Segist skilja reiði fólks Jón Guðni segir að hann hafi fullan skiln­ing á reiði og von­brigðum almenn­ings í garð Íslands­banka. Nú sé því mark­mið hans að horfa fram á við og vinna til baka traust. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Jón Guðni Ómarsson: „Ég biðst afsökunar“

Nýr banka­stjóri Íslands­banka segir bank­ann hafa gert mis­tök með því að girða ekki fyrir að starfs­menn bank­ans gætu sjálfir keypt í honum. Jón Guðni Ómarsson segir bank­ann sömu­leiðis hafa gert mis­tök með við­brögðum sínum eftir að sátt hans við Fjár­mála­eft­ir­litið varð opin­ber, í stað þess að sýna auð­mýkt hafi bank­inn farið í vörn. „Ég skil hana mjög vel,“ segir Jón Guðni aðspurður um hvort hann skilji reiði fólks í garð bank­ans.

Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar hennar um annað mátti flestum vera ljóst að Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka, yrði ekki vært áfram í starfi eftir að sátt bank­ans við Fjár­mála­eft­ir­litið varð opin­ber. Alvarleg brot bank­ans við fram­kvæmd útboðs á hlut rík­is­ins í bank­anum, sem urðu til þess að bank­inn þarf að greiða tæpa 1,2 millj­arða króna í sekt, buðu ekki upp á annað en ein­hver yrði lát­inn sæta ábyrgð.

Um miðja nótt var því til­kynnt að nýr maður væri kom­inn í brúna. Tíma­setn­ing þeirrar til­kynn­ingar, sem og sú stað­reynd að upp­lýs­ing­arnar sem fjöl­miðlar fengu um hana komu frá almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­inu KOM, fyrir hönd Birnu en ekki bank­ans, var í takt við þá klúð­urs­legu, og að mörgu leyti yfir­læt­is­legu, fram­setn­ingu á upp­lýs­ingum sem ein­kenndi fyrstu við­brögð Íslands­banka og stjórn­enda hans í mál­inu. Í fyrstu til­kynn­ingu frá bank­anum kom ekki fram …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Það eina sem mig langar að vita er hvaða regluverk þeir ætla að setja sér og hvernig framkvæma. Því ekkert hefur breyst bara orgjalfur.
    1
  • Björn Ólafsson skrifaði
    Viðbrögð bankans voru engin fyrr en allt varð vitlaust. Viðskiptasiðferðið var, og jafnvel er ekkert, Það á ekki að þurfa að segja fólki allan andskotan, eins og td. að kaupa ekki í eigin banka í útboðinu. Fólk með eitthvert siðferði hefði séð að það var galið að kaupa í banka sem það vinnur í. En helv... græðgin yfirtekur alla skynsemi hjá þeim sem drifnir eru af peningagróða. Þetta spjalla bankastjórans er ekkert annað en það sem hann telur fólk vilja heyra, en ekki það sem hann stóð fyrir. Hann hefði stigið niður fæti fyrir útboð ef viðskiptasiðferði hans væri eitthvað meira en annarra í bankanum.
    1
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Góðar spurningar.
    1
    • Kári Jónsson skrifaði
      Svör Jóns Guðna "auðmjúka" er hreint og klárt eftirá skýringar og orðagjálfur um það sem Jón "auðmjúki" heldur að almenningur og viðskiptavinir bankanns vilji heyra Íslandsbanki braut engin lög, það voru stjórnendur bankanns sem brutu lögin og voru leystir út með veglegum starfslokasamningum lesist (mútur) hvergi hefur komið fram að innherjasvindlurum hafi verið gert að selja hlutabréfin sín á sama verði og þeir keyptu og flestir hafa innleyst verðmæti svindlsins til viðbótar við múturnar.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár