Heimsótti Ísland og flutti hingað tveimur vikum síðar

Dana Polishchuk kom í heim­sókn til Íslands síð­asta sumar og tók í kjöl­farið skyndi­á­kvörðun um að kveðja stríðs­hrjáða Úkraínu og setj­ast að í Reykja­vík. Hún nýtur þess að hér sé rólegt og finnst ekki eins erfitt að læra íslensku eins og oft er talað um.

Heimsótti Ísland og flutti hingað tveimur vikum síðar
Dana Polishchuk Kom í heim­sókn til Íslands og flutti svo tveimur vikum síðar til Reyja­víkur frá stríðs­hrjáðum Kænu­garði. Mynd: Esther Jónsdóttir

Það er stór munur á því að búa hér og í Úkraínu. Þetta er miklu minna land, hljóð­látt og rólegt. Mér líkar það. Úkraína – fyrir utan allt sem er að ger­ast núna – er stórt land og mjög hávaða­samt. Þar er margt fólk og mikið í gangi. Mig lang­aði að flýja stríðið en líka hægja smá á mér. 

Ég tók mjög skjóta ákvörðun um að flytja til Íslands. Ég heim­sótti vin­konu mína hingað í ágúst í fyrra og hún sagði mér frá áætlun fyrir flótta­fólk og mér lík­aði landið þannig ég sagði bara: „Af hverju ekki?“ Ég fór heim og pakk­aði í töskur og tveimur vikum síðar var ég flutt hingað frá Kænu­garði. Mér leið eins og þetta ætti smá að vera svona. 

Mig lang­aði aldrei að flytja frá Úkraínu en vildi alltaf fara að ferð­ast. En þegar ég kom í heim­sókn hingað og breytti um umhverfi …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Alltaf er best heima þótt einhverjum hafi orðið þau mistök með að segja heimkst er heima alið barn en sitt sýnist hverjum eins og alltaf
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár