Fjármálaráðherra ekki kunnugt um bréfaskipti um Lindarhvol

Í apríl sendi starfs­maður fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins bréf til for­seta Alþingis þar sem lagst var gegn afhend­ingu grein­ar­gerðar um Lind­ar­hvol. Bréfið var sent án vit­undar og vilja ráð­herra.

Fjármálaráðherra ekki kunnugt um bréfaskipti um Lindarhvol
Fjármála- og efna­hags­ráð­herra Það er „sann­gjarnt og eðli­legt“ að sjón­ar­mið Lind­ar­hvols hafi fengið að koma fram í bréfi sem sent var frá starfs­manni fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins til for­seta Alþingis. Ráðherra hafði enga aðkomu að bréfa­skipt­unum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra var ekki kunn­ugt um bréf sem sent var úr ráðu­neyti hans til for­seta alþingis þar sem lagst var gegn birt­ingu á grein­ar­gerð um Lind­ar­hvol. Bréfið sem um ræðir var sent þann 20. apríl af starfs­manni ráðu­neyt­is­ins sem var fyr­ir­svars­maður Lind­ar­hvols ehf. en bréfið sneri að grein­ar­gerð fyrrum setts rík­is­sak­sókn­ara um Lind­ar­hvol frá árinu 2018. Þetta kemur fram í svari ráð­herr­ans við fyr­ir­spurn frá Jóhanni Páli Jóhanns­syni, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar.

Fyrri liður fyr­ir­spurnar Jóhanns Páls er svohljóð­andi: „Var bréf sem starfs­maður fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sendi for­seta Alþingis hinn 20. apríl 2022 vegna fyr­ir­hug­aðrar birt­ingar á grein­ar­gerð setts rík­is­end­ur­skoð­anda um Lind­ar­hvol ehf. sent með vit­und og vilja ráð­herra?“ Svar ráð­herr­ans við spurn­ing­unni er stutt og laggott: „Nei.“

Síðari liður fyr­ir­spurn­ar­innar snýr að skoðun ráð­herr­ans á bréf­inu og hann spurður hvort hann sé …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Lindarhvols-sölu-RÁNIÐ er umtalsvert stærra og meira en Íslandsbanka-sölu-RÁNIÐ sem er samtals 50-milljarðar (bæði uppboðin) rökrétt er að álykta samkvæmt söluráninu á Klakka ehf sem var metinn á 1-milljarð en seldur fyrir 500-milljónir (hálfvirði) að Lindarhvols-sölu-RÁNIÐ sé 200-milljarðar. Eignir Lindarhvols voru metnar á meira 400-milljarða.
    1
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Mér virðist að málið snúist um eina spurningu: Er þessi greinargerð vinnuplagg eða ekki? Eftir því sem skrifað hefur verið var Sigurður Þórðarson skipaður ríkisendurskoðandi í þessu máli vegna vanhæfis starfandi ríkisendurskoðanda. Þarmeð hefur hann væntanlega vald til að skrifa lokaskýrslu. Ég efast um að ráðherra, nýr ríkisendurskoðandi eða forseti alþingis hafi vald til að vanvirða þessa skýrslu með því að kalla hana "vinnuplagg". Á endanum verða dómstólar að kveða hér um.
    3
  • SVB
    Skjöldur Vatnar Björnsson skrifaði
    Lindarhvolsmálið já. Hann er eins og höfuð paurarnir í dóp-innflutningunum. Sér sjálfur um að hann viti ekkert og sé alltaf saklaus.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár