Heimaskólinn ákveðin forréttindi

Systkini í Mos­fellsbæ fóru í hefð­bund­inn grunn­skóla í haust eftir að hafa verið í heima­skóla síð­ustu ár. Sólveig Svav­ars­dóttir, móðir þeirra, sem sinnti heima­kennsl­unni, segir þetta hafa verið dýr­mæta reynslu fyrir alla fjöl­skyld­una. Ekkert sveit­ar­fé­lag hefur veitt heim­ild til heima­kennslu á yfir­stand­andi skóla­ári, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­inu.

Heimaskólinn ákveðin forréttindi
Yfir skóla­bók­unum Sólveig með börn­unum yfir skóla­bók­unum í eld­hús­inu. Nú er þeim kafla lokið að þau séu í heima­skóla heldur eru komin í hefð­bund­inn grunn­skóla. Mynd: Golli

Þegar nýtt skólaár hófst í haust sett­ust tvö börn í Mos­fellsbæ á skóla­bekk með jafn­öldrum sínum eftir að hafa verið í heima­kennslu síð­ustu ár. For­eldrar þeirra, Sólveig Svav­ars­dóttir og Jón Heiðar Hann­es­son, ákváðu árið 2020 að prófa þessa leið sem er mjög sjald­gæf á Íslandi. Þau fengu und­an­þágu frá sveit­ar­fé­lag­inu til að vera í heima­kennslu fyrir börnin en Sólveig er kenn­ara­menntuð. Nú eru börnin hins vegar komin í hefð­bund­inn grunn­skóla. Hún segir að heima­kennslan hafi verið bæði gef­andi og krefj­andi, en fjöl­skyldan sé sátt við að þessum kafla sé lokið. „Við ákváðum alltaf að meta stöð­una á hverju ári og fylgja hjart­anu. Þegar dóttirin bað um að fara í skóla sáum við að rétti tím­inn var kom­inn. Sonurinn var minna spenntur en við töldum tíma­bært að hann færi inn áður en ung­linga­deildin tæki við,“ segir hún.

Ákvörð­unin um að hefja heima­kennslu var tekin af for­vitni en líka út frá …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár