við erlendu eign­ar­haldi í útgerð­ar­fyr­ir­tækjum. Lög sem hefðu gert Samherja að selja sinn hlut í stór­út­gerð­inni Fram­herja árið 2023. Eftir mikla ágjöf hags­muna­að­ila og þrýst­ing erlendis frá, ekki síst frá íslenskum stjórn­völdum, voru fær­eysku lögin sam­þykkt ári síðar en gild­is­töku þeirra frestað, fyrst til árs­ins 2023 en seinna til árs­ins 2032.

Høgni Hoydal, for­maður Þjóð­veld­is­flokks­ins fær­eyska, mælti upp­haf­lega fyrir breyt­ing­unum í maí 2017, þá sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Í við­tölum við fær­eyska og íslenska fjöl­miðla vorið 2021, lýsti hann því hversu harka­lega íslenskir stjórn­mála­menn hefðu brugð­ist við áformunum og lagst af fullum þunga á stjórn­völd í Færeyjum, fyrir hönd Samherja.

 „Það er alls ekki venju­legt að íslenskir stjórn­mála­menn geri svona en þetta sner­ist auð­vitað um mjög miklar fjár­hæðir. Það var þannig að menn sögðu að þetta gengi ekki þar sem Færeyjar myndu verða af íslenskri fjár­fest­ingu fyrir vikið,“sagði Høgni í sam­tali við Stundina í apríl 2021. Hann var ófá­an­legur til að gefa upp hvaða íslensku stjórn­mála­menn um ræðir.

„Ég vil helst ekki segja meira. Ég var í miklum sam­skiptum við ráð­herra og þing­menn á Íslandi á þessum tíma, þó ekki for­sæt­is­ráð­herra,“ sagði Högni. Kristján Þór Júl­í­us­son þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, neit­aði að svara spurn­ingum Stund­ar­innar um málið.

Þor­gerður Katrín, sem hafði verið sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar frá árs­byrjun 2017 og þar til í nóv­em­ber sama ár, að Kristján tók við, kvaðst aldrei hafa rætt þetta mál við fær­eyska ráð­herr­ann.

Beitti pólitískum þrýstingi

„Þetta mál ræddum við aldrei,“ sagði Þor­gerður Katrín skýrt og afdrátt­ar­laust. Til að leggja enn frek­ari áherslu á mál sitt sagði hún það skjóta skökku við að íslenskir stjórn­mála­menn hefðu gagn­rýnt Fær­ey­inga fyrir að vilja setja sams konar lög og gilda á Íslandi, og komið hafa í veg fyrir að útlend­ingar taki þátt í íslenskum sjáv­ar­út­vegi.

Það var þó akkúrat það sem íslenskir stjórn­mála­menn gerðu í sam­skiptum við fær­eyska kollega sína í umrætt sinn. Eins og sést á upp­lýs­ingum um sam­skiptin, sem Heim­ildin fékk afhent úr tveimur fær­eyskum ráðu­neytum í sam­starfi við fær­eyska fjöl­mið­il­inn Fri­heds­bre­vet.

Ólíkt því sem Þor­gerður hélt fram, var hún sjálf þátt­tak­andi í þeirri gagn­rýni; beitti póli­tískum þrýst­ingi og hélt að sögn reiði­lestur yfir mann­inum sem hún sagð­ist seinna aldrei hafa rætt þessi mál við.

Ráðherra verður „óð“

Í hádeg­inu þann 15. júní 2017 hringdi sím­inn í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu í Færeyjum. Á lín­unni var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Íslands. Erindið var að ræða frum­varp sem fær­eyski ráð­herr­ann hafði lagt fyrir Lög­þingið nokkrum vikum fyrr, þann 22. maí.

Heim­ildin fékk minn­is­blað um sím­talið afhent í krafti upp­lýs­inga­laga frá fær­eyska sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu. Þar er því lýst hvernig íslenski ráð­herr­ann kom sér beint að efn­inu í upp­hafi sím­tals­ins og bað um skýr­ingar á því hvað fyr­ir­huguð lög­gjöf þýddi fyrir erlenda hlut­hafa í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi. Þor­gerður Katrín dró ekki dul á það að þótt hún not­aði fleir­tölu­mynd og tal­aði um hlut­hafa, væri hún að tala um einn ákveð­inn; Samherja. Önnur íslensk fyr­ir­tæki eða hags­munir voru enda ekki undir í Færeyjum.

Færeyski ráð­herr­ann svar­aði og sagði frum­varpið nú í höndum þing­manna­nefndar Lög­þings­ins þar sem unnið væri úr umsögnum og athuga­semdum en að óbreyttu væri von á því að þingið tæki svo afstöðu til máls­ins á næstu vikum.

Hoyvíkur-samn­ing­ur­inn, gagn­kvæmur við­skipta­samn­ingur þjóð­anna tveggja, var íslenska sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­anum og fleiri íslenskum stjórn­mála­mönnum ofar­lega í huga í tengslum við þetta mál. Töldu þeir að það að banna Íslend­ingum að eiga í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi væri brot á samn­ingnum.

Fær­ey­ingar höfðu á móti lengi talið Hoyvikur-samn­ing­inn þarfn­ast end­ur­skoð­unar, enda væri hann þeim óhag­stæður um margt. Hættan – og und­ir­liggj­andi hótun um að sá samn­ingur væri í veði – var því ekki mikil ógn í augum fær­eyskra ráða­manna.

Eins og kom í ljós þegar Þor­gerður Katrín er sögð hafa lýst því yfir í sím­tal­inu að íslenskir fjár­festar, með sér­stakri vísan til þess eina, Samherja, væru varðir af Hoy­vik­ur­samn­ingnum.

„Þor­gerður spurði þá hver staða íslenskra fyr­ir­tækja yrði sam­kvæmt frum­varp­inu. Minntist hún sér­stak­lega á Fram­herja og sagði íslenska fjár­festa njóta sér­stöðu í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi. Hún benti jafn­framt á að hún áliti, sem lög­fræð­ingur, að staðan liti ekki vel út,“ segir í nótum fær­eyska emb­ætt­is­manns­ins um sím­talið.

Høgni Hoydal er sagður hafa svarað því til að fær­eysk stjórn­völd hefðu þegar rætt þessi mál við sendi­herra Íslands í Færeyjum auk þess sem utan­rík­is­ráð­herrar þjóð­anna hefðu rætt það. Við­skipta­samn­ing­ur­inn væri á verk­sviði þeirra en Høgni er sagður hafa sagt að mögu­lega þyrfti því að breyta Hoyvíkur-samn­ingnum.

Þetta síð­ast­nefnda virð­ist hafa mis­boðið íslenska ráð­herr­anum veru­lega. Við þessum orðum Høgna brást hún „veru­lega reið“ við eða eins og fær­eyski emb­ætt­is­mað­ur­inn lýsir því „gjor­dist Thor­gerður heldur óð“. 

Færeyski ráð­herr­ann er sagður hafa reynt að benda Þorgerði Katrínu á að ekki stæði til að banna erlenda fjár­fest­ingu eða þátt­töku í sjáv­ar­út­vegi á einni nóttu og gefa ætti ríf­legan tíma, eða allt að fimm ár eins og þá leit út fyrir, til aðlög­unar. Auk þess ætti bannið ein­ungis við um eign­ar­hald útgerða en ekki fisk­vinnslu. Þetta virt­ist ekki friða íslenska sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann sem sagð­ist telja málið „mjög alvar­legt“ frá sjón­ar­hóli Íslend­inga, sem nytu að hennar viti sér­stöðu, umfram aðrar þjóðir, vegna sögu­legra tengsla og sér­staks sam­bands þjóð­anna.

Þor­gerður Katrín lýsti einnig óánægju sinni með að Høgni hefði ekki sagt henni frá því hvað stæði til, þegar ráð­herr­arnir höfðu hist þremur mán­uðum fyrr í Brussel, þar sem fram fór árleg sjáv­ar­út­vegs­sýn­ing í apríl 2017.

Færeyski ráð­herr­ann svar­aði því til að frum­varpið hefði ekki verið lagt fram fyrr en í maí, auk þess sem hann teldi ekki að vantað hefði á að íslenskir stjórn­mála- og emb­ætt­is­menn hefðu fylgst með mál­inu og vitað stefnu fær­eysku stjórn­ar­innar. Við þetta má bæta að hálfu ári fyrr hafði Høgni kynnt þessar fyr­ir­hug­uðu breyt­ingar í ferð sinni hér á Íslandi og fjöl­miðlar fjallað um hvað til stæði.

Sím­tal­inu lauk svo fær­eyski ráð­herr­ann á því að segja þeim íslenska að hann gæti engu lofað um breyt­ingar á frum­varp­inu, sem væri eins og áður sagði í þing­legri með­ferð í Færeyjum.

Miður að hafa ekki farið rétt með

Þegar Heim­ildin hafði sam­band við Þorgerði Katrínu og bar undir hana frá­sögn af sím­tal­inu og hvernig það stang­að­ist á við ummæli hennar um, sagð­ist hún ekki hafa munað fyrr en að hún rifj­aði sím­talið upp, að það hafi átt sér stað. 

„Mér finnst bara mjög leið­in­legt og miður að hafa ekki farið rétt með þetta“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir

„Mér finnst bara mjög leið­in­legt og miður að hafa ekki farið rétt með þetta, sem er ein­fald­lega bara því um að kenna að ég mundi ekki eftir þessu til­tekna sam­tali,“ sagði Þor­gerður Katrín.

„Þegar ég hef rifjað þetta upp núna og farið í gegnum minnis­p­unkta sem ég á, sé ég betur hvernig þetta var í þessu sam­tali. Það voru þarna íslenskir hags­munir undir og Fær­ey­ingar voru að fara gegn þjóð­rétt­ar­samn­ingum. Í þessu til­felli hafði Samherji, íslenskt fyr­ir­tæki, fjár­fest í skjóli þess. Á þessum tíma var Samherji líka bara umdeilt í mínum huga fyrst og fremst eins og önnur útgerð­ar­fyr­ir­tæki sem okkur þóttu ekki greiða sann­gjarnt verð fyrir auð­lind­ina. Og, já, ég var örugg­lega þung og reið. Høgni var líka fastur fyrir og þarna hafði verið tek­ist á um samn­inga í tengslum við deilistofna milli þjóð­anna og örugg­lega komin smá kergja í okkur. Mér fannst að þarna hefði verið hægt að eiga betra sam­ráð. Høgni gat alveg tekið upp sím­ann og látið okkur vita af því hvað stæði til en það var bara ekki gert.“

En þetta var alveg vitað mál að þessi laga­breyt­ing væri á dag­skrá. Búið að fjalla um þetta í fréttum hér hálfu ári áður, þegar Høgni Hoydal kom hingað sér­stak­lega til að kynna þetta á opnum fundi?

„Já en það var aldrei á nokkrum tíma­punkti neitt sam­ráð haft við okkur þessar fyr­ir­ætl­anir. Og gott og vel, ég get alveg skilið að í Færeyjum eins og hér uppi á Íslandi séu margir sem vilji síður að útlend­ingar fjár­festi í íslenskum sjáv­ar­út­vegi, en engu að síður voru þessar heim­ildir til staðar inni í þessum þjóð­rétt­ar­samn­ingi. Og það var þetta sem við vorum að verja og það er það sem ráð­herrar eiga að gera.“

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Hverju er Þorgerður Katrín tilbúin að ljúga til um næst ? Nei það er ekki hlutverk íslenskra ráðherra að hlutast til um innanríkismál annarra þjóða, með frekju og yfirgangi ! Kjósendur Viðreisnar ættu að spyrja sig viljum við hafa formann, sem þverbrýtur allar samskiptareglur og er tilbúin að ljúga til um það ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár