Sátt Íslandsbanka var ekki traustsyfirlýsing

Nýr banka­stjóri Íslands­banka tekur ekki undir mál­flutn­ing for­vera síns um að sátt bank­ans við Fjár­mála­eft­ir­litið hafi inni­borið trausts­yf­ir­lýs­ingu í garð bank­ans og stjórn­enda hans. Jón Guðni Ómarsson segir bank­ann hafa gert mis­tök í upp­lýs­inga­gjöf og sam­skiptum. Sýna hefði átt auð­mýkt í stað þess að fara í vörn.

Sátt Íslandsbanka var ekki traustsyfirlýsing
Sjálfs­skoðun Betur hefði farið á því að Íslands­banki færi í sjálfs­skoðun heldur en vörn. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Því fer fjarri að hægt sé að túlka sátt Íslands­banka við fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands sem trausts­yf­ir­lýs­ingu á störf bank­ans, þrátt fyrir yfir­lýs­ingar fyrr­ver­andi banka­stjóra Íslands­banka, Birnu Ein­ars­dóttur, þar um. Þetta segir Jón Guðni Ómarsson, sem tók við banka­stjóra­stöð­unni af Birnu.

„Ég held að það sé alveg aug­ljóst að við gerðum mis­tök í því hvernig við brugð­umst við sátt­inni, bæði í upp­hafi og síðan við birt­ing­una. Þegar að þessi skýrsla kemur þá fær fólk visst áfall, og í stað­inn fyrir að sýna auð­mýkt þá fórum við í vörn. Eftir á að hyggja hefði verið klár­lega betra að fara strax í sjálfs­skoðun, átta sig á hvað gerð­ist, sýna auð­mýkt í stað­inn fyrir varn­ar­við­brögð,“ segir Jón Guðni í við­tali við Heim­ild­ina.

Ekki er hægt að hrósa við­brögðum Íslands­banka í kjöl­far þess að sátt bank­ans vegna brota við útboðs­ferli á hlut rík­is­ins í bank­anum var birt. Þannig liðu margir dagar liðu án þess að bank­inn bæð­ist afsök­unar á að hafa brotið af sér, brot sem voru það alvar­leg að fjár­mála­eft­ir­litið sektaði bank­ann um tæp­lega 1,2 millj­arða króna.

„Nei, ég get ekki sagt það“
Jón Guðni Ómarsson
um hvort sátt Íslands­banka við Fjár­mála­eft­ir­litið geti talist trausts­yf­ir­lýs­ing

Spurður hvernig hafi staðið á því að ekki var betur staðið að málum, hvort stjórn­endur Íslands­banka hafi ekki hlotið að gera sér grein fyrir því hvers konar álits­hnekki og trausts­missi bank­inn gæti orðið fyrir, svarar Jón Guðni að hann sjálfur hafi ekki verið inni í und­ir­bún­ingi að við­brögðum vegna birt­ingu sátt­ar­innar. „Aftur, þá tel ég að það hafi verið varn­ar­við­brögð uppi frekar en að fólk hafi sýnt næga auð­mýkt.“

Ef þú hefðir verið orð­inn banka­stjóri á þessum tíma, hefðir þú þá lagt þá línu að bank­inn myndi ein­fald­lega biðj­ast auð­mjúk­lega afsök­unar á þeim brotum sem voru framin?

„Ég held að það sé ómögu­legt fyrir mig að ætla að þykj­ast vera vitur eftir á og segja að ég hefði gert allt rétt. Það sem ég get gert er að bregð­ast við aðstæðum núna og eins og ég hef sagt áður þá finnst mér alveg klárt mál að við eigum að biðj­ast afsök­unar á þessum brotum.“

Þannig að ef ég spyr þig hreint út: Biðst þú afsök­unar á brotum bank­ans?

„Já, ég biðst afsök­unar á þeim.“

En tekur þú undir það að sáttin sé á ein­hvern hátt trausts­yf­ir­lýs­ing við Íslands­banka?

„Nei, ég get ekki sagt það.“ 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þeim er nær, að ráða gamla bankaræningja sem stjórnarmenn í banka, kann það góðri lukku að stýra?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár