Íbúðalánavextir Íslandsbanka hækkaðir og eru komnir í 10,5 prósent

Tveir af þremur stóru bönk­unum hafa hækkað óverð­tryggða vexti á íbúða­lánum upp í tveggja stafa tölu. Lán líf­eyr­is­sjóða eru sem stendur á mun betri kjörum. Greiðsla af 45 millj­óna króna láni hefur hækkað um 175 þús­und krónur á einu og hálfu ári.

Íbúðalánavextir Íslandsbanka hækkaðir og eru komnir í 10,5 prósent
Hækka Birna Ein­ars­dóttir er banka­stjóri Íslands­banka. Mynd: Nasdaq Iceland

Íslands­banki hefur ákveðið að hækka breyti­lega vexti á óverð­tryggðum íbúða­lánum úr 9,25 í 10,5 pró­sent. Hækkunin mun taka gildi á föstu­dag. Hún kemur í kjöl­far þess að Seðla­banki Íslands hækk­aði stýri­vexti sína í þrett­ánda sinn í röð í síð­asta mán­uði, nú um 1,25 pró­sentu­stig og upp í 8,75 pró­sent. Á rúmum tveimur árum, síðan í apríl 2021, hafa breyti­legir óverð­tryggðir vextir hjá Íslands­banka farið úr því að vera 3,4 pró­sent í áður­nefnda tölu, 10,5 pró­sent. Þeir hafa því hækkað um 7,1 pró­sentu­stig á tíma­bil­inu. 

Íslands­banki er annar hinna þriggja kerf­is­lega mik­il­vægu banka til að hækka vexti á óverð­tryggðum íbúða­lánum sínum. Lands­bank­inn reið á vaðið í síð­ustu viku og hækk­aði sína vexti upp í 10,25 pró­sent. Þar með voru vextir á íbúða­lánum komnir í tveggja stafa tölu í fyrsta sinn í yfir­stand­andi verð­bólgu­á­standi, en hún mælist nú 9,5 pró­sent. Vextir Lands­bank­ans voru 3,3 pró­sent í apríl 2021. 

Arion banki er eini stóru bank­anna þriggja sem hefur enn sem komið er ekki til­kynnt um vaxta­hækkun, en fast­lega er búist við að hann muni fylgja í fót­spor hinna á allra næstu dögum. Þeir eru sem stendur 9,34 pró­sent og ef vext­irnir hækka um 1,25 pró­sentu­stig munu þeir fara í 10,59 pró­sent. Lægstir voru vext­irnir hjá Arion í apríl 2021, þegar þeir voru 3,44 pró­sent. 

Þeir líf­eyr­is­sjóðir sem eru stór­tæk­astir í óverð­tryggðum útlánum hafa ekki boðað neina vaxta­hækkun enn sem komið er og bjóða sem stendur upp á mun skap­legri vexti en bank­arnir. 

Lægstir eru þeir sem stendur hjá Brú, eða 7,9 pró­sent. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna lánar nú á 8,2 pró­sent vöxtum og hjá Gildi eru breyti­legu óverð­tryggðu vext­irnir komnir upp í 8,6 pró­sent.

Greiðslubyrði næstum tvöfaldast

Samkvæmt tölum sem Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS) hefur tekið saman þurfti sá sem var með óverð­tryggt lán upp á 45 millj­ónir króna á breyti­legum vöxtum að borga 191.700 krónur af slíku láni í upp­hafi árs 2022. Þegar allir bank­arnir verða búnir að hækka vexti sína eftir síð­ustu stýri­vaxta­hækkun verða þeir allir komnir yfir tíu pró­sent. Útreikn­ingar HMS sýna að greiðslu­byrðin af slíku láni verði þá komin í 366.795 krónur á mán­uði, og hafi þá auk­ist um 175.275 krónur á einu og hálfu ári. 

Alls eru lán upp á næstum 600 millj­arða króna á föstum óverð­tryggðum vöxtum sem losna á næstu þremur árum. Bindi­tími lána upp á 74 millj­arða króna renna út á þessu ári, en um er að ræða lán 4.451 heim­ila.  

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands brýndi fyrir bönkum og öðrum lán­veit­endum í morgun að huga tím­an­lega að þyngri greiðslu­byrði lán­tak­enda til þess að fyr­ir­byggja greiðslu­erf­ið­leika þeirra. Viðbúið sé að þrengri fjár­mála­skil­yrði birt­ist fyrr eða síðar í auknum van­skilum en að rétt sé að hafa í huga að van­skil geti komið fram með nokk­urri tíma­töf. „Þar sem þörf krefur ber að skoða að lengja láns­tíma, taka upp jafn­greiðslu­skil­mála, setja þak á greidda nafn­vexti og líta til ólíkra lána­forma sem bjóða upp á mis­mun­andi greiðslu­byrði. Rúm eig­in­fjár­staða margra lán­taka ætti að gefa tölu­vert svig­rúm til að tryggja að greiðslu­byrði hald­ist í takti við við­mið lán­þega­skil­yrða sem nefndin hefur sett.“ 

Þetta kom fram í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar, sem leidd er af Ásgeiri Jónssyni seðla­banka­stjóra, sem birt var í morgun og minn­is­blaði hennar sem birt var sam­hliða.

Rekstr­ar­af­koma íslensku bank­anna hefur verið góð þrátt fyrir erfitt árferði. Þeir högn­uð­ust sam­tals um 20,3 millj­arða króna á fyrstu þremur mán­uðum yfir­stand­andi árs. Allir þrír juku hagnað sinn frá sama tíma­bili 2022, enda juk­ust vaxta­tekjur þeirra mikið milli ára og eru langstærsti tekju­póst­ur­inn í rekstri þeirra. Vaxta­munur þeirra – Munurinn á þeim vöxtum sem bank­arnir borga fyrir að fá pen­inga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum fjár­muni –hefur auk­ist hægt og bít­andi og var 2,8 til 3,2 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi, minnstur hjá Lands­bank­anum en mestur hjá Íslands­banka.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    sennilega skárra en 97% vextir í argentínu . . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár