Samningar undirritaðir á áttunda tímanum og verkföllum BSRB aflýst

Um sjö þús­und félagar í BSBR fá sátt­ar­greiðslu upp á 105 þús­und krónur, sem kostar yfir 700 millj­ónir króna, til við­bótar við 35 þús­und króna mán­að­ar­lega launa­hækkun og 131 þús­und króna des­em­ber­upp­bót.

Samningar undirritaðir á áttunda tímanum og verkföllum BSRB aflýst
Formaður Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir segir það hafa verið magnað að upp­lifa kraft­inn, sam­stöð­una og bar­áttu­þrekið meðal félags­fólks síð­ustu vikur sem og stuðn­ing sam­fé­lags­ins. Mynd: Hari

Mán­að­ar­laun félags­fólks ell­efu aðild­ar­fé­laga BSRB, alls um 7.000 manns, munu hækka um 35 þús­und krónur og des­em­ber­upp­bót þeirra verður 131 þús­und krónur eftir að nýr kjara­samn­ingur var und­ir­rit­aður í morgun.

Launa­hækk­unin gildir frá 1. apríl og sér­stök sátt­ar­greiðsla upp á 105 þús­und krónur verður greidd til þeirra sem samn­ing­ur­inn nær til vegna fyrstu þriggja mán­aða árs­ins. Samn­ing­ur­inn gildir til skamms tíma, eða 31. mars á næsta ári. 

Samn­ing­ur­inn, sem er á milli ell­efu aðild­ar­fé­laga BSRB og Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, var und­ir­rit­aður á átt­unda tím­anum í morgun eftir samn­inga­fund sem stóð í 14 klukku­tíma. Verk­falls­að­gerðum 2.500 félags­manna aðild­ar­fé­laga BSRB í 30 sveit­ar­fé­lögum hefur sam­hliða verið aflýst.

Í til­kynn­ingu frá BSBR er haft eftir Sonju Ýr Þor­bergs­dóttur, for­manni BSRB, að það hafi verið magnað að upp­lifa kraft­inn, sam­stöð­una og bar­áttu­þrekið meðal félags­fólks síð­ustu vikur sem og stuðn­ing sam­fé­lags­ins. Margt jákvætt megi finna í samn­ingnum. „Við getum verið hóf­lega sátt við þessa nið­ur­stöðu. Lægstu laun hækka veru­lega auk þess sem við fengum sátta­greiðslu sam­þykkta og hækkun á til­tekin starfs­heiti.“

Ekki gengið að kröfum sem voru ófrávíkjanlegar

Í um fjórar vikur hafa verk­föll um 2.500 félags­manna BSRB sem starfa í leik­skólum, íþrótta­mann­virkjum og víðar í nokkrum sveit­ar­fé­lögum, raskað lífi almenn­ings. Stétt­ar­fé­lagið og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga höfðu ekki náð saman í deilu um kjör fólks­ins.

BSRB gerði kröfu um 128.000 króna ein­greiðslu fyrir 7.000 félags­menn sem fengu minna greitt á fyrstu mán­uðum árs­ins en fólk í sömu störfum sem er í Starfs­greina­sam­band­inu. BSRB sagði kröf­una ófrá­víkj­an­lega en Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga vildi ekki gang­ast við kröf­unni þar sem hún rím­aði ekki við kjara­samn­ing­inn sem gerður var við BSRB árið 2020. 

Á end­anum náð­ist sátt um þennan lið þar sem greidd var 105 þús­und króna sátt­ar­greiðsla sem kostar sveit­ar­fé­lögin um 735 millj­ónir króna. Ef gengið hefði verið að kröfu BSBR hefði kostn­að­ur­inn verið nálægt 900 millj­ónum króna. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hannes Og Hanna skrifaði
    gott aaa[ b'ui[ a[ semj
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "þar sem greidd var 105 þúsund króna sáttargreiðsla.."
    Tveggja daga laun miðlungs bæjarstjóra. En laun þeirra lúta öðrum lögmálum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár