Endurkoma Jóns Ásgeirs

Jón Ásgeir Jóhann­es­son er aftur orð­inn stór á mat­vöru­mark­aði, fast­eigna­mark­aði, í fjöl­miðlum, ferða­þjón­ustu, trygg­ingum, áfeng­is­sölu, bens­ín­sölu, lyfjum og stefnir á vöxt erlendis. Veldi hans og eig­in­konu hans, Ingi­bjargar Pálma­dóttur, minnir á upp­bygg­ing­una fyrir banka­hrun þegar hann stýrði Baugi, Glitni og 365 miðlum en hlaut enga dóma í mála­ferlum sem fylgdu honum í meira en ára­tug.

Endurkoma Jóns Ásgeirs

Í apríl 2008, þegar minna en hálft ár var í að allir íslensku bank­arnir mundu hrynja og efna­hags­á­fall ríða yfir þjóð­ina, afhenti Ólafur Ragnar Grímsson stjórn­ar­for­manni Baugs Group, Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, útflutn­ings­verð­laun for­seta Íslands fyrir „for­ystu­hlut­verk í íslensku útrásinni“.

„Á örfáum árum hefur fyr­ir­tækið náð þeim árangri að verða þriðja stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki á Norð­ur­löndum og hefur á liðnum árum vaxið hraðar en nokkuð annað fyr­ir­tæki á þessum mark­aði,“ sagði í til­kynn­ingu vegna verð­laun­anna.

Skömmu síðar missti Jón Ásgeir stjórn á við­skipta­veldi sínu. Glitnir, bank­inn sem hann stýrði bak við tjöldin, var tek­inn yfir af rík­inu. Baugur fór í gjald­þrot og þar með rann versl­unin Bónus sem hann stofn­aði með föður sínum, Jóhann­esi Jónssyni, úr greipum hans. Mála­ferli vofðu yfir honum eftir að skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis sýndi hversu skuld­settur þessi hraði vöxtur Baugs hafði verið hjá öllum föllnu bönk­unum, ekki bara Glitni, heldur líka Kaup­þingi og Lands­bank­an­um. Honum og …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár