Viðsnúningur í fjölskyldufyrirtæki Guðrúnar

Kjörís, ísgerð í eigu Guðrúnar Haf­steins­dóttur, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og systk­ina hennar, skil­aði tæp­lega ell­efu millj­óna króna hagn­aði árið 2024 eftir 41,5 millj­óna tap árið áður. Við­snún­ingnum er þakkað hag­ræð­ingu og nýjum vél­bún­aði. Syst­ur­fé­lag hagn­að­ist um 7 millj­ónir.

Meðeigandi
Með­eig­andi Guðrún, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fyrr­ver­andi ráð­herra, á Kjörís með systk­inum sínum. Hún var um ára­bil starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins og hefur stundum verið kölluð ísdrottn­ingin vegna tengsla sinna við fyr­ir­tækið. Mynd: Golli

Fimmtíu millj­óna króna við­snún­ingur varð á rekstri Kjöríss á síð­asta ári og skil­aði fyr­ir­tækið hagn­aði upp á tæpar ell­efu millj­ónir árið 2024. Árið áður tap­aði Kjörís 41,5 millj­ónum króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi ísgerð­ar­innar fyrir árið 2024. 

Félagið er í jafnri eigu Guðrúnar Haf­steins­dóttur, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks, Aldísar Haf­steins­dóttur, sveit­ar­stjóri Hruna­manna­hrepps, og tveggja bræðra þeirra. Þrjú systk­in­anna mynda stjórn Kjöríss en Guðrún er sú eina sem ekki á þar sæti. 

Stjórn­ar­for­maðurAldís Haf­steins­dóttir, sveit­ar­stjóri Hruna­manna­hrepps, er stjórn­ar­for­maður Kjöríss.

Í árs­reikn­ingi er við­snún­ing­ur­inn skýrður sem árangur af fjár­fest­ingu í nýjum vél­bún­aði og hag­ræð­ingu í rekstri. Með­al­fjöldi starfs­manna umreikn­aður í heils­árs­störf fækk­aði um tvo; úr 51 í 49. 

„Fjár­magns­kostn­aður er tals­verður á liðnu ári en með lægri vöxtum og stöðugra rekstar­um­hverfi verður unnt að lækka þann kostnað. Nýr vél­bún­aður ásamt hag­ræð­ingum í rekstri hefur skilað ágætum árangri og …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Ekki háar tölur miðað við aðrar fréttir af fármála- og fyrirtækjamarkaði.
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    ALLTAF ÁNÆGJULEGT AÐ LESA UM FRETT ÞAR SEM ÖÐRUM GENGUR VEL MEÐ SITT
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár