Hamas fer hamförum á frelsuðu svæðunum

Átta menn teknir af lífi á götum Gaza á meðan Hamas-sam­tökin taka aftur völd á svæð­inu eftir vopna­hlé.

Hamas fer hamförum á frelsuðu svæðunum
Aftökur á götum úti Hamas-sam­tökin gáfu út mynd­band af aftöku á átta ein­stak­lingum sem þau full­yrtu að væru sam­verka­menn Ísraels. Mynd: Skjáskot / Hamas

Hamas-sam­tökin hertu tök sín á rústum borga á Gaza í gær, hófu aðgerðir og tóku af lífi meinta sam­verka­menn Ísraels, á sama tíma og Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hét því að afvopna sam­tökin.

Hamas birti í gær mynd­band á opin­berri rás sinni sem sýndi aftöku átta grun­aðra manna á götu úti. Menn­irnir voru með bundið fyrir augun og krjúp­andi. Vígamenn Hamas köll­uðu þá „sam­verka­menn og útlaga“.

Mynd­bandið, sem virð­ist vera frá mánu­dags­kvöld­inu, birt­ist á sama tíma og vopnuð átök stóðu yfir milli ýmissa örygg­is­sveita Hamas og vopn­aðra palest­ínskra ætt­flokka á svæð­inu, á fimmta degi vopna­hlés milli Hamas og Ísraels sem Banda­ríkin höfðu milli­göngu um.

Norð­ar­lega á svæð­inu hefur vopnuð lög­regla Hamas-stjórn­ar­innar, með svartar grímur, hafið aftur eft­ir­lit á götum úti, í kjöl­far brott­hvarfs ísra­el­skra her­manna.

Þegar rútur með föngum sem sleppt var úr ísra­elskum fang­elsum komu til Gaza á mánu­dag, sáu liðs­menn Ezzedine al-Qassam-sveit­anna, her­sveita Hamas, um mann­fjölda­stjórnun.

Á sama tíma hefur örygg­is­sveit Hamas staðið fyrir aðgerðum gegn vopn­uðum ætt­flokkum og gengjum, sem sum eru sögð njóta stuðn­ings Ísraels.

„Hörð átök brut­ust út – og standa enn yfir – sem hluti af við­leitni til að upp­ræta sam­verka­menn,“ sagði vitnið Yahya, sem bað um að nafn sitt yrði ekki birt að fullu af ótta við hefnd­ar­að­gerðir.

 Sprengingar og handtökur 

Annar íbúi á Gaza, Mohammed, sagði við AFP: „Í margar klukku­stundir í morgun voru hörð átök milli örygg­is­sveita Hamas og með­lima Hilles-fjöl­skyld­unnar.“

Bar­dag­arnir áttu sér stað í Shujaiya, austur af Gazaborg, nálægt hinni svoköll­uðu Gulu línu, en Ísra­els­her heldur enn um helm­ingi Gaza handan hennar.

„Við heyrðum mikla skot­hríð og spreng­ingar og örygg­is­sveit­irnar hand­tóku nokkra þeirra. Við styðjum þetta,“ sagði Mohammed, sem einnig bað um að nafn sitt yrði ekki birt að fullu.

Palest­ínskur heim­ild­ar­maður með þekk­ingu á örygg­is­málum á Gaza sagði við AFP að örygg­is­deild Hamas, nýstofnuð sveit sem nefn­ist „Fæl­ing­ar­sveitin“, stæði að „við­var­andi vett­vangs­að­gerðum til að tryggja öryggi og stöð­ug­leika“.

„Skilaboð okkar eru skýr: Það verður ekk­ert pláss fyrir útlaga eða þá sem ógna öryggi borg­ar­anna,“ sagði hann.

Hermenn hefja skothríð 

Hamas-sam­tökin hafa verið ráð­andi fylk­ing Palest­ínu­manna á Gaza síðan þau sigr­uðu keppi­naut sinn Fatah í vopn­uðum átökum árið 2007. Halda átti þing­kosn­ingar á Gazasvæðinu í maí 2021, en þeim var frestað um óákveð­inn tíma. Skoð­ana­kann­anir höfðu sýnt mikið for­skot Fatah-hreyf­ing­ar­innar. Eftir að átök hófust við Ísrael hafa Hamas-sam­tökin hins vegar mælst með mikið for­skot.

Ísraelar krefj­ast þess að Hamas komi ekki að stjórn Gaza í fram­tíð­inni, skili lík­ams­leifum allra lát­inna gísla og afvopn­ist að lokum.

Benjamin Net­anjahú for­sæt­is­ráð­herra sagði í gær að áætlun Banda­ríkj­anna fyrir Gaza væri „mjög skýr“, að því leyti að eftir að Hamas skil­aði föng­unum myndi hefj­ast „bæði afvopnun og afhern­að­ar­væð­ing.“

„Í fyrsta lagi verður Hamas að leggja niður vopn sín og í öðru lagi viljum við tryggja að engar vopna­verk­smiðjur séu inni á Gaza. Það er ekk­ert vopna­smygl inn á Gaza. Það er afhern­að­ar­væð­ing,“ sagði hann í við­tali við CBS News.

Í 20 punkta áætlun Donalds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, segir að liðs­menn Hamas sem sam­þykkja að „leggja niður vopn sín“ fái sak­ar­upp­gjöf.

„Ef þeir afvopn­ast ekki, munum við afvopna þá“
Donald Trump
Um Hamas-sam­tökin sem stjórna Gazasvæðinu.

„Ef þeir afvopn­ast ekki, munum við afvopna þá,“ sagði Trump við frétta­menn í Hvíta hús­inu degi eftir að hafa heim­sótt Mið­aust­ur­lönd til að fagna vopna­hléinu á Gaza.

„Og það mun ger­ast hratt og kannski með ofbeldi.“

Í skjal­inu, sem heims­veldin sam­þykktu á mánu­dag á leið­toga­fundi í Egypta­landi undir for­mennsku Trumps, segir að Gaza verði afhern­að­ar­vætt og Hamas fái ekk­ert leið­toga­hlut­verk.

Traustvekjandi nærvera

En fyrir marga Palest­ínu­menn sem voru að end­ur­byggja heim­ili sín og halda áfram með líf sitt í gær innan um rústir Gaza var nær­vera víga­manna traust­vekj­andi.

„Eftir að stríð­inu lauk og lög­reglan dreifð­ist um göt­urnar fórum við að finna fyrir öryggi,“ sagði hinn 34 ára gamli Abu Fadi Al-Banna í Deir al-Balah, mið­svæðis á Gaza.

Hamdiya Shammiya, 40 ára, sem flúði heim­ili sitt í norð­ur­hluta Gaza vegna bar­dag­anna til að leita skjóls í borg­inni Khan Yunis í suðri, var sam­mála.

„Guði sé lof að stríðið er loks­ins búið. Við erum farin að anda aðeins,“ sagði hún.

Á meðan Palest­ínu­menn leit­uðu stöð­ug­leika juku ísra­elskar fjöl­skyldur þrýst­ing á að fá lík­ams­leifar lát­inna gísla sem enn er haldið á Gaza til baka.

Bera kennsl á lík

Ísra­els­her sagði að lík­ams­leifar fjög­urra gísla til við­bótar sem haldið var á Gaza hefðu verið fluttar til Ísraels, dag­inn eftir að Hamas afhenti lík fjög­urra ann­arra fanga og sleppti síð­ustu 20 gísl­unum sem voru á lífi.

Í sam­komu­lag­inu var kveðið á um að öllum sem saknað var – lif­andi og látnum – skyldi skilað og hafa fjöl­skyldur gísl­anna og ísra­elskir leið­togar kraf­ist þess að Hamas-sam­tökin standi við það.

Af þeim látnu gíslum sem hefur verið skilað hefur her­inn nafn­greint tvo, Guy Iluz, ísra­elskan rík­is­borg­ara, og Bipin Joshi, land­bún­að­ar­nema frá Nepal.

Síðar greindi Fjöl­skyldu­vett­vang­ur­inn, sem berst fyrir lausn gísl­anna, frá því að hinir tveir væru Yossi Sharabi og Daniel Peretz, liðs­for­ingi í ísra­elska hernum.

„Nú getum við loks­ins bundið enda á martröð­ina sem hófst fyrir rúmum tveimur árum og veitt Yossi þá virðu­legu og ást­ríku útför sem hann á skilið,“ er haft eftir eig­in­konu hans, Niru Sharabi, á vett­vang­inum.

Í Tel Aviv kom fólk saman til að fagna frelsun lif­andi gísla og krefj­ast þess að lík­ams­leifum hinna yrði skilað.

„Ég veit ekki hvað mér á að finn­ast því ég hélt ekki að við myndum upp­lifa þann dag að allir lif­andi gíslar kæmu aftur,“ sagði mót­mæl­and­inn Barak Cohen við AFP.

„En ég sé samt fyrir mér mikla erf­ið­leika við að fá látnu gísl­ana sem eftir eru aftur,“ sagði hann.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Þeir taka af lífi þá sem hafa selt eigið fólk til hins illa óvinar, Ísrael. Það er engin vægð þegar kemur að svikum við eigið fólk. Það er skiljanlegt.
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár