Dóttir Sigríðar send af Mogganum á landsþing

Bryn­hildur Glúms­dóttir, dóttir Sigríðar Á. Andersen, sótti lands­þing Mið­flokks­ins sem blaða­maður Morg­un­blaðs­ins. Hún tók meðal ann­ars við­töl við sam­starfs­fólk móður sinnar í þing­flokknum.

Dóttir Sigríðar send af Mogganum á landsþing
Þing­flokks­for­maður Sigríður var valin sem nýr þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins á mið­viku­dag. Hún hefur setið á þingi fyrir flokk­inn frá síð­ustu kosn­ingum en áður var hún þing­maður og ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Bára Huld Beck

Bryn­hildur Glúms­dóttir, dóttir Sigríðar Á. Andersen, nýs þing­flokks­for­manns Mið­flokks­ins, var við­stödd lands­þing Mið­flokks­ins sem haldin var á Hilton Reykja­vík Nordica hót­el­inu um helg­ina. Hún var þó ekki þangað komin sem lands­þings­full­trúi heldur sem blaða­maður Morg­un­blaðs­ins og mbl.is.

Mánu­dag­inn 13. októ­ber birt­ist í Morg­un­blað­inu frétta­skýr­ing titluð „Lúx­usvandi“ hjá Mið­flokks­mönnum eftir Bryn­hildi um þingið þar sem hún fór meðal ann­ars yfir vara­for­manns­slag­inn milli Snorra Mássonar og Ingi­bjargar Dav­íðs­dóttur.

Greint var frá því fyrr í dag að Sigríður hefði verið valin þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins en Bergþór Ólason sagði af sér því emb­ætti nýlega.

Sigríður Á. Andersen bauð sig fyrst fram fyrir Mið­flokk­inn í fyrra en hún hafði áður verið ráð­herra og þing­maður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Dóttir hennar hefur einnig látið til sín taka á sviði Sjálf­stæð­is­flokks­ins en hún sat í stjórn Heimdallar, félags ungra Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, árin 2023-2025.

Mörg dæmi eru um að blaða­menn Morg­un­blaðs­ins taki þátt í stjórn­mála­starfi, en oft­ast tengt Sjálf­stæð­is­flokknum. Davíð …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár