Kæri þingmaður,
það er ljóst að gríðarlegur þrýstingur áfengisiðnaðarins hefur náð yfirhöndinni í meðferð frumvarpa um breytingar á áfengislögum. Á lokadögum Alþingis í júní í fyrra var samþykkt heimild til smásölu frá brugghúsum, hluti af breytingum sem kollvarpa okkar áfengissölukerfi sem samfélagið hefur staðið sátt um í áratugi. Nú hefur Costco opinberlega brotið íslensk lög með því selja áfengi úr verslun sinni til almennings og það ótrúlega hefur gerst að dómsmálaráðherra fagnar að lög séu brotin í landinu. Costco, sama fyrirtæki og eyddi meira en 22 milljón dollurum til að hafa áhrif á kosningar um ríkiseinkasölu á sterku áfengi í Washington fylki árið 2012.
Hér á Íslandi er verið að auka aðgengi að áfengi þvert á ráðleggingar sérfræðinga hérlendis og erlendis í forvörnum. Hér hefur ekki farið fram raunverulegt lýðheilsumat eða kallaðir til ráða þeir sem vinna mest í forvörnum á Íslandi. Aðgerðir sem þessar brjóta í bága við alls kyns sáttmála sem þingmenn og íslensk stjórnvöld hafa samþykkt og samfélagið vill standa á bakvið.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO sem yfirvöld á Íslandi hampa sem góðum ráðgjöfum í heilbrigðismálum, samþykkti árið 2022 að draga úr áfengisneyslu um 20% fyrir árið 2030. 75. fundur Alþjóðaheilbrigðisþingsins (WHA75) samþykkti sögulega ákvörðun um alþjóðleg viðbrögð við skaða af völdum áfengisiðnaðarins. WHA75 samþykkti einróma alþjóðlega áfengisaðgerðaáætlun WHO (2022-230) og styður þar með yfirgripsmikla áætlun - forgangsverkefni í lýðheilsu - með metnaðarfullum markmiðum og aðgerðum gegn áfengi. Þar var einnig harmað hve forvarnir hafa veikst síðustu 10 ár.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin á Evrópusvæðinu samþykkti síðan rammaáætlun um aðgerðir í áfengismálum til 2025, þar sem ríki í Evrópu eru hvött til að draga úr heildarnotkun áfengis um 10% á næstu tveimur árum með öllum tiltækum ráðum.
Fulltrúar Íslands samþykktu báðar þessar ákvarðanir. Eitt af því sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með er einkasala ríkisins á áfengi.
Hvað ætlar þú gera? Vinna með eða á móti Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni?
Barnaréttarnefnd sameinuðu þjóðanna birti þann 9. júní 2022, tilmæli sín til íslenska ríkisins um nauðsynlegar úrbætur sem miða að því að tryggja áframhaldandi innleiðingu Barnasáttmálans á öllum sviðum samfélagsins. Þar kemur skýrt fram að „styrkja þarf ráðstafanir til að koma í veg fyrir og bregðast við útbreiðslu vímuefna-, áfengis- og tóbaksnotkunar unglinga“.
Hvað ætlar þú gera? Vinna með eða móti Barnasáttmálanum (sem er hluti af íslenskum lögum)?
Ísland er aðili að Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Ljóst er að áfengisneysla hefur neikvæð áhrif og hindrar að minnsta kosti 14 af 17 markmiðunum og 52 af 169 undirmarkmiðum.
Hvað ætlar þú gera? Vinna með eða gegn Heimsmarkmiðunum?
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni þá stuðlar áfengisneysla að 3 milljónum dauðsfalla á hverju ári á heimsvísu sem og fötlun og slæmri heilsu milljóna manna. Á heildina litið er neysla áfengis ábyrg fyrir 5,1% af sjúkdómabyrði á heimsvísu.
Hvað ætlar þú gera? Auka eða minnka sjúkdómabyrðina?
Áfengi er helsti áhættuþátturinn fyrir ótímabær dauðsföll og örorku meðal þeirra sem eru á aldrinum 15 til 49 ára (í heiminum) og er orsök 10% allra dauðsfalla í þessum aldurshópi. Sumir þingmenn vilja lækka áfengiskaupaaldurinn úr 20 árum í 18 ár. Það myndi auka líkurnar á verða fíkn að bráð og eykur sjúkdómabyrði áfengis.
„Hvað ætlar þú gera?“
Áfengi er orsakavaldur í yfir meira en 200 sjúkdóma- og slysaflokkum og stór áhrifaþáttur í ósmitnæmum sjúkdómum (NCD).
Alþjóðakrabbameinsrannsóknastofnunin staðfesti árið 1988: „Áfengir drykkir eru krabbameinsvaldandi fyrir mannfólk.“ Þetta var árið áður en bjór var leyfður á Íslandi. Áfengi veldur krabbameini í munnholi, munnkoki, barkakýlishluta koks, vélinda, ristli, endaþarmi, barkakýli, lifur og gallrás lifrar, sem og í brjóstum. Ekkert magn áfengisneyslu er nógu lítið til að vera öruggt þegar kemur að krabbameini. Á heimsvísu má rekja 4,2% allra dauðsfalla af völdum krabbameins til áfengis. Um 50 % allra áfengistengdra krabbmeina er hjá fólki sem neytir ekki mikils áfengis.
Hvað ætlar þú að leggja af mörkum til baráttunnar gegn krabbameini? Eða ætlar þú að auka aðgengi að krabbameinsvaldandi vökva?
Öll neysla áfengis er skaðleg og eftir því sem heildarneysla á áfengi í þjóðfélagi vex, þá vex heildarskaðinn. Síðan bjórinn var leyfður á Íslandi, hefur áfengisneysla aukist um 90% og heildarskaðinn aukist.
Hvað ætlar þú gera? Auka heildarneysluna og heildarskaðann enn meira eða?
Á Evrópusvæðinu deyja næstum milljón manns árlega vegna áfengisneyslu enda er mest neytt af áfengi þar. Tíunda hvert dauðsfall þar er vegna áfengis. Vegna öflugra forvarna á Íslandi hefur neysla áfengis verið minni en í Evrópu, einkum áður en bjórinn var leyfður og því heildarskaðinn minni. Áður sást varla skorpulifur en tilfellum fer sífjölgandi vegna bjórdrykkju. Er markmiðið að ná Evrópu í áfengisneyslu og að 10 % deyi hér á landi vegna áfengis? Það væru 220 dauðsföll á ári á Íslandi vegna áfengis.
Samþykkir þú það? Nýjasta kosningaslagorðið er kannski - Fleiri fyrr í gröfina!
Lítum á kostnaðinn vegna áfengisneyslu fyrir þjóðfélagið. Áfengistengdur skaði bitnar líka á öðrum. Heilsufarstjónið er aðeins hluti af því heildartjóni sem áfengi veldur. Tjón af völdum áfengis snertir ekki aðeins þá sem nota áfengi heldur einnig þá sem eru í kringum þá, fjölskyldumeðlimi, vini og vandamenn, vinnufélaga og ókunnugt fólk á götunni. Sveitarstjórnir þurfa að reikna með auknum kostnaði vegna aukinnar neyslu. Samfélagslegur kostnaður vegna áfengisneyslu á Íslandi er yfir 150 milljarðar á ári. Vilt þú auka þennan kostnað eða minnka hann?
Í Noregi er kostnaðurinn 100 milljarðar norskar krónur og í Þýskalandi er kostnaðurinn 57 milljarðar evra á ári. Til samanburðar þá fóru 47 milljarðar evra í varnarmál í Þýskalandi árið 2021.
Við viljum benda á gríðarlegt tap fyrirtækja vegna áfengisneyslu. Áfengisneysla veldur fjarvistum frá vinnu og vinnu án einbeitingar. Í Bretlandi er talið að allt að 89.000 manns mæti á hverjum degi í vinnuna með timburmenn eða undir áhrifum áfengis. Efnahagslegi kostnaðurinn er allt að 1,4 milljarði punda. Rannsóknir á Nýja-Sjálandi, meta að tap fyrirtækja þar í landi vegna áfengisneyslu starfsmanna samsvari 5 vinnudögum á ári á hvern einasta starfsmann.
Hvað ætlar þú gera? Auka eða minnka arðsemi íslenskra fyrirtækja?
Sveitastjórnir og ríkisvaldið þurfa nú þegar bera tjónið af áfengisneyslu. T.d., vegna ofbeldis, heimilisofbeldis, ofbeldis gagnvart börnum. Umferðarslysa. Og svo framvegis.
Hvað ætlar þú gera? Auka samfélagslegan kostnað sveitarfélaga eða?
Brugghúsin á Íslandi eru lítið tannhjól í spilverki hins alþjóðalega áfengisiðnaðar. Þau leggja sinn skerf fram til skaðans sem áfengi veldur bæði hér og á heimsvísu.
Um 200 manns vinna í þessum brugghúsum en biðlistar hjá SÁÁ er nú yfir 500 manns.
Hvað ætlar þú gera? Auka aðgengi að áfengi og lengja biðlistana eða?
Frændur okkar, Írar, hafa frá 2018 bætt forvarnir sínar og hert áfengislöggjöf sína skref fyrir skref. Nú í maí, samþykkti írska þingið að það verði skylda að hafa viðvörunarmiða á áfengisvörum. Þar kemur fram: Áfengisneysla veldur lifrarsjúkdómum, tákn um hættuna að neyta áfengis á meðgöngu, og bein tengsl áfengis og banvæns krabbameins. Þessi löggjöf er studd af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, og samþykkt af Evrópusambandinu og Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Þetta er fyrsta löggjöf sinnar tegundar í heiminum.
Hvað ætlar þú gera? Sjá til þess að Ísland verði land númer tvö?
Áfengisiðnaðurinn á Íslandi hamrar á að áfengi sé (viðskipta)frjálst og hömlulaust í útlöndum en sannleikurinn er sá að víða eru hömlur á áfengi og víða verið að herða þær. Og við erum að verða eftirbátar Íra í áfengisvörnum.
Áfengisauglýsingar á samfélagsmiðlum eru bannaðar í Litháen, Finnlandi og Noregi. Áfengisiðnaðurinn reynir að brjóta lögin en það er þá stjórnvalda að standa í fæturnar. Heilbrigðisráðherra eða einhver ráðherra með bein í nefinu þarf bara að kalla Meta (Facebook, Instagram) á teppið og tilkynna hvaða lög gilda hér á landi. Nýverið féll dómur í Frakklandi gegn Meta vegna áfengisauglýsinga áhrifavalda á Instagram sem brjóta gegn áfengisauglýsingabanni, sem þau lög ganga undir nafninu, Loi Evin, og voru sett 1991.
Hvað ætlar þú gera? Sjá til að þess að ráðherra standi upp?
Íslenska leiðin í forvörnum er orðin útflutningsvara og nálgun sem mörg ríki hafa tekið upp en hluti af henni er verndandi löggjöf með höftum á aðgengi að áfengi. Styður þú íslenska módelið?
Það er misjafnt hvað menn telja áhættuhópinn á því að verða fíkn að bráð stóran. Aðalatriðið er að fíknefnaiðnaðurinn (sem áfengisiðnaðurinn er hluti af) vill að sem flestir, helst allir prufi, því það tryggir að áhættuhópurinn prufi og falli. Sá er hólpinn sem er í áhættuhópnum og prufar aldrei áfengi.
Þjóðverjar tala um að 10% fullorðinna neyti 50% af áfengi. Það þýðir að annað hvert glas af áfengi er er keypt af fólki með áfengisvanda. Bresk rannsókn sýndi að 4% fullorðinna neytir 28% af seldu áfengi og er 23% af tekjum áfengisiðnaðarins. Sem sýnir að að viðskiptamódel áfengisiðnaðarins byggir á mjög veiku fólki.
Hvað ætlar þú gera? Auka aðgengi að áfengi eða?
Einkasala ríksins á áfengi er lýðheilsumál og því á ÁTVR að heyra undir heilbrigðismálaráðherra en ekki fjármálaráðherra. Hvað ætlar þú gera í því?
Forvarnir skipta miklu máli en sterk lagaumgjörð er hluti þeirra og er nauðsynleg til að ná árangri. Fjármagn til forvarna hefur farið minnkandi og umtal um áfengi eða önnur vímuefni stýrast allt of mikið af fjármagni í gegnum fjölmiðla. Samfélagið vill samt sem áður ekki í heild sinni auka aðgengi að áfengi því þá mun neyslan aukast.
Við hvetjum þig, kæri þingmaður, til að greiða þitt atkvæði samfélaginu í hag með lýðheilsu að sjónarmiði og ekki styðja aukið aðgengi að áfengi.
Höfundar sitja í stjórn bindindissamtakanna IOGT á Íslandi. Björn Sævar Einarsson er formaður og Aðalsteinn Gunnarsson er framkvæmdastjóri.
Athugasemdir (1)