Palestínskur blaðamaður drepinn í átökum á Gaza

Palest­ínski blaða­mað­ur­inn Saleh Aljafarawi var skot­inn til bana á Gaza ein­ungis dögum eftir að Ísrael og Hamas náðu sam­komu­lagi um vopna­hlé. Um helg­ina kom til átaka á milli Hamas og Dughmush-klans­ins í Gaza-borg.

Saleh Aljafarawi, 28 ára palest­ínskur blaða­maður, var skot­inn til bana á Gaza ein­ungis dögum eftir að Ísrael og Hamas náðu sam­komu­lagi um vopna­hlé. 

Samkvæmt Al Jazeera var Aljafarawi skot­inn til bana af með­limum „vopn­aðra borg­ara­legra sveita“ sem eru sagðar tengj­ast Ísrael, þegar hann fjall­aði um átök í Sabra hverf­inu í Gaza-borg sem áttu sér stað um helg­ina.

Frétta­stofan Sanad sem Al Jazeera hefur umsjón með, hefur stað­fest mynd­skeið sem blaða­menn og aðgerða­sinnar birtu og sýndu lík Aljafarawi í vesti merktu Press eða fjöl­miðill í skotti á vöru­bíl. Hans hafði verið saknað frá morgni sunnu­dags.

Aljafarawi varð þekktur fyrir mynd­bandsefni sem hann birti á meðan stríð­inu á Gaza stóð yfir. Þá gerði hann einnig efni á YouTube, meðal ann­ars tón­list sem hann flutti. Wear the Peace, fata­merki sem vill stuðla að mann­rétt­indum, birti í dag mynd­band á Instagram af greftr­un­ar­at­höfn Aljafarawi en þar sést fjöldi …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár