Fresta því aftur að opinbera kostnað við leiðtogafundinn

Utan­rík­is­ráðu­neytið gat ekki svarað því hver áætl­aður kostn­aður við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins er fyrir þann tíma sem þing­sköp heim­ila, og bað um frest. Sá frestur rann út í dag og ráðu­neytið hefur beðið um lengri frest. Nú ætlar það að svara fyr­ir­spurn­inni í lok mán­aðar.

Fresta því aftur að opinbera kostnað við leiðtogafundinn
Leið­toga­fundur Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra þegar skrifað var undir yfir­lýs­ingu um tjóna­skrá á fund­inum. Mynd: Sigurjon Ragnar\ntel +35489799667

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur til­kynnt að úrvinnsla fyr­ir­spurnar sem því barst frá Bergþóri Ólasyni, þing­manni Mið­flokks­ins, um kostnað við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins hafi reynst tíma­frek­ari en áður var ætlað. Það hefur því óskað eftir fresti til 30. júní til að svara henni. 

Fyr­ir­spurnin var lögð fram 27. apríl og sam­kvæmt þing­sköpum á að svara henni innan 15 virkra daga. Það tókst ekki. Þegar sá frestur var lið­inn óskaði utan­rík­is­ráðu­neytið eftir fresti til 12. júní til að svara fyr­ir­spurn­inni. Í dag var svo send önnur til­kynn­ing til for­seta Alþingis þar sem óskað var eftir enn lengri fresti til að svara henni.

Bergþór vildi fá að vita hver áætl­aður heild­ar­kostn­aður við leið­toga­fund­inn væri og hvernig hann skipt­ist milli opin­berra aðila. Hann vildi líka fá að vita hvernig kostn­að­ur­inn skipt­ist milli verk­þátta, svo sem örygg­is­gæslu, skipu­lagn­ingar og svo fram­vegis. 

Áætluðu að kostnaðurinn yrði tveir milljarðar

Leið­toga­fundur Evr­ópu­ráðs­ins fór fram í Reykja­vík þriðju­dag­inn 16. maí og mið­viku­dag­inn 17. maí. Þangað mættu um 40 þjóð­ar­leið­togar, auk þess sem Volodomyr Zelensky, for­seti Úkraínu, ávarp­aði fund­inn í gegnum fjar­fund­ar­búnað. Alls komu um 900 manns til lands­ins vegna fund­ar­ins. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem settar voru fram á vef stjórn­ar­ráðs­ins í aðdrag­anda fund­ar­ins átti beinn kostn­aður við fram­kvæmd fund­ar­ins að vera nálægt tveimur millj­örðum króna. 

Sautján hótel í mið­borg Reykja­víkur voru nýtt undir þjóð­ar­leið­toga, fylgd­ar­lið og gesti þegar leið­toga­fundur Evr­ópu­ráðs­ins stóð yfir. Auk þess voru tugir glæsi­bíla fluttir hingað til lands, sem meðal ann­ars voru not­aðir í fylgd­arakstur leið­tog­anna.

Löggæsla dýrasti verkþátturinn

Örygg­is­gæsla vegna fund­ar­ins var mun meiri en Íslend­ingar eiga almennt að venj­ast. Nær allir lög­reglu­menn lands­ins og erlendir lög­reglu­menn komu að verk­efn­inu. Við Hörpuna voru vopn­aðir lög­reglu­menn í tuga­tali, með hríð­skota­byssur, leyniskyttur voru á þökum nær­liggj­andi húsa og búið að loka allri umferð um svæðið.

Greint hefur verið frá því að stærsti kostn­að­ur­inn í tengslum við fund­inn fór í lög­gæslu og var hann áætl­aður í kringum 1,3 millj­arð króna. Inni­falið í honum voru kaup á vopnum og öðrum vopna­bún­aði. Auk þess hefur komið fram að alls 250 jakka­föt hafi verið keypt fyrir óein­kenn­is­klædda lög­reglu­menn vegna fund­ar­ins. Sam­skipta­stjóri rík­is­lög­reglu­stjóra vildi ekki gefa upp kostnað vegna þeirra kaupa þegar Heim­ildin óskaði eftir því í lok apríl og bar fyrir sig örygg­is­á­stæður.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri sagði í sam­tali við Heim­ild­ina eftir að fund­ur­inn var afstað­inn að end­an­legur kostn­aður við hann myndi hins vegar ekki liggja fyrir fyrr en eftir að ráð­stefnan yrði gerð upp.  

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    Allir aðstoðarmennirnir gátu ekki fundið tölurnar …aumingja þau 😆
    Hefur ekki sannast að öll þessi goverment spending á sjálfan sig hefur ekki gert goverment betri …heldur frekar lélegri. Nú eru bara fleiri aðstoðarmönnum um að kenna… Sem kannski er tilgangurinn ?!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár