Landsþing Miðflokksins: „Er þetta nokkuð að fara að vera hit piece?“

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar var við­staddur fimmta lands­þing Mið­flokks­ins um helg­ina. Þar komu meðal ann­ars við sögu vara­for­manns­kosn­ingar, der­húfu­sala og lekt þak.

<span>Landsþing Miðflokksins:</span> „Er þetta nokkuð að fara að vera hit piece?“
Marg­menni Þingið var það fjöl­menn­asta frá stofnun Mið­flokks­ins 2017. Mynd: Golli

Þegar ég geng inn á Hilton-hót­elið við Suð­ur­lands­braut á laug­ar­dags­morgni 11. októ­ber er mér ekki strax ljóst hvar fund­ar­sal­ur­inn sem ég stefni á er stað­settur. Mér til happs gengur fram­hjá eldri karl með háls­band sem mér sýn­ist vera merkt Mið­flokknum og ég elti hann. Viti menn – þar blasir við mér mann­hæð­ar­hátt skilti sem stendur á „XM,“ „Áfram Ísland,“ og „Mið­flokk­ur­inn.“ 

Fyrir innan eru starfs­menn í óða önn að skrá fólk inn á þingið. Fjórir karlar eru í röð fyrir framan mig.

Ég gef mig fram og er vísað á bros­andi mann á miðjum aldri. Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og núver­andi starfs­maður flokks­ins, tekur í hönd­ina á mér og lofar að finna út úr því fyrir mig hvert sé best að hafa mig. Það er mis­mun­andi milli flokka á svona sam­komum hvort ákveðin svæði eða borð séu frá­tekin fyrir fjöl­miðla.  

Mér er bent á að setj­ast …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu