Kjötheilar 2 - Gervigreind 0

Doktor Gunni rýnir í Warmland – Modular Heart og Tilbury – So Overwhelming.

Kjötheilar 2 - Gervigreind 0

Það er bylt­ing í lofti, vill fólk meina. Fjórða iðn­bylt­ingin, hvorki meira né minna. Gervi­greind er í veld­is­vexti og notk­un­ar­mögu­leikar hennar teygja sig víða – er manni sagt. Margir eru skelk­aðir og sífra and­stuttir um „enda­lok mennsk­unnar og bla bla bla. Það ætti þó kannski frekar að kalla fyr­ir­bærið gervi­heimsku því það gerir ekki annað en að fram­reikna sig innan þess ramma sem mann­legir heilar hafa þegar smíðað – er það „greind“ að vera apa­köttur? Láti maður gervi­heimsk­una búa til fyrir sig list verður hún fyr­ir­sjá­an­legt sull, blanda úr því sem áður hefur verið gert, miðju­moð og leið­indi. Algjört drasl, sem sé. Þess vegna hef ég engar áhyggjur. Það þarf enn fram­úr­skar­andi kjöt­heila til að búa til frum­lega list, sem ein­hverju máli skiptir. Endalok mennsk­unnar eru hvergi í aug­sýn.

En það þarf svo sem ekki gervi­heimsku til að gera stæl­ingar, kjöt­heilar hafa stundað það öldum saman. Mest af því sem puðr­ast dag­lega út í loftið á streym­isveitum heims­ins er and­laus öpun, dæmt til taf­ar­lausrar gleymsku á þessu slig­andi hlað­borði sem Daniel Ek og önnur sænsk vél­menni sturta yfir hlað­borðið án afláts. Annar hvert lag kannski úr ranni ein­hvers fram­reikn­aðs gervi­heimsku-botta, hitt frá kjöt­öp­un­ar­heilum á tveimur fótum. Sama hvað bott­arnir remb­ast þá kemur aldrei nein snilld og eitt­hvað sem ristir dýpra en vegg­fóður – en það er þó alla­vega alltaf séns að kjöt­heilar rambi á snilld.

Nú er kom­inn mik­ill for­máli að því sem hér er til grund­vallar, rýni á plötur Warmland og Tilbury. Halda kannski sumir að hér verði sax­inu sveiflað og slát­ur­tíð hefj­ist með skírskotun til þess að þessar plötur hljóti að hafa verið gerðar af gervi­greind, svo and­lausar sem þær eru. En nei nei, tæknin er ekki orðin svo góð enn. Hér eru ekta kjöt­menni á ferð og gott and­ríki.

Warmland - Modular Heart

★★★★✰

Fjórar stjörnur

Warmland er dúett þeirra Arnars Guð­jóns­sonar og Hrafns Thorodd­sen. Þeir eiga rætur í indí-rokki Níunnar, Arnar var aðal­mað­ur­inn í Leaves og Hrafn hamr­aði Hamm­ondið með Jet Black Joe og stofn­aði Ensími þegar ævin­týrið með Gunna Bjarna og Páli Rós­in­krans sigldi í strand. Modular Heart er önnur plata þeirra félaga, sú fyrri, Unison Love, kom út 2019. Það sem fyrst vekur eft­ir­tekt er hversu stúd­íó­fágað og „dýrt“ sánd er á plöt­unni. Öllu hefur verið rennt í gegnum nýmóð­ins síur og öpp svo áferðin er silki­mjúk. Tón­listin gæti kall­ast eins konar aug­lýs­inga­stofu-indípopp, nógu sett­leg til spil­unar í opin­beru almanna­rými. Ég þyk­ist heyra áhrif frá alþjóð­legum stór­löxum eins og Tame Impala, Daft Punk og Phoenix og er það auð­vitað ekki leiðum að líkj­ast.

Strák­arnir syngja á ensku. Þeir hafa áþekka raddir, Arnar þó aðeins leti­legri og sval­ari eins og í hinu stór­góða lagi Family. Aðrir góðir poppsmellir eru SQ80, Superstar Minimal og stór­ball­aðan Voltage. Báðir með­lim­irnir eru með annan fót­inn í kvik­mynda­gerð og því hafa fjögur metn­að­ar­full mynd­bönd litið ljós við lög af plöt­unni. Þeir lofa verk­inu á föstu formi sem ætti að vera mörgum fagn­að­ar­efni því þetta er stór­fín plata hjá þeim.


Tilbury - So Overwhelming

★★★★✰

Fjórar stjörnur

Hljóm­sveitin Tilbury er svo­lítið annar hand­leggur þótt margt sé líkt (indípopp, sungið á ensku, mið­aldra með­limir sem hafa komið víða við á rokksen­unni). Dæmið byrj­aði sem sóló-hug­ar­fóstur Þormóðs Dags­sonar, sem hafði þá trommað með Skakkamanage og Jeff Who? Vatt svo upp á sig og er fimm manna band í dag, svo vel skipað að hvíslað er um súpergrúppu. Þormóður syngur og semur senni­leg­ast flest. Hann hefur frekar feimna rödd og yfir plöt­unni hvílir ein­hver tregi og ang­ur­værð. Þetta er þriðja Tilbury platan og sú fyrsta í ára­tug.

 Lögin eru ekki nema átta, öll í svip­uðu miðju­tempói og ekk­ert sem bein­línis grípur mann föstum tökum í fyrstu, annarri hlustun. Þetta er djúp­tekn­ara stöff sem opnar sig ekki upp á gátt fyrr en eftir ítrekað rennsli. Þá kemur líka margt þrus­u­gott í ljós, lúmska gleðipillan Architecture, Air-legi poppsleð­inn Frail Light og dramat­íska ball­aðan Skylights, sem söng­konan Mr. Silla tekur undir í, svo ég nefni bara þrjú dæmi af mjög góðri heild.

 Eða eins og gervi­heimskan, vin­kona mín, segir: „So Overwhelming er án efa vel fram­kvæmd plötu sem gerir góða notkun á hrein­leika í tón­list­inni. Með frá­bærum tón­list­ar­hæfi­leikum og vel val­inu orða­lagi, kemur Tilbury áfram sem tón­list­ar­fólk sem sann­ar­lega þekkir þau braut sem það er á og er til­valin plöta fyrir þá sem vilja fá hreint og hrifn­andi tón­list­ar­upp­lifun.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gudmundur Einarsson skrifaði
    4,5 stjörnur af 5
    Flökurlegur hreimur gerviheimskunnar bergmálar í iðrunum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár