„Það var enga vernd að fá“

„Við sitjum eftir í sorg, horfum yfir sögu sonar okkar og klórum okkur í höfð­inu. Eftir stendur spurn­ingin: Hvað gerð­ist?“ segir Hjör­leifur Björns­son, en sonur hans, Hávarður Máni Hjör­leifs­son, svipti sig lífi þann 2. sept­em­ber, aðeins tví­tugur. Feðgarnir voru báðir áhuga­menn um tón­list, greindir með ADHD og glímdu ungir við fíkn, en eitt greindi þá að. Hávarður var brot­inn niður af kerfi sem hann féll ekki inn í.

„Það var enga vernd að fá“

„Alkó­hól­ismi hefur litað líf mitt ótrú­lega mikið frá því að ég var lítið barn,“ segir Hjör­leifur, sem ólst upp við alkó­hól­isma föður síns. „Ég þurfti að horfa upp á veik­indi föður míns, ég gekk sjálfur í gegnum þessi veik­indi og horfði síðan á son minn veikj­ast mjög alvar­lega. Auk þess sem ég hef séð á eftir vinum sem lét­ust af völdum þessa sjúk­dóms. Alkó­hól­ismi hefur því verið stór partur af mínu lífi,“ segir Hjör­leifur. Hann þekkir því betur en margir hvað má betur fara í þessu kerfi sem hér hefur verið reist.

„Þegar þú reynir að átta þig á því hvers vegna þessu ástandi er leyft að við­gang­ast þá hljóta for­dómar fyrir þessum sjúk­dómi að vera ein ástæðan fyrir því. Börn sem eru neyð­ar­vi­stuð á Stuðlum eru börn sem eru orðin veik af fíkn.“ 

Slíkum van­mætti, skiln­ings­leysi og for­dómum fylgir jað­ar­setn­ing og skömm. Skömm sem er þungt að bera. „Skömmin er hluti af þessum sjúk­dómi. Ég er hepp­inn að vera hluti af stórum og breiðum hópi fólks sem hefur náð sér af þessum sjúk­dómi, hef unnið það mikið í sjálfum mér og á það mikið af góðum vinum og fjöl­skyldu þar sem þessi mál eru rædd opin­skátt að ég er laus við skömm­ina. Það var rosa­lega gott að losna við skömm­ina, því það á eng­inn að skamm­ast sín fyrir að vera veikur. Sem barn átti ég ekki heldur að þurfa að bera skömm vegna þess að pabbi minn var veikur. En það ger­ist í þessum aðstæðum. Skömmin teng­ist því kannski að skilja ekki hvað er að ger­ast og eins ef það er ekki mikla hjálp að fá.“ 

Það er nógu erfitt fyrir barn að alast upp við alkó­hól­isma, hvað þá að þurfa að bera slíka skömm með sér út í lífið. „Það hefur erfið áhrif á barns­hjartað að sjá for­eldri sitt undir áhrifum, sjá það hverfa til lengri eða skemmri tíma og upp­lifa ítrekuð áföll vegna þessa sjúk­dóms. Það er ofboðs­lega erfitt að alast upp við alkó­hól­isma. Ég var hepp­inn að eiga móður sem var klettur í minni barn­æsku og þrátt fyrir að faðir minn væri veikur alkó­hólisti þá var hann alveg ein­stak­lega góður maður sem reyndi allt sem hann gat til þess að rétta sig af. Þegar það tókst ekki hafði það mikil áhrif á okkur.“

Einstakt ljúfmenni

Hjör­leifur varð ungur faðir, en hann var 21 árs gam­all þegar Hávarður Máni fædd­ist. Móðir drengs­ins, Hilma Dögg Hávarð­ar­dóttir, bar hit­ann og þung­ann af upp­eld­inu fyrstu árin. „Ég náði ekki tökum á mínum sjúk­dómi fyrr en sonur minn var orð­inn þriggja ára gam­all. Fyrstu ár ævi sinnar bjó hann á Blöndu­ósi með móður sinni og ég heim­sótti hann þangað.“ Hún flutti síðan með hann til Reykja­víkur þegar hann var fjög­urra ára gam­all. 

Ætlaði að segja sögu sínaHávarður Máni hóf grunn­skóla­göng­una fullur sjálfs­trausts en for­eldrar horfðu á hann möl­brotna undan kerfi sem hann féll ekki inn í. Áður en hann lést hafði hann í hyggju að segja sögu sína.

Hann hafði þá reynt að ná bata frá alkó­hól­isma frá átján ára aldri. Bata­ferlið tók nokkur ár. En það var honum mik­il­vægt að búa syni sínum aðrar heim­il­is­að­stæður en hann hafði sjálfur alist upp við. Eftir að honum tókst 24 ára gömlum að snúa við blað­inu tók hann virkan þátt í lífi son­ar­ins og með þeim tókst náin vin­átta. „Í leik­skóla gekk honum vel. Þar fékk hann að vera barn og vera hann sjálfur. Allir sem komu nálægt Hávarði Mána, hvort sem það var á þeim árum eða síðar, töl­uðu um hvað hann væri mikið ein­stakt ljúf­menni, ynd­is­legur drengur og með risa­stórt hjarta.“ 

„Allir sem komu nálægt Hávarði Mána töl­uðu um það hvað hann væri mikið ein­stakt ljúf­menni“

Líkt og önnur börn hóf Hávarður Máni grunn­skóla­göng­una fullur eft­ir­vænt­ingar. „Hann var ekki að glíma við neina stór­kost­lega erf­ið­leika þegar hann byrj­aði í grunn­skóla. En fljót­lega fór að síga á ógæfu­hlið­ina.“ 

For­eldrar hans fóru að fá skila­boð um að sonur þeirra léti illa að stjórn, gæti illa haldið athygli og það væri ekki vinnu­friður fyrir honum. „Þegar hann kom inn í grunn­skóla þar sem börn eiga að hafa stjórn á sjálfum sér og það á að ramma þau inn og beita þau aga kom betur í ljós hvað var í gangi. Við sáum mjög fljót­lega að þarna væri eitt­hvað á ferð­inni eins og ADHD. Hann var svo ör og hvat­vís. Við sáum því til þess að hann fengi grein­ingu og borg­uðum fyrir það sjálf, til að við þyrftum ekki að bíða í mörg ár. Þrátt fyrir grein­ing­una var stöðugt verið að tala um hann sem vanda­mál.“ 

Aðskilinn frá bekkjarsystkinum

Skóla­gangan var varla hafin þegar for­eldr­arnir voru boð­aðir á fyrsta fund­inn til að ræða málin. Hjör­leifur var sjálfur greindur með ADHD í seinni tíð og seg­ist hafa haft skiln­ing á stöðu son­ar­ins. „Ég gæti ekki skilið þessi börn betur. Eini mun­ur­inn á mér og syni mínum var sá að ég gat setið kyrr og leyst verk­efni. Mitt ADHD birt­ist öðru­vísi. Ég gat bullað mig í gegnum skóla­göng­una og fékk góðar ein­kunnir, því ég hafði eirð í mér og ein­beit­ingu til að skila því sem þurfti til. Sonur minn hafði ekki frekar en mörg önnur börn hæfi­leik­ann til þess að gera það. Það varð til þess að bola honum út úr bekknum.“

Með því á Hjör­leifur við að syni hans hafi verið „leyft að fara fram“ á meðan bekk­ur­inn var að vinna að verk­efnum. „Eins og það væri gert fyrir hann.“ 

Alla sína grunn­skóla­göngu var Hávarður Máni reglu­lega aðskil­inn frá bekknum sínum. Faðir hans lýsir því að sonur sinn hafi „verið geymdur“ á gang­inum frammi, hjá náms­ráð­gjafa og inni á bóka­safni. Hann hafi greint for­eldrum sínum frá van­líðan vegna þess. „Honum leið ömur­lega með þetta. Síðan kom hann heim með ein­kunna­spjöld sem á stóð 2, 3 og 4. Systir hans var ekki í neinum erf­ið­leikum með að kom­ast í gegnum þetta kerfi og kom heim með góðar ein­kunnir. Allt var þetta nið­ur­brjót­andi. Frá því að hann hóf skóla­göng­una, strax í fyrsta bekk, horfðum við á hann í frjálsu falli, bein­ustu leið niður á við. Hann brotn­aði gjör­sam­lega niður.“ 

Neikvæð skilaboð 

Hann hefur ekki tölu á því hvað þau voru boðuð á marga fundi í skól­anum næstu árin. „Örugg­lega hund­rað. Við sátum þessa fundi sem ábyrgir for­eldrar, öll af vilja gerð til að reyna að rétta þetta af og laga stöð­una. Á meðan við vorum inni í þessu ferli þá fórum við að taka þátt í því. Þú ferð að finna fyrir skömm yfir því að barnið sé ómögu­legt og geti ekki verið til friðs. Þú ferð að sjá það sem vanda­mál og taka þátt í nið­ur­rif­inu, skamma hann og reyna að aga hann til að vera góður drengur og gera betur.“

Enda bár­ust stöðug skila­boð á Mentor um að það væri ekki allt í lagi. „Þetta var meira og minna allt nei­kvætt og nið­ur­drep­andi. Þegar ég lít til baka upp­lifi ég svo sterkt hvað skól­inn sá son okkar sem mikið vanda­mál og sneri því síðan upp á okkur for­eld­rana. Alla hans skóla­göngu vorum við kölluð á enda­lausa teym­is­fundi sem við sátum, algjör­lega van­máttug, því við höfðum enga rödd á þessum fundum. Við vorum alltaf að fá þau skila­boð að við ættum að gera eitt­hvað í þessu.“

Aðspurður hvað þau hafi átt að gera svarar hann: „Ég veit það ekki. Ég veit ekki hvað við áttum eig­in­lega að gera. Ég veit það í alvör­unni ekki.“ 

Í öðrum bekk hafi gengið betur um tíma, sem varði aðeins í tæpt ár. „Þá var hann með umsjón­ar­kenn­ara sem henti öllum bókum til hliðar og gaf sig alla að honum, sem gerði það að verkum að hann fór að vaxa, styrkj­ast og ganga betur. Um tíma hættu þessir stöð­ugu teym­is­fundir. Svo fór hann upp um bekk, fékk nýjan kenn­ara og það fór allt í steik aftur.“

Sár missirDaginn fyrir frá­fall Hávarðs Mána ræddu feðgarnir saman. Þá var bjart yfir drengnum, sem var stað­ráð­inn í að standa sig.

Skiptu um skóla

For­eldrar Hávarðar Mána gripu til þess ráðs að skipta um skóla. „Okkur var orðið ljóst að það voru engin úrræði til staðar í Rima­skóla. Engja­skóli átti að vera betur til þess fall­inn að mæta börnum með sér­þarfir. En þar mættum við nákvæm­lega sama úrræða­leys­inu.“ 

Ekkert breytt­ist í raun. Fund­ar­höldin héldu áfram. Sömu skila­boð voru end­ur­tekin. „Við vorum alltaf að tala við skóla­stjórn­endur og full­trúa frá barna­vernd þegar þeir voru farnir að sitja þessa fundi og alltaf voru allir af vilja gerðir til að aðstoða okkur og aldrei var neitt gert. Eins ótrú­lega og það hljómar þá man ég ekki eftir neinu sem var hrint í fram­kvæmd sem varð til ein­hvers.“ 

Reynt var að fá Hávarð Mána til að aðstoða sér yngri nem­endur. Það gekk ágæt­lega. „Öðru man ég ekki eftir,“ segir faðir hans. „Enginn var til­bú­inn til að mæta honum þar sem hann var. Enginn var til­bú­inn til að leggja námskrána til hliðar og spila inn á hans styrk­leika til að byggja hann upp.“

Að rampa upp skólakerfið

Fyrir tæpu ári síðan var Þór­hildur Helga Þor­leifs­dóttir til við­tals í Heim­ild­inni þar sem hún sagði sögu son­ar­son­ar­ins, Patreks Jóhanns Kjart­ans­sonar Eberl, sem svipti sig lífi fimmtán ára gam­all. Líkt og Hávarður Máni var hann greindur með ADHD og upp­lifði sig utan­veltu í skóla­kerf­inu. Amma hans lýsti sama nið­ur­broti og Hjör­leifur gerir hér. „Það sem mér finnst erf­ið­ast við okkar sögu er hvernig kerfið brýtur þessa krakka niður,“ sagði Þór­hildur, sem hefur sjálf starfað innan mennta­kerf­is­ins um ára­bil, meðal ann­ars sem skóla­stjóri og kennslu­ráð­gjafi, og þekkir það því vel.

Í við­tal­inu tal­aði hún um mik­il­vægi þess að rampa upp skóla­kerfið fyrir þennan hóp barna sem fellur ekki inn í rammann. „Þegar barn í hjóla­stól kemur inn í bekk er rampað upp. Ramp­ur­inn gagn­ast fleirum, til dæmis barni sem fót­brotnar. Hér þarf að rampa upp fyrir ADHD-börn. Allavega tíu pró­sent nem­enda eru með ADHD og það þarf að gera ráð fyrir þeim. Ef það er gert ráð fyrir þeim er það um leið gott fyrir öll börn,“ útskýrði hún. Benti hún á að barn með syk­ur­sýki þyrfti ekki aðeins að taka lyf heldur þyrfti einnig að huga að matar­æði barns­ins. Mataræði sem er gott fyrir börn með syk­ur­sýki er einnig hollt og gott fyrir öll börn. Sama ætti við um þetta. 

Hjör­leifur tekur undir þessar hug­myndir og segir að að óbreyttu sé verið að fórna hópi barna fyrir stöð­ug­leika, eða kyrr­stöðu í kerfi sem sé brotið. „Einhvern tím­ann heyrði ég heið­ar­legan mann segja: „Við getum ekki farið að breyta öllu skóla­kerf­inu fyrir minni­hluta­hóp.“ Ég er eng­inn sér­fræð­ingur en eftir að hafa gengið í gegnum þessa þraut­ar­göngu spyr ég hvort það sé ekki ein­falt að aðlaga kerfið að þessum hópi barna fyrst hann er svona fámennur? Það hlýtur að vera hægt að búa til úrræði sem leyfir frá­vik frá þess­ari námskrá svo þau geti fundið sig með sínum jafn­ingjum. Þetta eru börn sem eiga heima í venju­legum grunn­skóla með öðrum börnum, þótt þau ráði ekki við rammann sem er verið að reyna að troða öllum börnum í.“

Stöðug þróun niður á við

Hér eigi að vera virk stefna um skóla án aðgrein­ingar, en svo sé ekki í reynd. „Enginn grunn­skóli á Íslandi er skóli aðgrein­ingar. Það má lítið sem ekk­ert út af bera hjá krökkum án þess að þau séu álitin vanda­mál, sem síðan er snúið upp á for­eld­rana.“  

Að mæta slíku við­horfi tók sinn toll af allri fjöl­skyld­unni. „Við vorum enda­laust að reyna að taka ábyrgð, reyna að taka þátt í hans áskor­unum og erf­ið­leikum, en það eina sem við fengum fyrir það var stöðug þróun niður á við.“ 

Eftir á hefði hann viljað takast öðru­vísi á við vand­ann. „Við hefðum átt að berja í borðið og hætta að taka þátt í þessu á þessum for­sendum. Við hefðum átt að krefj­ast þess að skóli sem vinnur eftir stefn­unni skóli án aðgrein­ingar væri ekki að aðskilja son okkar frá jafn­ingjum sínum og skil­greina hann sem vanda­mál. Við hefðum átt að neita að taka þátt í þessu ferli þar sem var verið að möl­brjóta dreng­inn okkar, ár eftir ár, vegna þess að hann pass­aði ekki í eitt­hvert box.“ 

„Við hefðum átt að neita að taka þátt í þessu ferli þar sem var verið að möl­brjóta dreng­inn okkar“

Það sé hins vegar auð­velt að vera vitur eftir á. Á sínum tíma hafi hann verið að reyna að gera sitt besta, og þau öll. „Ég hef rætt þetta við móður Hávarðar Mána. Við höfum talað um að við vorum ung og vissum ekki betur. Við treystum því að skóla­yf­ir­völd vissu hvað þau væru að gera og myndu gera það sem þau sögð­ust ætla að gera. Þau sögð­ust ætla að ein­stak­lings­miða námið og veita meiri stuðn­ing inni í bekknum og búa til meira rými fyrir hann að njóta sín. Alltaf var talað mjög fal­lega um hvað ætti að gera og hvað þau vildu gera, en svo var ekk­ert gert.“  

Viðbragð við vanlíðan

Það er sárt að hugsa til baka. Ekki síst í ljósi þess sem síðar varð, þegar Hávarður Máni var orð­inn gjör­sam­lega nið­ur­brot­inn. „Ég var að ala upp barnið mitt og trúði því og treysti að grunn­skóla­kerfið væri að gera sitt besta til að hjálpa honum. Þegar ég sá barnið mitt vera í erf­ið­leikum í kerf­inu leit ég fram hjá því og von­að­ist til þess að hann kæm­ist þokka­lega heill í gegnum það. En sonur okkar er öfga­fullt dæmi um allt sem er að í þessu sam­fé­lagi. Auðvitað áttum við ekki von á því að þetta myndi fara svona, eða að hann yrði hvergi grip­inn á neinu stigi máls­ins. Ég er svo gátt­aður á þessu.“ 

Vanlíðan drengs­ins var orðin slík að hann fór að leita leiða til þess að deyfa sárs­auk­ann. Upp á sitt eins­dæmi, án þess að vera í félags­skap við aðra, varð hann sér úti um vímu­efni. „Þetta var við­bragð við van­líðan. Ekkert annað,“ segir faðir hans. 

Sjálfur var Hjör­leifur þrettán ára gam­all þegar hann fór að neyta vímu­efna. Aðstæður hans voru hins vegar allt aðrar en son­ar­ins. „Pabbi minn var mjög veikur alkó­hólisti sem náði sér aldrei á strik og lést úr þessum sjúk­dómi þegar ég var átján ára gam­all. Það var áfall sem var lengi í upp­sigl­ingu. Hann var veikur allt mitt líf. Inni á milli átti hann stutta spretti þar sem hann náði edrú­tíma­bilum, en hann náði aldrei neinum var­an­legum bata. Hávarður Máni átti alls­gáða aðstand­endur, bæði innan hans nán­ustu fjöl­skyldu og einnig stór­fjöl­skyld­unni. Allar hans fyr­ir­myndir voru edrú, hann átti góð systk­ini og var í nánum tengslum við okkur. Hann gat alltaf leitað til okkar. Hann var bara svo þjak­aður af van­líðan.“

Ömurlegar uppákomur 

Einn dag­inn var Hávarð Mána hvergi að finna. Hann hafði látið sig hverfa og gerði það margoft þaðan í frá. Svo oft að lög­reglu­mað­ur­inn Guð­mundur Fylk­is­son, sem leitar að týndum börnum, var einn þeirra sem bar kist­una í útför­inni. „Óhugn­an­leg­asta til­finn­ing sem hægt er að upp­lifa er þegar barnið þitt er horfið, tólf ára gam­alt, og þú veist ekki hvar það er. Fá síðan sím­tal um að barnið þitt hafi næstum því látið lífið vegna þess að það dó áfeng­is­dauða á Klambra­túni að hávetri. Saga hans var svona, ömur­legar upp­á­komur, ofneysla og örvænt­ing.“ 

Líkt og ábyrgir for­eldrar gera leit­uðu þau eftir aðstoð barna­vernd­ar­yf­ir­valda. „Því miður,“ segir Hjör­leifur. „Við töldum að við værum að sýna ábyrgð og gera það sem var best fyrir son okkar með því að grípa snemma inn í og biðja barna­vernd um aðstoð. En það er ekk­ert sem ég sé meira eftir í þessu lífi en að hafa leitað til barna­verndar.

Þeirra svar við erf­ið­leikum sonar okkar var að neyð­ar­vista hann á Stuðlum. Tólf ára gam­all sat hann þar einn með sautján ára gömlum sprautu­fíkli. Þeir voru tveir á neyð­ar­vistun Stuðla í það skiptið. Sonur okkar var aðeins búinn að vera í neyslu í nokkra mán­uði en var far­inn að láta sig hverfa. Þá var hann á ein­hverju ráfi og þef­aði uppi neyslu­staði á meðan við vorum að leita að honum.“ 

Týndu börnin sem láta lífið

Hjör­leifur vísar í við­tal við Guðmund sem birt var í byrjun mán­aðar á RÚV. Þar greindi Guð­mundur frá þessu atviki þegar Hávarður Máni var sendur í neyð­ar­vistun á Stuðlum. „Ungi pilt­ur­inn er rétt að byrja, hinn er í bull­andi neyslu, jafn­vel með vímu­efnum um æð,“ sagði Guð­mundur. „Þeir tveir voru vistaðir saman á neyð­ar­vistun, einir tveir. Þarna geta orðið smitá­hrif.“ 

Skortur væri á úrræðum og þeim hafi aðeins fækkað. „Árið 2017 var Háholti lokað. Þá átti að fara að byggja úrræði hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem átti að takast á við þetta,“ sagði Guð­mundur. „Það er ekki komið. Ég veit ekki hvort það eru einu sinni komnar teikn­ingar … en erum við ekki að fara að stækka Þjóð­leik­húsið?“

Í umfjöllun RÚV kom fram að lög­reglan hafi aldrei fengið fleiri leit­ar­beiðnir en nú í ár. Að með­al­tali ber­ist ein beiðni um leit að barni á dag. Yngsta barnið hafi aðeins verið ell­efu ára gam­alt. En sam­tals hafi borist um 250 beiðnir vegna 75 barna. Í 99 til­fellum hafi börnin verið send á Stuðla þegar þau fund­ust, þar af fóru átta börn í neyð­ar­vistun.

Þá sagði Guð­mundur frá því að á þeim 11 árum sem hann hefur verið í þessu hlut­verki hafi níu börn lát­ist. „Það sem við erum að gera í dag virkar illa á þennan verst setta hóp. Af hverju erum við enn þá á þeim stað?“ spurði hann. 

Neyðarvistun sem fór illa 

Hjör­leifur spyr þess sama: „Ég veit um til­felli þar sem sautján ára stúlka lést. Það síð­asta sem hún sagði við barna­vernd var: „Ef þið hjálpið mér ekki þá mun ég drepa mig.“ Hún fyr­ir­fór sér síðan.

Það er enga hjálp fyrir börn að fá. Hvernig stendur á því að það er enn verið að sópa saman börnum á öllum aldri og í alls konar neyslu og henda þeim inn á neyð­ar­vistun Stuðla? Eitt ár er síðan neyð­ar­vistun Stuðla brann og ungur drengur lést í brun­anum. Það er ekki komin nið­ur­staða í þetta mál en við erum enn að gera þetta.“ 

Í við­tali við Morg­un­blaðið sagði móðir Hávarðs Mána, Hilma Dögg, að stærstu mis­tökin sem þau hafi gert hafi verið að senda hann á Stuðla. „Ég myndi aldrei ráð­leggja nokkru for­eldri að sam­þykkja að barnið þeirra færi á Stuðla, ekki nema það væri að fara í gæslu­varð­hald vegna alvar­legra afbrota eða væri hættu­legt sjálfu sér og öðrum,“ sagði hún.  

Eftir heim­kom­una átt­aði Hjör­leifur sig á því að Hávarður Máni, sem fram að þessu var aðeins að fikta við að reykja gras, var far­inn að horfa á mynd­bönd á Youtube um hvernig ætti að sprauta sig. „Ég veit ekki hvort það var vegna þess að hann hafði verið með þessum strák í neyð­ar­vistun eða ekki. Við vissum ekki einu sinni að það hefði verið þannig. Lög­reglu­maður sagði okkur það seinna. Í kjöl­farið kröfð­umst við svara frá barna­vernd og skýr­ing­arnar voru að það væru ein­fald­lega engin önnur úrræði í boði.“

Fíkni­vand­inn stig­magn­að­ist „á ljós­hraða“, eins og faðir hans orðar það. Áður en Hávarður Máni fór á Stuðla átti hann ekki neyslu­fé­laga. Nú voru þeir komnir. Eldri krakkar í mun harð­ari neyslu. „Eftir það hófst hans neyslu­saga fyrir alvöru. Við réðum ekk­ert við ástandið. Hann lét sig hverfa, lög­reglan leit­aði að honum og skil­aði honum aftur á neyð­ar­vistun á Stuðlum. Sama sagan end­ur­tók sig aftur og aftur og aftur.“  

Rífur allt og tætir í sig

For­eldr­arnir ósk­uðu eftir styrktu fóstri fyrir son sinn, en því var hafnað. Þess í stað var þeim boðið MST-úrræði fyrir börn með alvar­legan hegð­unar- eða fíkni­vanda, sem fer fram inni á heim­ili barns­ins. Staðan var orðin of alvar­leg til að slíkt úrræði dygði til. 

For­eldr­unum var einnig boðið á nám­skeið sem þau sóttu. „Það sner­ist um sam­stöðu á milli heim­ila og að setja mörk. Þú setur ekki barni mörk sem er komið í alvar­legan fíkni­vanda með óþroskaðan fram­heila. Þetta hjálp­aði okkur ekk­ert.“ 

Á þessum tíma­punkti var ekk­ert gert til að ráð­ast að rót vand­ans sem var djúp­stæð van­líðan drengs­ins. Þvert á móti upp­lifði hann enn frek­ari höfnun og nið­ur­brot. „Eftir því sem neyslan ágerð­ist og hann varð for­hert­ari, eins og þessir krakkar verða, því oftar var tekið fram fyrir hend­urnar á okkur. Staðan var orðin þannig að hann var sjálf­krafa neyð­ar­vi­staður á Stuðlum, enda engin önnur úrræði í boði.“ 

Ef Hjör­leifur stæði aftur í sömu sporum, vit­andi það sem hann veit núna, myndi hann flytja með barnið út á land. „Ég myndi ekki undir nokkrum kring­um­stæðum hafa sam­band við barna­vernd. Ég er ekki að reyna að dramat­ísera neitt en hér á Íslandi beitir barna­vernd börn ofbeldi á hverjum ein­asta degi, sem birt­ist í úrræða- og skeyt­ing­ar­leysi.“

Óttinn fylgdi fjöl­skyld­unni næstu árin. Við tók röð áfalla. „Þetta gjör­sam­lega rífur og tætir allt í sig.“

Til að geta verið til staðar fyrir fjöl­skyld­una hefur Hjör­leifur sótt ráð­gjöf þerapista. „Ég er líka í ákveðnum félags­skap til að styrkja mig og efla eigin bata frá þessum sjúk­dómi.“ 

Vildi standa sig

Þrátt fyrir allt hafði sonur hans alltaf vilja til þess að standa sig vel. „Frá því að hann var lít­ill drengur var hann allur af vilja gerður til þess að gera sitt allra besta. Hann var kurt­eis og vel­vilj­aður drengur sem vildi bara að for­eldrar sínir væru ánægðir með hann og stoltir af honum. Hann vildi bara passa inn og vera hluti af, það var það sem hann þráði mest. Öll hans neysla var ömur­leg leið til þess að deyfa sárs­auka.“

Neysl­unni fylgdi stjórn­leysi, sem lagð­ist þungt á dreng­inn. Hann réði illa við aðstæður, sjálfan sig og fíkn­ina. „Hann stal hlutum af heim­il­inu, lét sig hverfa og þess háttar. Hann tal­aði um það sjálfur hvað sér þætti þetta vont. Honum leið ömur­lega með eigin hegðun. Líklega fannst honum það verst af öllu þegar hann kom illa fram og það urðu upp­á­komur inni á heim­il­inu. Auðvitað skyggði það á sam­skiptin, en ég sá alltaf son minn þarna á bak við.“ 

Á unglingaheimili úti á landi

Enn var hann að mæta í skól­ann, eftir bestu getu. En höfn­unin sem hann upp­lifði í skóla­kerf­inu áður en hann fór að deyfa sig með vímu­efnum varð enn meiri og sár­ari. „Áður átti hann vini en um leið og hans fíkni­hegðun byrj­aði varð hann algjör­lega utan­gátta við allt og alla. Félags­lega átti hann erfitt upp­dráttar. Þetta var orðið alveg ofboðs­lega óspenn­andi og ömur­legt fyrir hann, að sitja stöðugt undir því að hann væri heimskur og vit­laus og væri bara vanda­mál.“ 

Á end­anum var ekki heldur hægt að hafa hann inni á heim­il­inu með öðrum börnum. Hann fór þá á Lækj­ar­bakka, með­ferð­ar­heim­ili í Geld­inga­læk, sem er ætlað ung­lingum sem glíma við alvar­legan vanda. Börn eru ekki send þangað nema væg­ari úrræði hafi ekki skilað árangri og þau hafa lokið með­ferð á Stuðlum, líkt og hann hafði margoft gert. „Þar náði hann tíma­bilum án vímu­efna. En það gekk ekki þrauta­laust fyrir sig, hann fór að strjúka þaðan, lög­reglan var kölluð til, hann sendur í neyð­ar­vistun á Stuðla og aftur á Lækj­ar­bakka.“ 

Sama sagan upp­hófst yfir­leitt þegar Hávarður Máni heim­sótti for­eldra sína til Reykja­víkur. „Því fylgdi yfir­leitt strok þegar hann kom og aft­ur­för. Hann var svo ungur orð­inn svo veikur fík­ill, far­inn að sprauta sig sextán ára.“ 

Sárt að skilja við hann

Hjör­leifur vand­ist því aldrei að sjá son sinn í þessu umhverfi. „Það var ömur­legt að þurfa að sjá barnið sitt vistað á ung­linga­heim­ili úti á landi. Ég held að allir for­eldrar séu sam­mála um það. Eins að upp­lifa það að þú sért að hafna barn­inu þínu í hvert ein­asta skipti sem þú kveður það. Hávarður Máni vildi auð­vitað vera heima hjá sér, þó að hann gæti skilið af hverju hann gat það ekki. Hann skildi fíkni­vanda sinn. Hann vildi samt koma með okkur heim og það var ömur­legt að skilja við hann þarna.“

Spurður hvort hann hafi reynt að bæta syni sínum það upp með ein­hverjum hætti, svarar Hjör­leifur neit­andi. „Það er ekk­ert sem þú gerir sem bætir upp fyrir þetta.“ 

„Það er ekk­ert sem þú gerir sem bætir upp fyrir þetta“

Til að takast á við það reyndi hann að muna af hverju sonur hans væri þarna. „Þetta var besti ömur­legi val­kost­ur­inn sem var í boði. Það var skárra að vita af barn­inu sínu læstu inni á ung­linga­heim­ili úti á landi en í virkri sprautu­neyslu á götum borg­ar­innar.“

FeðgarnirFeðgarnir voru alla tíð nánir og miklir mátar. Margt var líkt með þeim, en þeir deildu til að mynda áhuga á tón­list.

Naut sín í tónlistinni 

Næstu árin var Hávarður Máni á Lækj­ar­bakka. Þar gekk hann í skóla auk þess að sinna hús­verkum og búa sig undir bíl­prófið. Þar var byggt á hans styrk­leikum og hann naut sín. „Þarna var rosa­lega gott fólk sem hélt vel utan um hann og hjálp­aði honum mikið.“ 

Hann æfði box og sinnti sínu helsta áhuga­máli, tón­list­inni. Tón­list­ar­á­hug­anum deildu feðgarnir, en Hjör­leifur er fram­kvæmda­stjóri HH Music og spilar á gítar í hljóm­sveit­inni SoundThing. „Hávarður Máni var virki­lega hæfi­leik­a­ríkur tón­list­ar­maður. Hann var rapp­ari, geggj­aður rapp­ari. Ég var alltaf að hvetja hann til þess að stíga fram með þá hæfi­leika, en hann náði sér aldrei nógu vel á strik til þess að gera það. En hann skrif­aði ógrynni af textum og tjáði til­finn­ingar sínar. 

Honum leið bara illa. Hann var ekki sam­þykktur og var brot­inn niður og beittur ofbeldi af úrræðum sem eiga að grípa börn og hjálpa þeim og mæta þeim þar sem þau eru stödd. Hann tal­aði sjálfur um að hann vildi ná bata og tala þá um upp­lifun sína af grunn­skóla­kerf­inu. Hann kemur ekki til með að gera það.“

Sendur út í samfélagið

Átján ára gam­all var Hávarður Máni sendur heim. Hann var orð­inn lög­ráða og heyrði ekki lengur undir kerfið. Þar með var engin þjón­usta í boði lengur. „Við kviðum mjög mikið fyrir því að hann yrði átján ára. Þá var öllu kippt úr sam­bandi og hann þurfti að sjá um sig sjálfur. Hann var enn barn þegar hann fór út í sam­fé­lagið án þess að hafa nokkurn tím­ann fengið þá aðstoð sem hann þurfti og þar með upp­hófst lokakafl­inn í hans sögu. Hann náði sér aldrei á strik.“

Í fyrstu fór Hávarður Máni til móður sinnar. Í virkri neyslu gerð­ist Hávarður Máni sekur um glæpi, þjófn­aði, inn­brot og jafn­vel ofbeld­is­brot. Eftir því sem hann varð veik­ari af fíkni­sjúk­dómi ágerð­ust rang­hug­mynd­irnar og ofsókn­ar­brjál­æði sótti að. Samhliða því fór hann að ganga um vopn­aður. „Ítrekað var hringt í lög­regl­una sem þurfti að fjar­lægja hann af heim­il­inu, vopn­aðan og ógn­andi í geð­rofi. Tilkynnt var til barna­verndar að hann væri að birt­ast vopn­aður heima hjá móður sinni sem réði ekk­ert við hann.

Eitt sinn var hann hand­tek­inn við leik­skóla í Graf­ar­holti þar sem hann bað um að fá að hringja, með hníf inn­an­klæða. Það var aðeins eitt af ótelj­andi skiptum sem hann var hand­tek­inn.“ 

Með réttu hefði Hávarður Máni átt að fara í fang­elsi. Hjör­leifur reyndi að koma því til leiðar, en án árang­urs. „Allir voru sam­mála því að hann ætti að vera í síbrota­gæslu. Lög­reglan, lög­menn, ég og móðir hans vorum öll sam­mála því. En það var ekki hægt að setja hann í síbrota­gæslu því fang­elsin voru full. Varð­stjóri hjá lög­regl­unni greindi mér frá því.“ 

Aðspurður hvað honum finnst um það segir Hjör­leifur: „Sonur minn væri lif­andi ef hann hefði verið settur í síbrota­gæslu.“

Í geðhvörfum við eldhúsborðið

Hávarður Máni virt­ist vera með­vit­aður um að hann þyrfti á aðstoð að halda og til­bú­inn til að þiggja hana. „Hann var allur af vilja gerður til þess að sækja sér aðstoð. Hann vildi þiggja hjálp til þess að kom­ast út úr þessu ástandi.“

Enda leit­aði hann sér margoft aðstoðar, fór í með­ferð, dvaldi á áfanga­heim­ilum og leit­aði sjálfur á geð­deild þegar svo bar undir. „Síðasta árið hófst geð­vandi hans. Eftir langvar­andi neyslu var hann far­inn að fá alvar­leg geð­rof og ofsókn­ar­brjál­æðisköst.“

Hávarður Máni var að mestu hjá móður sinni þetta síð­asta ár sem hann lifði. Í síð­asta skipti sem hann útskrif­að­ist af geð­deild gisti hann hjá föður sínum áður en hann átti að fara í með­ferð.  „Þá var hann heima hjá mér í geð­rofi eftir að hafa verið útskrif­aður af geð­deild. Þetta var hræði­legt,“ segir Hjör­leifur. 

„Sonur minn var með alvar­legar rang­hug­myndir um að það stæði til að skaða fjöl­skyld­una hans. Þetta sner­ist allt um að það ætti að skaða fjöl­skyld­una til þess að meiða hann. Að aðilar í und­ir­heim­inum væru á eftir honum og að hlera sím­ann hans. Það var eng­inn fótur fyrir þessu, þetta var bara sama sagan og hjá öllum sem eru of lengi í ofneyslu og missa vitið. En það var hræði­legt að eiga við son minn í geð­rofi.“ 

Í tæpt ár fór Hávarður Máni end­ur­tekið í gegnum sama hring­inn, nokk­urra daga inn­lögn á geð­deild áður en hann var útskrif­aður, end­aði aftur í neyslu og fór þaðan í með­ferð eða á geð­deild. „Eina sem var í boði á geð­deild var að hýsa hann í nokkra daga og útskrifa hann síðan. Hann kom fár­veikur út af geð­deild, enn mjög veikur af geð­rofi, brot­inn og tættur. Síðan var farið að útskrifa hann með lyfja­pokum. Þá þurftum við móðir hans að vakta það að hann væri að taka lyfin, sem gekk yfir­leitt ágæt­lega fyrst um sinn, síðan fór hann að ljúga því að hann væri búinn að taka lyfin og svo var hann horf­inn í neyslu.“

Eftir ítrek­aðar inn­lagnir var Hávarður Máni færður inn á sér­hæfðri deild, fyrir fólk í geð­rofi. „Þá voru þeir farnir að sjá hvað ástandið var alvar­legt. Nokkrum dögum síðar var hann færður aftur á venju­lega fíknig­eð­deild og útskrif­aður þaðan nokkrum dögum síðar. Það var súr­r­eal­ískt að sitja með drengnum mínum við eld­hús­borðið heima og reyna að róa hann niður, þar sem hann var fljúg­andi veikur á geði, nýkom­inn út af geð­deild með geð­rofslyf í poka. Við reyndum að tala við lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga en þar voru engin svör að fá. Hann var orð­inn lög­ráða og svona var þetta bara. Hann lifði ekki af marga mán­uði í þessum pakka.“ 

Lögreglan bankaði upp á 

Líkt og áður hefur komið fram þekkir Hjör­leifur glímuna við fíkn af eigin raun. Átján ára gam­all leit­aði hann fyrst til SÁÁ og fór oft þangað á stuttum tíma sem ungur maður. „Það er langt í frá sjálf­sagt að ná sér úr fíkni­vanda. Mér tókst það eftir margar til­raunir. Mín saga er ekki bein lína. Ég þurfti að falla oft á rass­inn og rífa mig aftur upp. Batinn minn sner­ist um að gef­ast aldrei upp og leita mér aðstoðar þar sem hana var að fá, eða í gras­rót­ar­sam­tökum. Ég hvet alla sem glíma við þetta að leita þangað.“ 

Sonur hans dvaldi á áfanga­heim­il­inu Drauma­setr­inu þegar þeir hitt­ust í síð­asta sinn. Það var nokkrum dögum áður en Hávarður Máni lést. „Ég sótti hann, við spjöll­uðum saman og ég skutl­aði honum í rækt­ina.“ Daginn áður en Hávarður Máni lést töl­uðu feðgarnir saman í síma. „Þá var hann að tala um að hann ætl­aði að standa sig og góðir hlutir væru að ger­ast. Hann var mjög jákvæður og bjart­sýnn.“ 

Daginn eftir bár­ust harma­fregnir. Kona Hjör­leifs stóð við hlið hans þegar honum voru færðar frétt­irnar. Sonur hans hafði svipt sig lífi. „Það var ólýs­an­legt áfall. Eitthvað sem ég þarf að lifa með það sem eftir er ævinnar. Tíminn mun kannski deyfa þessi sár en ég verð aldrei samur.“

Eftir standa margar spurn­ingar sem aldrei munu fást svör við. „Ég held að sonur minn hafi tekið þessa ákvörðun eftir að hafa fallið enn einu sinni. Hann gafst upp. En við vitum það ekki. Auðvitað er erfitt að fá ekki svör, en það breytir því ekki að hann er far­inn, þetta gerð­ist.“ 

Fjöl­skyldanHávarður Máni átti sterka fjöl­skyldu sem stóð alla tíð þétt við bakið á honum og reyndi sitt allra besta.

Umvafinn vinum og vandamönnum

Tæpur mán­uður er lið­inn frá frá­falli son­ar­ins. Enn er doði yfir öllu. Hjör­leifur seg­ist skilja það vits­muna­lega að sonur sinn sé far­inn frá sér en lík­am­inn eigi enn eftir að með­taka það. „Ég er hepp­inn að eiga marga góða vini sem eru dug­legir að umgang­ast mig. Ég hef ekki leyft mér að vera einn. Það er ekki gott að ein­angra sig í sorg­inni. Ég finn fyrir til­hneig­ingu til að fara í reið­ina, bit­urð­ina og sjálfs­vor­kunn­ina. Allt eru þetta til­finn­ingar sem ég má ekki gefa mig á vald. Ég reyni því að umgang­ast fólk, þótt það sé erfitt. En ég hef ekki getað unnið frá því að þetta gerð­ist,“ segir Hjör­leifur, sem er fram­kvæmda­stjóri Garða­þjón­ustu Reykja­víkur. „Ég tek einn dag í einu.“ 

„Ég hef ekki leyft mér að vera einn. Það er ekki gott að ein­angra sig í sorg­inni.“

Útför Hávarðar Mána var afar fjöl­sótt og fal­leg. „Hátt í fimm hund­ruð manns mættu og fjöl­margir fylgd­ust með á net­inu. Við fengum haf­sjó af kveðjum. Eftir að hann féll frá urðum við þess vör hvað hann hafði snert marga. Af því að hann var alltaf að reyna að ná bata, koma inn í AA-sam­tökin, fara í með­ferð og leita sér aðstoðar á geð­deild. Hann var alltaf að reyna að standa upp og ná árangri, það var það sem hann þráði heit­ast í líf­inu. Eina ástæðan fyrir því að hann fyr­ir­fór sér var að hann gafst upp á að reyna það. Ekkert annað. Hann var ekki þung­lyndur eða með sjálfs­vígs­hugs­anir.“ 

Áleitnar spurningar sækja að

Áleitn­asta spurn­ingin sem sækir að er: Hvernig gat þetta farið svona? „Drengur sem átti alla mögu­leika á að fá aðstoð og var til­bú­inn til að þiggja hana, var vel gef­inn, vel máli far­inn, hæfi­leik­a­ríkur, fal­legur drengur sem er lát­inn 20 ára gam­all eftir písl­ar­göngu í gegnum brotin kerfi. Sama hvað maður reifst, stapp­aði og barð­ist náðum við ekki í gegn neinum breyt­ingum. Enn í dag, hafa engar breyt­ingar orðið á kerfi sem allir eru sam­mála um að sé brotið. Ég klóra mér bara í höfð­inu. Ég skil þetta ekki.“ 

Níu ár eru liðin frá því að Hjör­leifur og Hilma Dögg helg­uðu sig bar­átt­unni fyrir bættum úrræðum fyrir börn í þess­ari stöðu. „Ég trúði ekki öðru en að það væri nóg að benda á van­kant­ana til að það yrðu gerðar úrbætur á kerf­inu. Við ræddum við þáver­andi félags­ráð­herra og alls konar fólk og veittum við­töl. Skrítn­ast var að allir sem við töl­uðum við voru hjart­an­lega sam­mála því sem við vorum að segja. Þess vegna héldum við að nú yrði eitt­hvað gert.“ 

Hann segir sárt að hafa tekið þennan slag án árang­urs. „Það dró úr mér allan vind að ræða við ráða­menn sem átt­uðu sig á vand­anum. Fleiri eru með heil­brigða skyn­semi og sjá að þetta er ofbeldi. Þegar þú ferð að tala um þetta þá sérðu að það er engin bar­átta því það eru allir sam­mála. En það breytir ekki neinu. Enn þann dag í dag eru börn beitt sama ofbeldi á hverjum ein­asta degi, þar sem þeim er hent inn á Stuðla og smit­ast af hvað öðru. Sonur minn deyr síðan og mér fall­ast bara hendur. Það var enga vernd að fá fyrir son minn og það er engan vernd­ar­hjúp að fá fyrir þessi börn í sam­fé­lag­inu.“  

Segja sannleika sonarins

Í ljósi alls er hann hættur að berj­ast fyrir breyt­ingum. „Ég mun ekki taka annan slag fyrir þessum málum. Þetta er búið að taka nógu mikið frá minni fjöl­skyldu og af okkar sál. Nú finnst okkur mik­il­væg­ast að hans sann­leikur sé sagður, vegna þess að hann getur ekki sagt hann sjálfur.“

Að lokum tekur hann fram að þótt hann gagn­rýni kerfið beri hann ekki kala til neins. Allra síst starfs­manna þess­ara kerfa. „Ég sár­vor­kenni fólki sem vinnur þarna, því við töl­uðum við marga kenn­ara, barna­vernd­ar­full­trúa, lög­reglu­menn, með­ferð­ar­full­trúa og starfs­menn geð­deilda sem blöskr­aði þetta öllum. Ráðamenn koma og fara en kerfin við­halda sér. Engum er um að kenna, nema skeyt­ing­ar­leysi sam­fé­lags­ins. Ef við myndum öll mót­mæla því að hér sé verið að fórna börnum þá yrði þessu kerfi breytt sam­stundis. En við gerum það ekki og á meðan munu börn þjást. Við erum öll sam­sek.“

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásta Jensen skrifaði
    Átakalegt að lesa þessa sögu. Ég hefði viljað að fólk sem hjálpaði honum hefði grafið ofan í, afhverju leið honum illa? Hvað var það sem fór um huga hans?
    0
  • Thordis Thordardottir skrifaði
    Atakanleg saga sögð af miklum kjarki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Týndu strákarnir

„Starfsmenn hafa verið hræddir“
InnlentTýndu strákarnir

„Starfs­menn hafa verið hræddir“

Á Stuðlum hefur sér­stöku öryggis- og við­bragð­steymi hefur verið komið á til að takast á við árásir á starfs­menn og tryggja að þving­anir gagn­vart börnum fari fag­lega fram. Tengsl eru besta for­vörnin segir starf­andi for­stöðu­maður en það dugar ekki alltaf til. Starfs­menn hafa lent í því að það er hrækt á þá, þeir bitnir, skall­aðir og nef­brotnir. Sparkað hefur verið í haus­inn á starfs­mani, hár rifið af höfði starfs­manns og brotin tönn.
Syrgja fyrrverandi skjólstæðing: Til mikils unnið ef hægt er að koma heilunarferli af stað
InnlentTýndu strákarnir

Syrgja fyrr­ver­andi skjól­stæð­ing: Til mik­ils unnið ef hægt er að koma heil­un­ar­ferli af stað

„Við leyfum ekki neyslu hér inni en hver er hinn val­mögu­leik­inn?“ spyr starf­andi for­stöðu­maður Stuðla. Reglur kveða skýrt á um að fíkni­efni séu bönnuð á Stuðlum en börnum er ekki vísað út vegna neyslu. Ef hægt er að koma heil­un­ar­ferli af stað er til mik­ils unnið. „Þetta eru börn sem við þurfum að vernda,“ segir for­stöðu­mað­ur­inn, en starfs­fólkið syrgir fyrr­ver­andi skjól­stæð­ing.
Stuðlar: „Með börn sem voru sekúndum frá því að deyja“
VettvangurTýndu strákarnir

Stuðlar: „Með börn sem voru sek­úndum frá því að deyja“

Mann­skæður bruni, starfs­maður með stöðu sak­born­ings og fíkni­efnin flæð­andi – þannig hafa frétt­irnar verið af Stuðlum. Starfs­menn segja mikið geta gengið á. „Þetta er stað­ur­inn þar sem börnin eru stoppuð af,“ segir starf­andi for­stöðu­maður. Flestir sem þangað koma hafa orðið fyrir alvar­legum áföllum og bera sár sem getur tekið ævina að gróa.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár