Laun borgarfulltrúa hækka um 2,5 prósent – Kostar borgina um 15 milljónir í ár

Borg­ar­full­trúar áttu að fá 7,88 pró­sent launa­hækkun um síð­ustu mán­aða­mót. Í dag var sam­þykkt til­laga um að launa­hækk­unin verði hóf­legri. Borg­ar­stjóri mun að óbreyttu verða með um 2,6 millj­ónir króna í heild­ar­laun á mán­uði.

Laun borgarfulltrúa hækka um 2,5 prósent – Kostar borgina um 15 milljónir í ár
Borg­ar­stjórn Næst verður kosið til borg­ar­stjórnar árið 2026. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Laun borg­ar­full­trúa í Reykja­vík munu hækka um 2,5 pró­sent frá og með síð­ustu mán­aða­mótum og verða 988 þús­und krónur á mán­uði. Þetta er minni hækkun en hefði orðið ef miðað hefði verið við þróun launa­vísi­tölu frá nóv­em­ber 2022 til maí 2023, líkt og gild­andi fyr­ir­komu­lag um launa­hækk­anir þeirra segir til um. Ef stuðst hefði verið við það fyr­ir­komu­lag hefðu grunn­launin hækkað um 7,88 pró­sent og orðið ein milljón og fjöru­tíu þús­und krónur á mán­uði. 

Borg­ar­full­trúar, sem eru alls 23 tals­ins, fá umtals­verðar greiðslur umfram grunn­laun. Þeir fá til að mynda greiddan starfs­kostnað upp á 71.334 krónur á mán­uði. Auk þess fá þeir sem gegna for­mennsku í fagráði eða borg­ar­stjórn­ar­flokki 25 pró­sent álag ofan á launin. Sama gildir um þá borg­ar­full­trúa sem sitja í þremur eða fleiri fasta­nefndum og þá sem sitja í borg­ar­ráði. Þá fær for­maður borg­ar­ráðs 40 pró­sent álag ofan á grunn­laun og for­seti borg­ar­stjórnar fær 25 pró­sent álag ofan á þau.

Laun borg­ar­full­trúa sem fær 25 pró­sent álag á laun sín munu því verða rúm­lega 1,3 millj­ónir króna. Þeir borg­ar­full­trúar sem eru með tvö­falt 25 pró­sent álag, til dæmis vegna setu í borg­ar­ráði og öðrum þremur ráðum, munu nú fá 1.553 þús­und krónur á mán­uði. 

Að jafn­aði hækka laun kjör­inna aðal­full­trúa í borg­ar­stjórn á bil­inu 24.091 krónur til 42.160 krónur þegar álags­greiðslur hafa verið teknar með.

Tillaga um þetta var sam­þykkt í borg­ar­ráði í dag. Í grein­ar­gerð sem fylgdi með til­lög­unni kom fram að hún hefði verið lögð fram vegna efna­hags­að­stæðna. Vegna þessa hækkar launa­kostn­aður borg­ar­full­trúa um sjö millj­ónir króna á árinu 2023 í stað 22,1 milljón króna ef tekið væri mið af þróun launa­vísi­tölu sam­kvæmt sam­þykkt um kjör starfs­að­stöðu kjör­inna full­trúa í Reykja­vík.

Borgarstjóri óskar líka eftir hóflegri hækkun

Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg vegna þessa kemur einnig fram að borg­ar­stjóri muni einnig óska eftir sömu breyt­ingum á sínum launum. Dagur B. Egg­erts­son gegnir því emb­ætti sem stendur en Einar Þor­steins­son mun taka við kefl­inu um kom­andi ára­mót og sitja að óbreyttu í borg­ar­stjóra­stólnum út kjör­tíma­bilið. Laun borg­ar­stjóra sam­kvæmt ráðn­ing­ar­bréfi eru rúm­lega 2,3 millj­ónir króna. Auk þess fær hann þóknun fyrir stjórn­ar­for­mennsku í Slökkvi­liði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu upp á tæp­lega 230 þús­und krónur. 

Allt í allt er hann því með rúm­lega 2,5 millj­ónir króna á mán­uði. Ef grunn­laun borg­ar­stjóra hefðu hækkað um 7,88 pró­sent, líkt og til stóð, myndu þau verða tæp­lega 2,5 millj­ónir króna og og heild­ar­launin því yfir 2,7 millj­ónir króna. Verði ósk Dags um að grunn­launin hækki um 2,5 pró­sent í stað­inn verða þau tæp­lega 2,4 millj­ónir króna á mán­uði og heild­ar­launin um 2,6 millj­ónir króna á mán­uði. 

Þjóðkjörnir gerðu slíkt hið sama

Með ákvörðun sinni eru borg­ar­full­trúar að taka sömu ákvörðun og tekin var með laun þjóð­kjör­inna full­trúa og emb­ætt­is­manna, sem áttu rétt á um sex pró­sent launa­hækkun frá 1. júlí síð­ast­liðnum. Eftir að mikil gagn­rýni var sett fram á þá hækkun, sem hefði til að mynda skilað þing­mönnum hækk­unum umfram það þak sem samið var um í skamm­tíma­kjara­samn­ingum Samtaka atvinnu­lífs­ins við þorra hins almenna mark­aðar í kringum síð­ustu ára­mót, en það þak var 66 þús­und krónur. Alls hefðu þing­menn fengið 85 þús­und krónur í launa­hækkun á mán­uði ef sér­stök lög hefðu ekki verið sett til að halda hækk­un­inni til sam­ræmis við verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands, sem er 2,5 pró­sent. Hefði ítrasta hækkun gengið eftir væru þing­menn nú með um 1.431 þús­und krónur á mán­uði í grunn­laun, en þau hafa tvö­fald­ast á sjö árum. Til við­­bótar við ofan­­greint geta þing­­menn fengið ýmis­­­konar við­­bót­­ar­greiðslur, sem geta hlaupið á hund­ruð þús­unda króna á mán­uði, vegna kostn­aðar sem fellur til vegna starfs­ins, eða auka­­starfa á borð við nefnd­­ar­­for­­mennsku. 

Grunn­­laun ráð­herra og for­seta Alþingis voru á leið­inni í 2.372 þús­und krónur og laun for­sæt­is­ráð­herra í 2.626 þús­und krónur á mán­uði. 

Þess í stað hækk­uðu þing­menn í launum um 33.640 krónur þann 1. júlí síð­ast­lið­inn og fengu rúm­lega 1.379 þús­und krónur fyrir skatt í grunn­laun. Laun venju­legra ráð­herra og for­seta Alþingis hækk­uðu um tæp­lega 56 þús­und krónur á mán­uði og standa nú í 2.287 þús­und krónum á mán­uði. 

Á meðal þeirra sem sitja á þingi hækk­uðu laun for­sæt­is­ráð­herra mest, eða um tæp­lega 62 þús­und krónur á ári. Hún er nú með 2.532 þús­und krónur í laun á mán­uði.

Í lög­unum sem sam­þykkt voru kemur þó skýrt fram að þessi breyt­ing er ein­ungis til eins árs. Þann 1. júlí 2024 verður aftur horft til þess hvernig með­al­tal reglu­legra launa starfs­manna rík­is­ins fyrir næst­liðið alm­an­aksár breytt­ist og breyt­ing á launum við­kom­andi taka mið af því.

Regluleg laun launa­fólks í fullu starfi á Íslandi voru 745 þús­und krónur að með­al­tali í fyrra, og mið­gildi þeirra 669 þús­und krónur. Um 63 pró­sent alls launa­fólks er með laun undir með­al­tal­inu sem skýrist, sam­kvæmt Hagstofu Íslands, meðal ann­ars af því að hæstu laun hækka með­al­talið þar sem kjara­samn­ingar tryggja ákveðin lág­marks­kjör en kveða ekki á um hámarks­kjör.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Regluleg laun launafólks í fullu starfi á Íslandi voru 745 þúsund krónur að meðaltali í fyrra, og miðgildi þeirra 669 þúsund krónur."
    Meðaltöl segja yfirleitt lítið. Ef hæsta eina prósentið yrði tekið út þá færi meðaltalið líklega undir 500þ.
    Það er fráleitt að laun borgarfulltrúa séu hærri en kennara fyrir starf sem ekki krefst sérstakrar menntunar né reynslu.
    Til fróðleiks má geta þess að í London eru 16 borgarfulltrúar!
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Voru ekki ráðandi í borgarstjórn að ákveða að ekki skuli hækka til björtustu vonarinnar, barnanna í unglingavinnunni?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár