Bað ráðherra að taka afstöðu til ummæla Gísla Marteins

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, hóf umræðu á Alþingi um „niður­skurðar­hugmynd“ vegna ummæla Gísla Marteins Baldurs­sonar, þáttar­stjórnanda hjá RÚV, og bað ráðherra að taka afstöðu til þeirra.

Snorri Másson
Snorri Másson Nýkjör­inn vara­for­maður Mið­flokks­ins hefur talað fyrir mál­frelsi en tók ummæli þátt­ar­stjórn­and­ans Gísla Marteins Bald­urs­sonar upp á Alþingi. Mynd: Golli

Snorri Másson, vara­formaður og þingmaður Miðflokksins, viðraði þá hugmynd í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma á Alþingi í gær að skera niður á sviði „skemmtiefnis sem sumt hvert er orðið hálf­gerður pólitískur áróður“ hjá Ríkis­útvarpinu og vísaði sérstak­lega til Gísla Marteins Baldurs­sonar, þáttar­stjórnanda skemmtiþátt­anna Vikunnar með Gísla Marteini.

Snorri sagði Gísla Martein vera „hugmynda­fræðilegan ritstjóra Ríkis­útvarpsins“ og vakti athygli á honum sem „næstu niður­skurðar­hugmynd hjá Ríkis­útvarpinu“. Í því samhengi vitnaði Snorri til ummæla Gísla Marteins á Facebook-síðu hans um „lýðskrumara“ eftir að 10. vetri þáttaraðarinnar lauk í vor.

„Almanna­útvarp eins og RÚV hefur aldrei verið mikil­vægara en núna á tímum upplýsinga­óreiðu og uppgangs þjóðernis-íhalds­sinnaðra lýðskrumara ...“ skrifaði Gísli Marteinn.

Logi sagðist ekki skipta sér af dagskrárgerð

Snorri bað Loga Einarsson, menningar, nýsköpunar- og háskóla­ráðherra, um að bregðast við ummælunum, sem hann kallar stefnu­markandi yfir­lýsingu.

Hann vildi vita „hvort hæstvirtur ráðherra sé sammála því að Ríkis­útvarpið gegni því …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Athugasemd Snorra er á sama tíma og strfsmenn Sýnar gera atlögu að RÚV , vegna þess að eigandi Sýnar kann ekki að reka fjölmiðlafyrirtæki ?
    Sá sem ákveður að fara út í fjölmiðlarekstur á að vita ,,eitthvað" ?
    Það er ekki endalaust hægt að græða á ,,pissi og kúk bröndurum" ?
    Reyna svo að ,,einoka íþróttaefni" ?

    Væla svo um að aðrir séu fyrir þeim ?
    6
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Fróðlegt að lesa.
    Spurningin er hvort rétt sé að Ráðherra taki við dagsrárgerð Ríkisútvarpsins. Virðist athyglisverð hugmynd hjá Snorra.
    -7
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Snorri er enn í hlaðvarpinu - en nú á alþingi. Ekki minnist ég þess að hann hafi lagt fram neitt mál varðand kjördæmið en hann er reyndar ekki einn um það af þingmönnum kjördæmisins. Reykjavík hefur 18 þingmenn. Í Englandi er svipaður kjósendafjöldi á bak við 1 þingmann. Hvað er allur þessi fjöldi eiginlega að gera? Í borgarstjórn er ástandið ekki betra, þar eru 23 borgarfulltrúar. Í London 16!
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár