Þorgerður Katrín beygði af í pontu þegar hún minntist systur sinnar

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir beygði af í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag þegar hún minnt­ist á starf­semi Ljóssins í tengslum við systur sína sem lést fyrir þremur árum.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra klökkn­aði þegar hún svar­aði Jens Garðari Helga­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi fyrr í dag.

Spurning þing­manns­ins sneri að því hvort og hvernig Viðreisn hygð­ist koma á gjald­frjálsri sál­fræði­þjón­ustu en að ljóst væri af orðum fjár­mála­ráð­herra að ekk­ert svig­rúm væri til að „auka fjár­magn í þjóð­þrifa­mál eins og til dæmis Ljósið eða Fjöl­skyldu­hjálp.“

Mikil verðmæti í Ljósinu

Í svari sínu tók utan­rík­is­ráð­herra ein­dregið undir með Jens Garðari um mik­il­vægi Ljóssins og starf­semi þess. 

„Það er ótrú­lega mikil verð­mæti sem eru þar unnin í því starfs­fólki og þeirri starf­semi og við sem eigum aðstand­endur. Það eru akkúrat þrjú ár í dag síðan að Kaja systir fór,“ sagði Þor­gerður Katrín og beygði af.

Karitas H. Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi skrif­stofu­stjóri í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu og systir Þor­gerðar, lést 16. októ­ber 2022. Hún var 62 ára.

„Svo á maður vin­konur sem eru þar,“ sagði Þor­gerður Katrín og bætti við að henni þætti mik­il­vægt að heil­brigð­is­ráð­herra skyldi und­ir­strika það að passað yrði upp á Ljósið „því við vitum alveg út á hvað sú starf­semi gengur.“

Samningar náðst milli Sjúkratrygginga og Ljóssins

Nokkuð hefur verið rætt um Ljósið að und­an­förnu en nýlega var greint frá því að fjár­fram­lag rík­is­ins til Ljóssins, end­ur­hæf­ing­ar­mið­stöðvar fyrir krabba­meins­greinda, yrði á næsta ári 200 millj­ónum lægra en í ár. Erna Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stýra Ljóssins, sagði að yrði ákvörð­un­inni ekki breytt blasti nið­ur­skurður við.

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sætti nokk­urri gagn­rýni, meðal ann­ars frá for­manni Vinstri grænna, fyrir að hafa kallað Ljósið „ákveðin sam­tök úti í bæ“ þegar hún var spurð út í afstöðu sína til nið­ur­skurð­ar­ins. Sagði hún að henni þætti starf sam­tak­anna mik­il­vægt en vildi að fram­lög til þeirra væru tryggð með lang­tíma­samn­ingum en ekki ein­skipt­is­fram­lögum hverju sinni.

Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra greindi frá því fyrr í óund­ir­búna fyr­ir­spurn­ar­tím­anum í dag að samn­ingar hefðu náðst á milli Sjúkra­trygg­inga Íslands og Ljóssins og að ekki væri úti­lokað að sam­tök­unum væri veitt við­bót­ar­fjár­magn. 

Ljósið leiðréttir málflutning Ölmu

Ljósið sendi leið­rétt­ingu á fram­setn­ingu heil­brigð­is­ráð­herra í frétta­til­kynn­ingu til fjöl­miðla í kjöl­far orða hennar um að samn­ingar hefðu náðst milli Ljóssins og SÍ.

„Hið rétta er að und­ir­rit­aður var skamm­tíma­samn­ingur út árið 2025 fyrir það fjár­magn sem þegar hafði verið kveðið á í fjár­lögum þessa árs.“ Eftir standi þó að engin lang­tíma­lausn hafi enn náðst um fjár­mögnun starf­sem­innar eftir árið 2025.

„Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2026 er áfram gert ráð fyrir 283 millj­ónum króna fram­lagi til Ljóssins — sem er veru­leg lækkun frá því sem þarf til að tryggja stöðugt rekstr­ar­um­hverfi fyrir þjón­ust­una. Ljósið hefur áréttað mik­il­vægi þess að fá lang­tíma­samn­ing við Sjúkra­trygg­ingar Íslands þannig að þjón­ustan við krabba­meins­greinda ein­stak­linga geti haldið áfram án óvissu og trufl­ana. Við erum þó þakk­lát fyrir orð heil­brigð­is­ráð­herra að Ljósið gæti fengið við­bót­ar­fjár­magn og vonum inni­lega að það verði að veru­leika.“


Fréttin hefur verið upp­færð með sjón­ar­miðum Ljóssins.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár