A-hluti Reykjavíkur tapaði fjórum milljörðum króna á þremur mánuðum

Rekstr­ar­nið­ur­staða þess hluta Reykja­vík­ur­borgar sem er fjár­magn­aður með skattfé var 1,8 millj­örðum krónum verri á fyrsta árs­fjórð­ungi 2023 en fjár­hags­á­ætlun hafði gert ráð fyrir. Hærri fjár­magns­gjöld vegna verð­bólgu helsta ástæðan, segir borgin.

A-hluti Reykjavíkur tapaði fjórum milljörðum króna á þremur mánuðum
Borg­ar­stjór­inn Dagur B. Egg­erts­son er borg­ar­stjóri Reykja­víkur og mun sitja í því emb­ætti út þetta ár. Þá tekur Einar Þor­steins­son við. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

A-hluti Reykja­vík­ur­borgar, sá hluti rekst­urs hennar sem rek­inn er fyrir skattfé, var rek­inn um fjög­urra millj­arða króna halla á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Það er umtals­vert lak­ari rekstr­ar­nið­ur­staða en áætl­anir höfðu gert ráð fyrir, en þær höfðu reiknað með 2,2 millj­arða króna tapi. Nið­ur­staðan er því 1,8 millj­örðum krónum verri en reiknað hafði með. 

Þetta kemur fram í rekstr­ar­upp­gjöri höf­uð­borg­ar­innar sem var lagt fram í borg­ar­ráði í dag og var birt í til­kynn­ing­ar­kerfi Kaup­hallar Íslands í kjöl­farið. 

Í til­kynn­ing­unni segir að helsta skýr­ingin á auknum tap­rekstri séu hærri fjár­magns­gjöld vegna verð­bólgu, en þau voru 995 millj­ónum krónum hærri en fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar hafði gert ráð fyrir. Auk þess hafi kostn­aður verið umfram áætl­anir á skóla- og frí­stunda­sviði, að hluta til vegna mót­töku barna af erlendum upp­runa og auknum fjölda barna sem þurfa sér­tæk úrræði umfram það sem áætlað var. Heilt yfir var rekstr­ar­nið­ur­staðan fyrir fjár­magnsliði nei­kvæð um 764 millj­ónir króna, sem er 812 millj­ónum króna verri nið­ur­staða en fjár­hags­á­ætlun hafði reiknað með. 

Veltufé frá rekstri var nei­kvætt um 667 millj­ónir króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, en áætl­anir höfðu gert ráð fyrir því að það yrði jákvætt um 349 millj­ónir króna. 

Tapaði 15,6 milljörðum í fyrra

Þetta tap bæt­ist við þá 15,6 millj­arða króna sem A-hluti Reykja­vík­ur­borgar tap­aði í fyrra. Sú nið­ur­staða var 12,8 millj­örðum krónum verri en fjár­hags­á­ætlun hafði gert ráð fyrir. Samstæða borg­ar­innar, A- og B-hlut­inn, skil­aði hins vegar sex millj­arða króna hagn­aði á árinu 2022, sem var þremur millj­örðum króna undir fjár­hags­á­ætlun. Þar skipti mestu að mats­breyt­ingar fjár­fest­inga­eigna, sem eru þær 3.067 íbúðir sem Félags­bú­staðir eiga, voru 21 millj­arður króna í stað þeirra sex sem gert hafði verið ráð fyrir í áætl­unum. Þetta gerð­ist vegna þess að íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði miklu meira en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Hér er þó um pen­inga sem ekki er hægt að ráð­stafa nema með því að selja umræddar íbúðir, en Reykja­vík­ur­borg er bak­beinið í félags­lega hús­næð­is­kerf­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með nálægt 80 pró­sent alls slíks hús­næðis á svæð­inu innan sinna marka. 

Staðan skárst í höfuðborginni

Heim­ildin greindi frá því í maí að þrátt fyrir að fjár­hags­staða Reykja­vík­ur­borgar hefði versnað hratt síð­ustu miss­erin þá væri skulda­staða A-hluta rekstur hennar betri en allra ann­arra sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Í lok síð­asta árs var skulda­hlut­fall­ið lægst í Reykja­vík og Kópa­vogi, skuld­ir á hvern íbúa lægst­ar í þeim sveit­ar­fé­lög­um og veltu­fjár­hlut­fall­ið, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, var hæst í höf­uð­borg­inni.

Skulda­hlut­fall A-hlut­ans í Reykja­víkur hefur þó hækkað skarpt á und­an­förnum árum. Það var 85 pró­sent í lok árs 2017 en var komið í 112 pró­sent um síð­ustu ára­mót. Í sam­an­burði við hin sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er það hlut­fall ekki hátt. Raunar er ein­ungis eitt nágranna­sveit­ar­fé­lag, Kópa­vogur, sem er með betra skulda­hlut­fall, en þar er það 111 pró­sent og staðan því nán­ast sú sama og í Reykja­vík. Hæst er skulda­hlut­fallið hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ, 136 pró­sent, en þar fer það lækk­andi. Í Mos­fellsbæ er það 132,6 pró­sent, 130 pró­sent á Sel­tjarn­ar­nesi og 125 pró­sent í Garðabæ.



Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár