Trump fór fram á að Netanjahú fengi náðun

Rétt­ar­höld standa yfir vegna spill­ing­ar­á­kæru á hendur Benjamín Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, en Banda­ríkja­for­seti segir að sér líki við hann og kallar eftir náðun.

Trump fór fram á að Netanjahú fengi náðun
Miklir mátar Donald Trump og Benjamín Net­anjahú til­kynntu sam­eig­in­lega um til­lögur Trumps til vopna­hlés á Gasa fyrr í mán­uð­inum. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti gerði hlé á ræðu sinni fyrir Knesset, ísra­elska þing­inu, til þess að fara fram á náðun yfir for­sæt­is­ráð­herr­anum Benjamín Net­anjahú, sem hefur í áraraðir verið rann­sak­aður og ákærður vegna spill­ing­ar­mála.

Trump beindi orðum sínum að Isac Herzog, for­seta Ísraels. „Ég er með hug­mynd, herra for­seti. Hvers vegna náðarðu hann ekki? Náðaðu hann. Koma svo.“

„Þetta er ekki í ræð­unni, eins og þið áttið ykkur á. En það vill svo til að mér líkar við þennan herra­mann“. 

Ísra­elska lög­reglan hóf rann­sókn á Net­anjahú á grund­velli gruns um fjár­svik, umboðs­svik og mútu­greiðslur árið 2016, sem tengj­ast honum og nánum póli­tískum sam­herjum hans á fjórða og fimmta tíma­bili hans sem for­sæt­is­ráð­herra. 

Málið er nú rekið fyrir hér­aðs­dómi í Jer­úsalem. Áður var for­veri Net­anja­hús, Ehud Olmert, dæmdur í sex ára fang­elsi vegna mút­ur­greiðslna. 

Í ræðu sinni fyrir Knesset lýsti Net­anjahú Trump sem „mesta vini“ sem …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Trump kemur fram sem alheimsforseti. Hann og Neti eiga það báðir sameiginlegt að hafa nýtt sér aðstöðuna til að maka eigin krók.
    1
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Spilling er skelfileg og skiptir engu máli hvar hún er stunduð. Hvernig dettur þessum manni í hug að skipta sér af starfi dómstóla annars lands? Hann telur að sér séu allar leiðir greiðar.
    Donald Trump er sami maðurinn og vill veikja starf Sameinuðu þjóðanna. Það hefur hann þegar gert með þvi að BNA taka ekki lengur þátt i að greiða sinn hluta við reksturinn á WHO og UNESCO. Donald Trump vill leggja ofurkapp á hernaðaruppbyggingu til að hámarka arðsemi hergagnaframleiðslu sem aftur hefur áhrif á að traðkað sé á mannréttindum og lýðræði. Hann vill helst mestu ráða sjálfur.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár