Síðustu útlagarnir

Heim­ildin fékk að fara í gleð­skap alræmd­ustu vél­hjóla­sam­taka lands­ins, Hells Angels. Lög­reglan hefur verið með gríð­ar­legan við­búnað vegna veislu­hald­anna.

Síðustu útlagarnir
Einar Hans fyrir miðju, Andy til hægri og Ervin bróðir hans til vinstri við Einar. Allir eru þeir í Vít­isengl­unum. Mynd: Golli

„Má ég sjá raun­veru­leg skil­ríki?“ spurði lög­reglu­mað­ur­inn þegar ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar rétti honum blaða­manna­skír­teini Blaða­manna­fé­lags Íslands á leið sinni inn í veislu Vít­isengla í Kópavogi um síð­ustu helgi. Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur verið með mik­inn við­búnað vegna veislu­halda Hells Angels í Kópavogi og vöktu aðgerð­irnar mikla athygli um miðjan sept­em­ber þegar þrír voru hand­teknir, þar af einn fyrir að muna ekki kenni­töl­una sína. Lög­reglan sagði þá að eft­ir­litið væri til­komið vegna ábend­inga frá alþjóð­legu lög­regl­unni í Evrópu, Europol, en vél­hjóla­sam­tökin eru flokkuð sem alþjóð­leg glæpa­sam­tök. 

„Við erum að hafa eft­ir­lit með þessu“
Lög­reglu­maður
Grímu­klæddur lög­reglu­maður leit­aði á blaða­manni áður en hann fór í veislu Vít­isengl­anna.

Ekki hefur komið skýrt fram hvað fólst í þeirri ábend­ingu, en lög­reglan hefur verið með sams konar við­búnað þegar erlendir gestir Vít­isengl­anna hafa sótt vél­hjóla­klúbb­inn heim. Blaða­maður er náfrændi liðs­manns Hells Angels, Einars Hans Þor­steins­sonar, en þeir eru bræðra­synir. Spurði hann því hvort blaða­maður ásamt ljós­mynd­ara mættu mæta …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásthildur Ágústsdóttir skrifaði
    Yndislegt fólk upp til hópa.
    Við pössum uppá hvort annað og stöndum saman fyrir rétti mótorhjólafólks.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár