„Kúnnahópurinn er orðinn miklu upplýstari og ákveðnari“

Íslenskt fyr­ir­tæki hefur náð árangri erlendis með sölu á húð­vörum sem búnar eru til úr byggi. Sigrún Dögg Guð­jóns­dóttir fram­kvæmda­stjóri rann­sókna og þró­unar hjá BIOEFFECT fagnar því að neyt­endur séu upp­lýst­ari en áður. Ragna Hlín Þor­leifs­dóttir húð­læknir segir reglur um efni í húð­vörum í Evrópu strangar.

„Kúnnahópurinn er orðinn miklu upplýstari og ákveðnari“
Sigrún Dögg Guð­jóns­dóttir Fram­kvæmda­stjóri rann­sókna og þró­unar hjá BIOEFFECT segir neyt­endur upp­lýst­ari en áður um húð­vörur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mik­il­vægi húð­um­hirðu hefur verið í brennid­epli á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu ár.  Mark­aðsvirði húð­um­hirðu brans­ans vex milli ára og spá sér­fræð­ingar því að árið 2023 verði brans­inn met­inn á 155 millj­arða Banda­ríkja­dala. Erlendis eru Johnson Johnson, L’Oréal og Estée Lauder þrjú af verð­mæt­ustu fyr­ir­tækjum húð­vöru­iðn­að­ar­ins. BIOEFFECT, Bláa Lónið og Sóley eru meðal þeirra fyr­ir­tækja sem eru leið­andi í fram­leiðslu á húð­vörum hér­lendis. 

Ragna Hlín Þor­leifs­dóttirHúð­læknir segir ekki hægt að búa til eina húð­vöru sem hentar öllum.

Húð­lækn­ir­inn Ragna Hlín Þor­leifs­dóttir segir mikla vit­und­ar­vakn­ingu hafa orðið síð­ustu ár hvað varðar húð­um­hirðu, þá sér­stak­lega um skað­leg áhrif sól­ar­innar. Hins vegar má öllu ofgera og tekur hún fram að ein­fald­leik­inn sé ávallt betri en flóknar húðrútínur með mörgum vörum. „Það er til rosa­lega mikið af húð­vörum og það er líka vanda­mál að fólk er að nota of mikið af þeim. Þú ert að nota 10 vörur í kvöldrútínu þegar þú þarft kannski bara tvær eða þrjár vörur.“ 

Strangar reglur 

Ragna segir það ómögu­legt að búa til eina vöru sem hentar öllum. „Í raun­inni er þetta meira spurn­ing um að fólk noti vörur sem henta þeirra húð­týpu.“ Til dæmis velur fólk með þurra húð frekar olíu­kennd­ari og feit­ari vörur. Alls kyns frasar eru not­aðir til þess að lokka fólk að vörum sam­kvæmt húð­lækn­inum. Hún nefnir það sem dæmi að þrátt fyrir að vara sé búin til úr líf­rænum efnum sé ekki víst að hún henti öllum. „Þú getur fengið ofnæmi fyrir vörum sem inni­halda bara líf­ræn efni.“ Algeng­ast er þó að fólk þrói með sér ofnæmi fyrir ilm­efnum. „Það er rosa­lega mikið af ilm­efnum í snyrti­vörum og jafn­vel í vörum eins og spritt­brúsum. Við erum að sjá aukin ofnæm­is­vanda­mál út af efnum sem eru sett í snyrti­vörur.“

Hún segir lítið fylgst með mark­aðs­hlut­anum af húð­vöru­geir­anum þó að eft­ir­lit með inni­halds­efnum vara sé strangt í Evrópu. „Það eru rosa­lega strangar reglur í Evrópu um inni­halds­efni í snyrti­vörum þannig að hlutir eru ekki settir á markað með ein­hverjum hættu­legum efnum. Og það er alveg búið að taka út fullt af efnum sem voru í vörum áður fyrr.“ Aukin þekk­ing vegna fleiri rann­sókna leiddi í ljós að efni sem áður voru notuð höfðu slæm áhrif á fólk eða líf­ríkið. „Það er mikið svo­leiðis í umræð­unni í dag, hvaða áhrif efni hafa á líf­ríkið í sjónum og umhverfið.“ 

Upplýstur kúnnahópur

Sigrún Dögg Guð­jóns­dóttir er fram­kvæmda­stjóri rann­sókna og þró­unar hjá íslenska fyr­ir­tæk­inu BIOEFFECT sem selur húð­vörur um allan heim. Rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins voru 1 millj­arður og 731 milljón árið 2022 sam­kvæmt Keldunni. 

„Við erum alís­lenskt fyr­ir­tæki. Gróð­ur­húsið er rétt hjá Grinda­vík og þar ræktum við bygg. Allar vör­urnar okkar eru fram­leiddar hér og það er okkur mjög mik­il­vægt að Ísland sé kjarn­inn, það er okkar sér­staða.“  

Fram­kvæmda­stjór­inn hefur tekið eftir auk­inni vit­und­ar­vakn­ingu fólks er varðar húð­um­hirðu, sér­stak­lega hjá yngri kyn­slóðum. „Fólk vill fá vöru sem virkar og gerir það sem við segjum að hún geri. Kúnna­hóp­ur­inn er orð­inn miklu upp­lýst­ari og ákveðn­ari. Það eru meiri kröfur gerðar á fyr­ir­tækin. Fólk er alveg óhrætt við að setja sig inn í vís­indin af því að það er svo auð­velt að afla sér upp­lýs­inga, miðað við hvernig það var fyrir 20 árum síðan. Við sjáum alveg að fólk setur sig inn í hlut­ina, sýnir áhuga og spyr dýpri spurn­inga en áður.“ 

Fyrsta varanBIOEFFECT býr til serum úr íslensku byggi.

Rúmlega 42 þús­und manns fylgja íslenska fyr­ir­tæk­inu á Instagram og tæp hálf milljón not­enda á TikTok hefur horft á mynd­bönd merkt myllu­merk­inu BIOEFFECT. 

Aðspurð hvers vegna fyr­ir­tækið veki athygli í geira þar sem sam­keppni er hörð, segir Sigrún Dögg: „Hérna heima aug­lýsum við vör­urnar mjög vel og eigum traustan kúnna­hóp. Fyrir það erum við ofboðs­lega þakk­lát. Svo má bæta við að við komumst í gegnum Covid-19 og hrunið. Þetta er orðið rót­gróið fyr­ir­tæki og orð­sporið ferð­ast mjög hratt hér á Íslandi.“ 

Byggt á vísindum

„BIOEFFECT var undir Orf líf­tækni þar til í byrjun árs­ins 2022. Orf líf­tækni var stofnað af þremur vís­inda­mönnum sem fundu leið til að fram­leiða vaxt­ar­þætti í byggi.“ Við rannsóknir sínar átt­uðu vís­inda­menn Orf líf­tækni sig á mik­il­vægi vaxt­ar­þátt­ar­ins EGF í húð­inni. Skamm­stöf­unin EGF stendur fyrir Epidermal Growth Factor. „Þetta er vaxt­ar­þáttur sem við fæð­umst með í húð­inni og erum með alla lífs­leið­ina. Þegar við fáum sár eða eitt­hvað slíkt þá eykst fram­leiðsla og losun en þessi vaxt­ar­þáttur í húð­inni hjálpar meðal ann­ars til við að græða og byggja húð­ina upp aftur.“

Fyr­ir­tækið hefur staðið fyrir rann­sóknum hér­lendis þar sem áhrif EGF eru skoðuð. „Við höfum séð að húðin þykk­ist, styrk­ist og verður stíf­ari.“ 

„EGF serumið var fyrsta varan okkar. Hún er rosa­lega hrein og með fá inni­halds­efni. Við erum enn þá að fá fólk sem er með ofnæmi eða óþol í húð­inni og þetta er það eina sem þau geta notað.“ Sigrún Dögg segir vör­una strax hafa fengið með­byr frá almenn­ingi. Í dag fram­leiðir BIOEFFECT 14 húð­vörur og selur þær víðs vegar um heim, til dæmis í Lundúnum, París, Japan og Banda­ríkj­unum. 

Vörurnar, sem hugs­aðar eru fyrir hinn hefð­bundna kúnna, hafa einnig komið þeim sem glíma við sér­tæk­ari húð­vanda­mál að góðum notum. „Við vorum hér með ungan mann sem var með mjög mikið fóta­exem sem gerði það að verkum að það var sárt að ganga. Hann byrj­aði að nota EGF serumið á fæt­urna og það hefur alveg bjargað honum. Eins vitum við af því að hand­bolta­maður notar EGF á hend­urnar til að halda exemi í lóf­unum niðri vegna þess að húðin hans tekur ekki vel í harpexið.“ 

Á sama tíma og neyt­endur eru orðnir með­vit­aðri um virkni og virði ákveð­inna vara hefur skap­ast und­ir­alda á mark­aði af karl­mönnum sem nota húð­vörur. Sigrún Dögg segir flesta karl­menn varla hafa borið á sig krem fyrir nokkrum ára­tugum en nú sé það algeng­ara. „Vörurnar okkar eru kyn­lausar þannig að ég held að við myndum alveg ná til karl­manns á sex­tugs­aldri sem hefur aldrei borið á sig krem.“  

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RA
    Reykjavíkur Akademían skrifaði
    Um sumt upplýsandi en vekur furðu að hægt sé að rita heila grein um Orf og EGF án þess að geta þess að um erfðabreytta ræktun sé að ræða.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár