„Við leyfum Íslandi að vera meðlimur“

Jens Stol­ten­berg, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Nató, segir frá sam­tali hans við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta um Ísland.

„Við leyfum Íslandi að vera meðlimur“
Erfitt sam­band Banda­ríkja­for­seti og fram­kvæmda­stjóri NATO á árs­fundi 2019. Mynd: AFP

onald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, setti spurn­ing­ar­merki við veru Íslands í varn­ar­banda­lag­inu NATO á fundi með fram­kvæmda­stjóra þess, Jens Stol­ten­berg, á fyrsta fundi þeirra í apríl 2017.

Sol­ten­berg, sem er fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Noregs, núver­andi fjár­mála­ráð­herra og var fram­kvæmda­stjóri Nató frá 2014 til 2024, segir frá þessu í nýút­kominni ævi­sögu sinni.

„Fyrir Trump voru varnar­út­gjöld aðild­ar­ríkja NATO mik­il­væg­asta málið,“ segir Stol­ten­berg, í frá­sögn sem birt hefur verið á Guardian. „Mig lang­aði að hann liti banda­lagið jákvæð­ari augum og ég hafði með mér línu­rit sem sýndi að útgjöldin væru vax­andi. Trump hafði mestar áhyggjur af því að ein­ungis fimm aðild­ar­ríki hefðu náð mark­mið­inu um að verja 2% af vergri lands­fram­leiðslu (VLF) til varn­ar­mála. Ég benti á að nokkur ríki væru mjög nærri því, og sex eða sjö lík­leg til að ná mark­mið­inu á næst­unni. Svo var það Ísland: þar er eng­inn her, þannig að landið myndi aldrei verja 2% af VLF til varn­ar­mála. Því væru þetta í reynd fimm af 27 ríkjum sem hefðu náð mark­mið­inu, ekki fimm af 28, sagði ég og hugs­aði með mér að ég hlyti að hljóma dálítið nör­da­lega með allar þessar tölur,“ lýsir Stol­ten­berg.

Samkvæmt lýs­ingu hans greip Trump Ísland á lofti. 

„En þetta vakti athygli Trump, þó ekki með þeim hætti sem ég hafði ætlað. „Hvað viljum við þá með Ísland?“ Áður en ég náði að segja nokkuð til við­bótar kom Jim Mattis mér til hjálpar og útskýrði hve mik­il­vægar her­stöðvar NATO þar væru fyrir kaf­báta, skip og flug­vélar banda­lags­ins: „Herra for­seti, gott er að hafa þær ef maður vill elta uppi rúss­neska kaf­báta.“ Trump hugs­aði sig um and­ar­tak. „Jæja, þá leyfum við Íslandi að vera áfram með­limur,“ sagði hann.“

Hótaði að yfirgefa NATO

Stol­ten­berg segir frá sím­tali sínu með Trump árið 2018, þar sem for­set­inn fárað­ist yfir því að Þjóð­verjar verðu aðeins 1% af þjóð­ar­fram­leiðslu sinni til varn­ar­mála. Trump sagði að Angela Merkel Þýska­landskansl­ari hefði hlegið þegar Trump krafði hana um að ná 2% mark­inu. Banda­ríkin legðu hins vegar fram 4% og það væri ósann­gjarnt fyrir skatt­greið­endur.

„Heyrðu, ef við förum, þá förum við. Þið þurfið á NATO að halda, sár­lega. Við þurfum ekki á NATO að halda,“ sagði for­set­inn við Stol­ten­berg, í end­ur­sögn þess síð­ar­nefnda.

Áhyggjur Stol­ten­bergs virt­ust ætla að raun­ger­ast á leið­toga­fundi NATO, 12. júlí 2018, þegar Trump lýsti því yfir að hann ætl­aði að yfir­gefa fund­inn vegna þess aðild­ar­ríkin ætl­uðu ekki að auka fram­lag sín til varn­ar­mála í 2% af þjóð­ar­fram­leiðslu strax á því ári. 

Kjósa
61
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár