Efast að niðurfelling gjalda skili sér: „Ég treysti ekki olíufélögunum“

Þing­menn­irnir Ragnar Þór Ing­ólfs­son og Vil­hjálmur Árnason segj­ast ekki treysta olíu­fé­lög­unum til að lækka verð sam­hliða hækkun kíló­metra­gjalds.

Efast að niðurfelling gjalda skili sér: „Ég treysti ekki olíufélögunum“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins, og Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, treysta olíu­fé­lög­unum ekki til þess að lækka olíu­verð í sam­hliða hækkun kíló­metra­gjalds­ins. 

Þetta kom fram í máli þeirra í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun, þar sem þing­menn­irnir tók­ust á um það hvort rík­is­stjórnin vægi að fjöl­skyldum í land­inu. 

Í þætt­inum voru gjöld á fjöl­skyldur til umræðu. Meðal ann­ars kíló­metra­gjaldið sem Vil­hjálmur hefur gagn­rýnt vegna þess sem hann segir að hækki kostnað fyrir fjöl­skyldur, einkum á lands­byggð­inni, sem treysti á bíl til dag­legra ferða.

Olíufélögin muni reyna að hirða mismuninn

Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2026 stefnir rík­is­stjórnin að því að taka upp nýtt kíló­metra­gjald á allar bif­reiðar með tekju­hækkun af öku­tækjum og elds­neyti um 7,5 millj­arð króna. Það er í raun ekki ný hug­mynd, því síð­asti stjórn­ar­meiri­hluti boð­aði það sama, og studdi Vil­hjálmur þá breyt­ing­una.

Hann seg­ist ekki hafa gert sér grein fyrir hversu flókið og umfangs­mikið verk­efnið …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Satt ekki treystandi, best að hreyfa ekki við þessu og ekkert km bull, hægt að taka þessa 7 millj td í nýjum bankaskatti....þ e ekki meiri skatta á almenning og bíla
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Enginn er bróðir í annars leik
    0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Skrítið, að treysta ekki olíufélögunum.
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Ef þessi breyting skilar sér EKKI í samsvarandi lækkun á dæluverði eldsneytis eins og þingmennirnir hafa (réttilega í ljósi sögunnar) áhyggjur af, getum við neytendur þá treyst á liðsinni ríkisvaldsins við að knýja fram slíka lækkun eða tilsvarandi bætur frá olíufélögum? Mér finnst að þeirri spurningu verði að svara áður en breytingin nær fram að ganga.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár