Myndlyklum í útleigu fækkað um fimmtung á fimm árum

Þeim sem leigja mynd­lykla fyr­ir nokk­ur þús­und krón­ur á mán­uði af fjar­skipta­fyr­ir­tækj­um til að horfa á sjón­varp fækk­aði um fimm þús­und í fyrra. Fleiri og fleiri kjósa að horfa á sjón­varp í gegn­um app. Tvö fyr­ir­tæki bjóða upp á mynd­lykla­leigu, Sím­inn og Voda­fo­ne.

Myndlyklum í útleigu fækkað um fimmtung á fimm árum
Áhorf Í dag er hægt er að horfa á sjónvarp með ýmsum hætti, meðal annars í gegnum myndlykil eða app. Mynd: Shutterstock

Fjöldi þeirra sem er með sjón­­­varp yfir IP-­­­net, sem er það sjón­­­varp sem miðlað er í gegnum ADSL- eða ljós­­­leið­­­ara­teng­ingar í mynd­lykla sem leigðir eru af fjar­­­skipta­­­fyr­ir­tækj­um var 79.968 í lok síðasta árs. Þeim sem velja að horfa á sjónvarp í gegnum slík tæki hefur fækkað um 21.186 á fimm árum, eða um 21 prósent. 

Þetta má lesa út úr nýjustu tölfræðiskýrslu Fjarskiptastofu um íslenska fjarskiptamarkaðinn sem sýnir stöðu hans í lok árs 2022. 

Tvö fyr­ir­tæki bjóða upp á mynd­lykla til að horfa á sjón­­varp yfir IP-­­net, Sím­inn og Vodafone, sem er hluti af Sýnarsamstæðunni

Í byrjun árs 2017 voru 56.534 áskrifendur sem leigðu myndlykla hjá Símanum , og 44.620 hjá Vodafone. Í lok árs í fyrra hafði þeim áskrifendum Símans sem það gerðu fækkað um 8.352 á fimm árum, eða um 14,8 prósent. Fækkunin hefur orðið enn meiri hjá Vodafone, sem hefur misst …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Sáu sárin sem hún faldi
3
Viðtal

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.
Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
4
Innlent

Fleiri til­vik og há­ar upp­hæð­ir í fjár­drátt­ar­máli lög­manns­ins

Lög­mað­ur­inn Guð­rún Björg Birg­is­dótt­ir starf­aði sem ráðs­mað­ur fólks sem svipt hafði ver­ið fjár­ræði og er sök­uð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólaf­ur Hauks­son hér­aðssak­sókn­ari seg­ir meint­an fjár­drátt henn­ar vera til með­ferð­ar hjá embætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár