Tucker Carlson heldur ótrauður áfram – á Twitter

Sjón­varps­stöðin Fox og þátta­stjórn­and­inn Tucker Carlson komust ekki að „sam­eig­in­legri ákvörðun“ um starfs­lok hans. Klúr og niðr­andi ummæli um sam­starfs­konur voru kornið sem fyllti mæl­inn. Carlson sakar Fox um brot á samn­ingi, er hvergi nærri hættur og ætlar að halda úti spjall­þætti á Twitter.

Tucker Carlson heldur ótrauður áfram – á Twitter
Spjall­þátta­stjórn­and­inn Carlson Tucker Carlson var vikið úr starfi hjá Fox News í lok apríl eftir tæp 14 ár í starfi. Starfs­lokin voru sögð sam­eig­in­leg ákvörðun en ástæður brott­rekst­urs­ins eru marg­þættar og tengj­ast meðal ann­ars niðr­andi ummælum um sam­starfs­fólk og mati Carlson um eigið ágæti. Mynd: AFP

Tucker Swanson McNear Carlson er 53 ára fjöl­miðla­maður og stjórn­mála­skýr­andi hjá Fox News sem hefur stjórnað einum vin­sælasta stjórn­mála­um­ræðu­þætti Banda­ríkj­anna síð­ustu sex ár. Þar til hann var rek­inn þann 24. apríl síð­ast­lið­inn. 

Í yfir­lýs­ingu Fox News sem birt var á vef útgáfu­fé­lags­ins sagði að sjón­varps­stöðin og Carlson hefðu kom­ist að sam­komu­lagi um starfs­lok Carlson. En hið rétta er að Carlson var rek­inn. For­svars­menn Fox News, sem er í eigu fjöl­miðl­aris­ans Ruperts Murdoch, hafa ekki viljað tjá sig um starfs­lok Carlson en sam­kvæmt heim­ildum ann­arra banda­rískra fjöl­miðla, til að mynda Wall Street Journal og New York Times, eru ástæð­urnar fjöl­margar. Kornið sem fyllti mæl­inn voru klúr og niðr­andi ummæli um kven­kyns fram­leið­anda sjón­varps­stöðv­ar­innar. 

Carlson hefur um ára­bil verið ein helsta stjarna Fox og sjón­varps­þáttur hans, Tucker Carlson Tonight, hefur verið meðal vin­sæl­ustu …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár