Stóru bankarnir högnuðust um yfir 20 milljarða á þremur mánuðum

Vaxta­tekjur bank­anna juk­ust mikið milli ára og eru stóri tekju­póst­ur­inn í rekstri þeirra. Einka­bank­arnir eru á fullu að skila fjár­munum úr rekstr­inum til hlut­hafa sinna í gegnum arð­greiðslur og end­ur­kaup.

Stóru bankarnir högnuðust um yfir 20 milljarða á þremur mánuðum

Stóru við­skipta­bank­arnir þrír: Íslands­banki, Lands­bank­inn og Arion banki, högn­uð­ust sam­tals um 20,3 millj­arða króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, en þeir birtu allir upp­gjör vegna fyrsta árs­fjórð­ungs í gær.

Allir bank­anir juku hagnað sinn frá sama tíma­bili 2022. 

Hagnaður Lands­bank­ans, sem er að mestu í eigu íslenska rík­is­ins, á fyrsta árs­fjórð­ungi var 7,8 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar hagn­að­ist bank­inn um 3,2 millj­arða króna á sama tíma­bili 2022. Því jókst hagn­aður Lands­bank­ans á fyrsta árs­fjórð­ungi um 144 pró­sent milli ára.

Stóra breytan þar er áfram sem áður gagn­virði óskráðra eign­ar­hluta bank­ans, aðal­lega í Eyri Invest hf., en hagn­aður af því gang­virði var tæp­lega 3,3 millj­arðar króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Lands­bank­inn á 14,1 pró­sent í Eyri Invest, sem er langstærsti eig­andi Marel. Mark­aðsvirði Marel jókst um 16 pró­sent frá ára­mótum og út mars­mánuð.

Sú hækkun þurrk­að­ist hins vegar út í gær þegar bréf í félag­inu féllu um tæp­lega 18 pró­sent eftir að Marel birti upp­gjör sem olli von­brigðum, aðal­lega vegna þess að pant­anir hjá félag­inu höfðu dreg­ist umtals­vert saman milli ára. 

Hreinar vaxta­tekjur Lands­bank­ans á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2023 voru 13,1 millj­arður króna og var langstærsti hluti veltu bank­ans, sem alls nam 17,3 millj­örðum króna. Vaxta­tekj­urnar voru 27,3 pró­sent hærri en á sama tíma­bili í fyrra. Í upp­gjör­skynn­ingu segir að þetta sé vegna hækk­andi vaxtaum­hverfis og stækkun á efna­hags­reikn­ingi Lands­bank­ans, en útlán bank­ans hafa auk­ist um 160 millj­arða króna á síð­ustu 12 mán­uðum. Vaxta­munur var 2,8 pró­sent hjá Lands­bank­anum á fyrsta árs­fjórð­ungi.

Vill ljúka „bestun efnahagsreiknings“

Íslands­banki, þar sem íslenska ríkið er enn stærsti eig­and­inn, hagn­að­ist um 6,2 millj­arða króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Það er einum millj­arði króna meira en bank­inn hagn­að­ist um á sama tíma í fyrra. Arðsemi eigin fjár hans jókst milli ára og var 11,4 pró­sent sem er yfir mark­miði Íslands­banka. 

Mestu mun­aði um mik­inn vöxt í vaxta­tekjum sem juk­ust um 34,9 pró­sent milli ára og voru 12,4 millj­arðar króna á fyrsta árs­fjórð­ungi. Vaxta­tekj­urnar byggja á mun­inum á þeim vöxtum sem bank­arnir borga fyrir að fá pen­inga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum fjár­muni. Sá munur kall­ast vaxta­munur. Vaxta­munur Íslands­banka hefur hækkað umtals­vert frá því í byrjun árs í fyrra og er nú 3,2 pró­sent. 

Þókn­ana­tekjur juk­ust einnig frá sama tíma­bili 2022 og voru tæp­lega 3,5 millj­arðar króna. 

Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans var 42,1 pró­sent sem er í sam­ræmi við mark­mið hans. Það var 47,6 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi í fyrra. 

Íslands­banki greiddi 12,3 millj­arða króna í arð til hlut­hafa sinna vegna árang­urs hans á síð­asta ári. Á aðal­fundi bank­ans í mars var heim­ild hans til að kaupa eigin hluti af hlut­höfum end­ur­nýjuð. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands segir að Íslands­banki fyr­ir­hugi að „halda áfram með fimm millj­arða end­ur­kaup á eigin bréfum á kom­andi mán­uðum, og ljúka bestun efna­hags­reikn­ings fyrir lok árs 2024, með fyr­ir­vara um aðstæður á mörk­uðum“.

Íslands­banki er sem stendur í sam­ein­ing­ar­við­ræðum við Kviku banka. Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu sem þeir sendu frá sér á mið­viku­dag sagði að stjórnir bank­anna tveggja telji að „veru­legur ávinn­ingur geti falist í sam­run­anum fyrir bæði hlut­hafa og við­skipta­vini beggja félaga“.

Arion banki með mestu arðsemina

Arion banki hagn­að­ist um 6,3 millj­arða króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, sem er átta pró­sent meira en bank­inn hagn­að­ist um á sama tíma í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 13,8 pró­sent, og þar með hærri en hjá báðum helstu sam­keppn­is­að­il­unum. 

Líkt og hjá hinum bönk­unum tveimur var það fyrst og síð­ast vegna mik­illar aukn­ingar í vaxta­tekjum sem juk­ust um einn og hálfan millj­arð króna og voru rúm­lega ell­efu millj­arðar króna. Þókn­ana­tekjur juk­ust einnig umtals­vert og voru 4,4 millj­arðar króna. 

Vaxta­munur Arion banka var 3,1 pró­sent sem er sá sami og hann var á fyrsta árs­fjórð­ungi í fyrra. Arð­greiðslur vegna frammi­stöðu síð­asta árs og end­ur­kaup á bréfum hlut­hafa námu alls 14,8 millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár