Ferðahandbók menningarvitans

Heim­ildin hefur tekið saman nokkra áhuga­verða og mis­þekkta áfanga­staði sem hægt er að mæla með fyrir fólk á far­alds­fæti sem hefur áhuga á menn­ingu og sögu þjóð­ar­innar.

Ferðahandbók menningarvitans

Um miðjan júlí stendur íslenska ferða­sum­arið sem hæst og ferða­glaðir les­endur geta valið um ara­grúa ólíkra bæj­ar­há­tíða sem haldnar eru víðs vegar um landið á þessum árs­tíma. Slíkar hátíðir geta fært mikið líf í bæi lands­ins, jafnt stóra sem smáa, og sökum þess hve fjöl­breyttar þær eru geta ferða­langar yfir­leitt fengið eitt­hvað fyrir sinn snúð. Sumar gera menn­ing­unni hátt undir höfði og leggja áherslu á mynd­list eða tón­list, á öðrum er mat­ur­inn í fyrsta sæti og svo eru aðrar hátíðir sem eiga sér engan annan líka, á borð við bíla­daga á Akureyri, gos­loka­há­tíð í Vest­manna­eyjum eða þjóð­laga­há­tíð á Siglu­firði.

Eins og það getur verið skemmti­legt að sækja hressi­lega bæj­ar­há­tíð heim, þá snú­ast ferða­lög um landið líka oft um afslöppun og róleg­heit. Stundum fær maður mest úr ferða­lag­inu ef maður getur ein­fald­lega dólað sér og gert hlut­ina á sínum eigin hraða, óháð fyrir fram ákveð­inni dag­skrá. En eitt­hvað þarf maður nú að gera og fyrir þau sem hafa áhuga á menn­ingu og sögu þjóð­ar­innar er eng­inn hörgull á áhuga­verðum áfanga­stöðum víða um land. Heim­ildin hefur tekið saman nokkra áhuga­verða áfanga­staði sem geta gefið sum­ar­ferða­lag­inu ögn menn­ing­ar­legri blæ.  

Varla þarf að taka það fram að sú upp­taln­ing sem hér fer á eftir er langt í frá tæm­andi. Menn­ing­ar­sinn­uðum ferða­löngum má benda á vef­síð­una sofn.is sem Félag íslenskra safna og safn­manna hleypti af stokk­unum nýlega með slag­orð­inu „Söfnum söfnum!“ Þar má finna yfir­lit yfir söfn, setur og sýn­ingar Íslands og hægt er að haka við öll söfn sem heim­sótt hafa verið. Einnig er kort á síð­unni sem hægt er að nýta sér til þess að finna söfn sem gætu leynst á næstu grösum, hvar svo sem les­endur eru nið­ur­komnir. Góða ferð!

1. Fetaðu í fótspors Ásgríms Jónssonar í Flóanum

Það er stundum sagt að mynd­listin geti gefið fólki nýja sýn á umhverfi sitt. Nú hafa þrjú söfn tekið höndum saman til þess að heiðra minn­ingu eins fremsta braut­ryðj­anda íslenska lands­lags­mál­verks­ins, Ásgríms Jóns­sonar, með hinni svoköll­uðu Ásgríms­leið. Þessi leið sam­anstendur af þremur áfanga­stöðum; Byggða­safn­inu á Eyr­ar­bakka, Lista­safni Árnes­inga í Hvera­gerði og Ásgríms­safni sem er hluti af Lista­safni Íslands. Á öllum þessum stöðum má fræð­ast um Ásgrím í sumar sem fæddur var í Flóanum, skammt frá Eyr­ar­bakka.

2. Rík saga í Eyjum og skemmtilegasta rennibrautin

Í ár er liðin hálf öld frá Heima­eyj­ar­gos­inu. Í Eyjum er sögu goss­ins vel miðlað á sér­stöku gosminja­safni sem nefn­ist Eld­heimar. Í stórri safn­bygg­ing­unni má fræð­ast um ólíka anga goss­ins og skoða íbúð­ar­hús sem grófst undir vikri í gos­inu. Í Sagn­heimum, sem er byggða­safn Vest­manna­ey­inga, er svo hægt að fræð­ast um aðra atburði sem tengj­ast sögu stað­ar­ins, til að mynda sjáv­ar­út­vegs­sögu stað­ar­ins og sjálft Tyrkjaránið. Sund­laugin í Vest­manna­eyjabæ er einnig vin­sæll áning­ar­staður ferða­langa og þar er að mati grein­ar­höf­undar ein skemmti­leg­asta renni­braut lands­ins.

Eggin í GleðivíkVið Djúpavog eru 34 eft­ir­myndir fugl­seggja eftir Sigurð Guð­munds­son.

3. Rjómi íslenskrar samtímalistar á Djúpavogi

Menn­ing­ar­líf á Djúpa­vogi stendur um þessar mundir í miklum blóma. Þar var opnað fyrir skemmstu eitt fremsta sam­tíma­lista­safn lands­ins, ARS LONGA. Nú stendur yfir sum­ar­sýn­ing safns­ins sem sam­anstendur af verkum 16 lista­manna. Skammt frá safn­inu, með­fram sjónum, hvíla Eggin í Gleðivík, lista­verk Sigurðar Guð­munds­sonar. Áhuga­fólk um jarð­fræði verður ekki svikið af Steina­safni Auðuns og þar hefur áhugi margra ungra gesta á steina­söfnun kviknað. Þessu til við­bótar má nefna Löngubúð, elsta hús Djúpa­vogs. Þar undir einu þaki má finna safn mynd­höggv­ar­ans Ríkarðs Jóns­sonar og ráð­herra­stofu Eysteins Jóns­sonar, en þeir komu báðir frá Djúpa­vogi, og minja­safn. Einnig er í hús­inu rekið kaffi­hús og veit­inga­staður sem getur svalað þeim sem ekki þyrstir í söfn.

Hljóðskúlp­túrFallegt útsýni er yfir Seyð­is­fjörð frá hljóðskúlp­t­úrnum Tvísöng eftir þýska lista­mann­inn Lukas Kühne.

4. Myndlist og kvikmyndir í Skaftfelli og Herðubreið 

Seyð­is­fjörður hefur á und­an­förnum árum fest sig í sessi sem einn öfl­ug­asti menn­ing­ar­bær lands­ins. Á vet­urna er þar haldin lista­há­tíðin List í ljósi og á sumrin opnar bær­inn faðm­inn fyrir ungu lista­fólki á LungA. Það er líka nóg að sjá fyrir menn­ing­ar­sinn­aða ferða­langa. Áhuga­fólk um sam­tíma­mynd­list ætti ekki að láta hjá líða að staldra við í Skaft­felli, mynd­list­ar­mið­stöð Aust­ur­lands, en þar eru haldnar sýn­ingar allt árið. Í góðu veðri er rakið að ganga að úti­lista­verki þýska lista­manns­ins Lukas Kühne sem nefn­ist Tví­söngur, en verkið er hljóðskúlp­túr sem heiðrar íslensku tví­söngs­hefð­ina. Svo er líka hægt að kúpla sig aðeins úr frígírnum og fara í bíó í kvik­mynda­hús­inu Herðu­breið sem er einkar snot­urt og gam­al­dags í besta skiln­ingi þess orðs.

EdenslundurFallegur garður á Akureyri.

5. Edenslundur á Akureyri

Eðli máls­ins sam­kvæmt má finna margs konar afþr­ey­ingu í höf­uð­stað Norð­ur­lands. Þar eru söfn af ólíkum toga, sund­laug sem býður upp á bæði ærsl og afslöppun og matur frá ólíkum heims­hornum. Einn er sá staður á Akureyri sem rit­stjórn Heim­ild­ar­innar var sam­mála um að draga fram í þess­ari umfjöllun og það er Lysti­garð­ur­inn. Á heima­síðu Lysti­garðs­ins segir að hann sé fyrsti almenn­ings­garður lands­ins en hann var form­lega opn­aður árið 1912. Garð­ur­inn hefur verið stækk­aður nokkrum sinnum í gegnum tíð­ina og nú má þar finna alls um 3.500 teg­undir plantna. Í góðu veðri er Lysti­garð­ur­inn á Akureyri til­val­inn áfanga­staður fyrir jafnt unga sem aldna, hvort sem það er til þess að dást að fjöl­breyttri flór­unni, busla í einum af gos­brunnum eða tjörnum garðs­ins, nú eða til þess að fá sér hress­ingu á kaffi­hús­inu LYST.

6. Sérviskuleg söfnun á öllu mögulegu

Eitt for­vitni­leg­asta safn lands­ins er í Eyja­fjarð­ar­sveit, Smá­muna­safn Sverris Her­manns­sonar. Á safn­inu má finna allt milli him­ins og jarðar en Sverri var ekk­ert óvið­kom­andi í sinni söfnun. Vegna þess hve fjöl­breyttur safn­kost­ur­inn er þá tekst Smá­muna­safn­inu að snerta á iðn­aðar-, bygg­ingar-, við­skipta-, minja- og land­bún­að­ar­sögu hér­aðs­ins. Heimsókn á safnið kemst þar af leið­andi nálægt því að vera menn­ing­ar­leg alslemma en þess má geta að fram­setn­ingin á sumum gripum er svo list­ræn að Smá­muna­safn­inu tekst því næstum að stand­ast mörgum lista­söfnum snún­ing í sjón­rænni upp­lifun.

HofsósSund­laugin er með fal­legt útsýni yfir skaga­fjörð­inn.

7. Fallegasta laug landsins og  saga vesturfaranna

Sund­laugin á Hofsósi þykir með þeim feg­urri á land­inu enda er útsýnið þaðan út Skaga­fjörð­inn virki­lega fal­legt. Þar að auki er hægt að heim­sækja Vest­ur­fara­setrið á Hofsósi og fræð­ast um merki­lega sögu þeirra Íslend­inga sem kusu að ferð­ast vestur um haf og setj­ast þar að. Hvers vegna fór allt þetta fólk af landi brott? Hvernig vegn­aði þeim á áfanga­stað? Settust Íslend­ingar að í Brasilíu en ekki bara í Banda­ríkj­unum og Kanada? Svörin við þessum spurn­ingum leyn­ast á Vest­ur­fara­setr­inu.

Blönduós

8. Heimilisiðnaður við ósa Blöndu

Beggja vegna við ósa Blöndu stendur fal­legt þorp, Blönduós, sem nú er hluti af sveit­ar­fé­lag­inu Húna­byggð. Það vill oft brenna við að fólk fari á mis við feg­urð stað­ar­ins – stoppi kannski bara á bens­ín­stöð­inni við þjóð­veg­inn til þess að fá sér í gogg­inn eða grípa eitt­hvað til að maula á ferð­inni. Ekki ein­ungis er bær­inn mjög fal­legur heldur er hand­verk­inu gert þar hátt undir höfði. Á heim­il­is­iðn­að­ar­safn­inu má fræð­ast um sögu íslenskra hann­yrða og heim­il­is­iðn­aðar að fornu, meðal ann­ars á sýn­ingum sem helg­aðar eru útsaumi, ull­inni og þjóð­bún­ingum.

9. Skrímslasögur og ylþýðar melódíur

Jón Kr. Ólafsson hefur haldið vel utan um tón­list­ar­sögu lands­ins og hann miðlar henni á sinn ein­staka hátt á safn­inu Melódíur minn­ing­anna sem finna má á heim­ili Jóns á Bíldudal. Hljóm­plötur, myndir og plaköt prýða vegg­ina og í safn­inu má einnig finna hljóð­færi, klæðnað og aðra muni sem tengj­ast mörgum úr hópi fremsta tón­list­ar­fólks lands­ins. Haldið er utan um ann­ars konar minn­ingar í Skrímsla­setr­inu, þar geta gestir glöggvað sig á skrímsla­sögum sem lifað hafa með þjóð­inni í gegnum ald­irnar. Á heima­síðu safns­ins segir að það hafi legið beint við að finna safn­inu stað á Bíldudal, enda hafa fundir manna og skrímsla verið einna algeng­astir á Vest­fjörðum.

Stein­steyptar högg­myndirÍ högg­mynda­garði Samúels Jóns­sonar má finna eft­ir­mynd lista­manns­ins af ljóna­garð­inum í Alhambra höll­inni í Granada.

10. Listamaðurinn með barnshjartað í Selárdal

Í Selárdal í Arn­ar­firði má finna for­vitni­legan högg­mynda­garð Samúels Jóns­sonar sem kall­aður hefur verið lista­mað­ur­inn með barns­hjartað. Samúel kom sér upp sann­kall­aðri ævin­týra­ver­öld sem er full af alls konar kynja­verum sem hann vann í stein­steypu og mál­aði. Félag um lista­safn Samúels var stofnað árið 1998 og réðst í kjöl­farið í mikið end­ur­reisn­ar­starf. Á þeim tíma voru lista­verkin ásamt húsi Samúels, safni hans og kirkju veru­lega farin að láta á sjá eftir ára­tuga­langan ágang nátt­úru­afl­anna. Safnið er opið á sumrin og þar má fá kaffi­veit­ingar og leið­sögn frá sjálf­boða­liðum sem taka á móti gestum.

11. Tónlistarhátíð innan um kríugarg

Margir les­endur eiga eflaust ljúfar minn­ingar af kríug­argi og sól­skini frá Flatey á Breiða­firði. Eyjan er nán­ast eins og tíma­kista og þar er takt­ur­inn í öllu á ein­hvern hátt hæg­ari. Tón­list­ar­menn­irnir sem troða upp á Sum­ar­há­tíð Hótels Flat­eyjar í sumar eru aftur á móti ekki feimnir við að slá takt­inn af krafti. Sum­ar­há­tíðin er orðin að árvissum við­burði og er árið í ár engin und­an­tekn­ing en fjöl­breyttur hópur tón­list­ar­fólks leikur þar ljúfa tóna um hverja helgi fram í miðjan ágúst.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SK
    Steinar KJARTANSSON skrifaði
    Það væri nú gott að víxla 9 og 10 svo allt sé rétt ;)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár