Tucker Carlson hættir hjá Fox News

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Tucker Carlson hefur stýrt sínum síð­asta þætti á Fox News. Banda­ríska fjöl­miðla­fyr­ir­tækið greinir frá þessu í til­kynn­ingu í dag.

Tucker Carlson hættir hjá Fox News
Fox Flenni­stór mynd af Tucker Carlson utan á höf­uð­stöðvum Fox News. Hann hefur nú stýrt sínum síð­asta þætti hjá Fox. Mynd: EPA

Sjón­varps­mað­ur­inn Tucker Carlson er hættur störfum hjá banda­rísku sjón­varps­stöð­inni Fox News. Frá þessu segir í yfir­lýs­ingu sem birt var á vef útgáfu­fé­lags­ins Fox News Media í dag, en þar segir að Fox og Carlson hafi kom­ist að sam­komu­lagi um að hann láti af störfum.

Þar kemur fram að hann hafi stjórnað sínum síð­asta þætti á Fox News síð­asta föstu­dag. Þátt­ur­inn hans, Tucker Carlson Tonight, hefur um ára­bil verið einn vin­sæl­asti þátt­ur­inn í sjón­varpi vest­an­hafs og Carlson sam­hliða því orðið einn áhrifa­mesti fjöl­miðla­maður Banda­ríkj­anna, en hann hafði starfað á Fox News allt frá árinu 2009.

Hann hefur jafn­vel verið orð­aður við for­seta­fram­boð á næsta ári, en hefur neitað því að hafa í hyggju að reyna að nýta vin­sældir sínar af skjánum til þess að verða fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins í kosn­ing­unum.

Engin ástæða er gefin fyrir brott­hvarfi Carlson í til­kynn­ing­unni frá Fox. Fyrr í mán­uð­inum ákvað Fox að greiða fyr­ir­tæk­inu Dominion, sem fram­leiðir kosn­inga­vélar sem m.a. eru not­aðar í Banda­ríkj­unum, 787,5 millj­ónir banda­ríkja­dala sátta­greiðslu til að ljúka mál­sókn Dominion á hendur fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu.

Dominion höfð­aði mál gegn Fox sökum þess að þátta­stjórn­endur og gestir á Fox, Carlson þeirra á meðal, end­ur­tóku ítrekað að kosn­inga­vél­arnar frá Dominion hefðu verið mis­not­aðar í þágu Joe Biden gegn Donald Trump í for­seta­kjör­inu sem fram fór árið 2020.

Dómskjöl sem fjallað var um í tengslum við málið sýndu að þátta­stjórn­endur sjálfir, Carlson þeirra á meðal, höfðu litla trú á kenn­ingum í þá veru, þrátt fyrir að varpa þeim áfram til millj­óna áhorf­enda heima í stofu.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hann getur ráðið sig til Infowar eða Breitbart.Samsæriskenninga smiðir og rugludallar eru ekki í neinum vandræðum með að fá vinnu í spunaverksmiðjum út um allan heim í dag..
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Tucker gerir sér grein fyrir því að hann er orðinn ósannfærandi eftir það sem á undan er gengið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár