Glitnismenn á barmi endurkomu

Fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitnis, Bjarni Ármanns­son, verður meðal stærstu hlut­hafa í Íslands­banka, gangi sam­runi bank­ans við Skaga eftir. Fjár­fest­inga­fé­lag undir for­ystu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar verður líka stór hlut­hafi. Þeir voru við­skipta­fé­lagar í bank­anum og í REI-mál­inu umdeilda en leiðir skildu um tíma.

Glitnismenn á barmi endurkomu
Banka­stjór­inn Leiðir fjár­fest­anna tveggja, Bjarna og Jóns Ásgeirs, lágu fyrst saman í Fjár­fest­ing­ar­banka atvinnu­lífs­ins á tíunda ára­tugnum en þeir verða meðal stærstu hlut­hafa Íslands­banka gangi sam­runi bank­ans við Skaga eftir. Bjarni var banka­stjóri FBA og varð síðan æðsti stjórn­andi Íslands­banka sem varð á end­anum Glitnir.

Íslands­banki og fjár­mála­fyr­ir­tækið Skagi stefna að því að sam­ein­ast á næstu miss­erum. Verði af sam­run­anum munu margir af þeim sem annað hvort áttu eða stýrðu Glitni banka, fyr­ir­renn­ara Íslands­banka, fyrir banka­hrun snúa aftur í eig­enda­hóp hans. Meðal þeirra sem verða í hópi stærstu eig­enda bank­ans er fyrr­ver­andi banka­stjóri hans.

Jón Ásgeir Jóhann­es­son, einn af aðal­eig­endum og stærstu skuld­urum Glitnis banka fyrir hrun, og Bjarni Ármanns­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri bank­ans, eru helstu fjár­fest­arnir á bak við Skaga. Fari svo að af sam­ein­ingu Skaga og Íslands­banka verði verða þeir í for­svari fyrir félög sem verða meðal stærstu ein­stöku hlut­hafa bank­ans. 

Stjórn­ar­for­maðurJón Ásgeir er stjórn­ar­for­maður Skeljar, sem er einn af stærstu hlut­höfum Skaga. Félagið mun verða einn af stærstu ein­stöku hlut­höfum Íslands­banka, verði af sam­ein­ingu bank­ans og Skaga.

Fjár­fest­inga­fé­lag Bjarna, Sjáv­ar­sýn, er stærsti ein­staki hlut­haf­inn í Skaga, með 9,1 pró­senta hlut. SKEL fjár­fest­inga­fé­lag, þar sem Jón Ásgeir Jóhann­es­son gegnir stjórn­ar­for­mennsku, er …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Passa sig nú ! Mygla er erfið viðureignar.
    1
  • Steinar Harðarson skrifaði
    Mikið er ég feginn að vera ekki lengur viðskiptavinur Íslandsbanka.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár