Guðbjörg keypti Lýsi í hruninu á 235 milljónir sem nú er selt fyrir 30 milljarða

Verðmæti Lýsis hefur meira en hund­rað­fald­ast frá því að núver­andi for­stjóri og stjórn­ar­for­maður misstu fyr­ir­tækið frá sér í hrun­inu. Þau fá millj­arða í vas­ann auk þess að verða meðal stærstu hlut­hfa Brims við sölu fyr­ir­tæk­is­ins til útgerð­ar­innar.

Guðbjörg keypti Lýsi í hruninu á 235 milljónir sem nú er selt fyrir 30 milljarða
Vinur í raun Guðbjörg Matth­í­as­dóttir kom vinum sínum Gunn­laugi Sævari Gunn­laugs­syni og Katrínu Pét­urs­dóttur, aðal­eig­endum Lýsis, til bjargar í hrun­inu. Þau höfðu þá tapað fúlgum fjár og voru í per­sónu­legum ábyrgðum fyrir háum lánum í banka­kerf­inu.

Verðmæti Lýsis í kaupum Brims er marg­falt það sem fyr­ir­tækið var metið á þegar Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, útgerð­ar­kona frá Vest­manna­eyjum, keypti 84 pró­senta hlut í því í miðju efna­hags­hrun­inu haustið 2008. Hún er þó ekki selj­and­inn nú, því Lýsi komst aftur í eigu fyrri eig­enda, Katrínar Pét­urs­dóttur for­stjóra og Gunn­laugs Sævars Gunn­laugs­sonar stjórn­ar­for­manns, skömmu eftir björgun Guð­bjargar. 

Við stjórn­völinKatrín Pét­urs­dóttir keypti Lýsi með móður sinni árið 1999 og hefur stýrt fyr­ir­tæk­inu allar götur síðan. Hún naut aðstoðar Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur í hrun­inu, sem keypti félagið af henni dag­inn eftir setn­ingu neyð­ar­lag­anna, og seldi svo til baka nokkru síðar.

Brim ætlar að greiða 30 millj­arða króna, að frá­dregnum vaxta­ber­andi skuldum, fyrir Lýsi. Það er hund­rað­falt virði fyr­ir­tæk­is­ins þegar Guðbjörg keypti það árið 2008. Katrín og Gunn­laugur koma til með að fá nærri átta millj­arða króna, sam­an­lagt, greitt út í reiðufé og …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þetta er spurning um ,,gæsalappir"
    0
  • GO
    Guðmundur Oddgeirsson skrifaði
    Hver er slóð milljarðanna, er verið að moka úr lífeyrissjóðum eða eru þetta sýndarviðskipti þar sem virði hlutanna er kjaftað upp?
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Græðgin með ólíkindum.
    3
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Það er með ólíkindum hvað nánast allt verður að gulli sem þessi kona kemur nálægt. Leitt að Morgunblaðið sé henni þungur baggi en kannski það verði að gulli líka að nokkrum árum liðnum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu