Gamall Karl í nýju hlutverki

Erfitt efna­hags­á­stand í Bret­landi og blóðug saga kon­ungs­fjöl­skyld­unnar hefur valdið spennu yfir kom­andi krýn­ingu Karls hins þriðja Breta­kon­ungs. Pró­fessor í sagn­fræði segir kon­ungs­dæmið til­heyra fornum heimi.

Gamall Karl í nýju hlutverki

Karl hinn þriðji verður form­lega krýndur kon­ungur Bret­lands laug­ar­dag­inn 6. maí og eig­in­kona hans, Kamilla, krýnd drottn­ing. Krýn­ingin er haldin átta mán­uðum eftir and­lát Elísa­betar fyrrum Bret­lands­drottn­ingar. 

Kon­ungs­fjöl­skyldan er flestum kunn, en sjaldan líður langt á milli þess að vanda­mál hinna kon­ung­bornu rati á síður bresku pressunnar. Dvínandi vin­sældir fjöl­skyld­unnar á meðal almenn­ings og flekk­ótt orð­spor Karls hins þriðja í opin­berri umræðu gera það að verkum að sumt fræg­asta fólk Bret­lands vill ekki tengja sig við fjöl­skyld­una lengur og almenn­ingur spyr sig hvers vegna hann eigi að styðja kon­ungs­veldi í lýð­ræð­is­ríki.

Mikið hefur verið rætt um kostnað við krýn­ing­una á Bret­landseyjum. Þar spila inn í erf­iðar efna­hags­að­stæður, sam­hliða vax­andi kröfu um að kon­ungs­fjöl­skyldan axli ábyrgð á blóð­ugri sögu krún­unnar og því hvernig hún söls­aði undir sig völdum. 

Opinber ímynd Karls

Karl þriðji verður 74 ára gam­all þegar hann tekur form­lega við kon­ungs­veld­inu. Opinber ímynd Karls mót­ast óhjá­kvæmi­lega af storma­sömum ást­ar­sam­böndum. Eftir and­lát Díönu prinsessu árið 1997 átti Karl erfitt upp­dráttar á meðal almenn­ings, en hann hélt fram­hjá henni með núver­andi konu sinni, Kamillu, og var sagður hafa komið leið­in­lega fram við Díönu.

Vil­hjálmur og Harry, synir Karls, eru ekki óvanir sviðs­ljós­inu en sá síð­ar­nefndi skrif­aði nýverið sína fyrstu sjálfsævi­sögu. Í bók­inni, sem sló sölu­met víða um heim, greinir Harry frá ýmsum leynd­ar­málum fjöl­skyld­unnar. Þar kemur meðal ann­ars fram að Karl hafi aldrei knúsað hann og fyrir það líði hann enn í dag, því snert­ing­ar­leysið hafi valdið honum sál­rænum skaða.  

Erfðaveldi samræmist ekki lýðræðisríki

Ragn­heiður Krist­jáns­dóttir er pró­fessor í sagn­fræði við Háskóla Íslands. Hún segir kon­ungs­dæmið til­heyra fornum heimi og emb­ættið sé fyrst og fremst tákn­rænt á 21. öld­inni. „Hug­myndin um erfða­veldi sam­ræm­ist ekki okkar hug­myndum um lýð­ræð­is­ríki, sem hefur verið grund­vall­ar­at­riði í Bret­landi og nágranna­ríkj­unum frá því snemma á 19. öld. Þrátt fyrir það tókst Elísa­betu, sem tók við af föður sínum árið 1952, að skapa sér sess og halda honum innan bresks stjórn­kerfis og reyndar heims­veld­is­ins líka nokkuð áfalla­lítið.“

Ragn­heiður Krist­jáns­dóttirPró­fessor í sagn­fræði við Háskóla Íslands.

Um auknar kröfur um sögu­lega ábyrgð kon­ungs­veld­is­ins telur Ragn­heiður að alþjóð­leg þróun spili þar þátt. „Svo er auð­vitað til­efni til þess að end­ur­meta hlut­ina þegar nýr maður tekur við. Elísabet var svo lengi drottn­ing. Það var mikil sam­fella og stöð­ug­leiki í kringum hana og ein­hver sátt um að rugga bátnum ekki of mikið á meðan að hún var á lífi.“

Krúnan hefur áhrif á söguvitund

Leiknu sjón­varps­þætt­irnir Crown á streym­isveit­unni Netflix fjalla um valda­tíð Elísa­betar og eru vin­sælir meðal fólks um allan heim. Þar birt­ist Karl áhorf­endum sem kaldur og óum­hyggju­samur eig­in­maður og faðir. 

Aðspurð hvort þætt­irnir séu sagn­fræði­leg heim­ild segir Ragn­heiður að svo sé ekki en mikil rann­sókn­ar­vinna liggi að baki þátt­anna. „Stutta svarið er að við eigum ekki að líta á þetta sem áreið­an­lega heim­ild. Hins vegar þá hafa þætt­irnir áhrif á sögu­vit­und okkar og hug­myndir um hvernig kon­ungs­emb­ættið þró­ast.“ Áhorf­endur séu með­vit­aðir um að búið sé að skrifa hand­rit af sam­tölum sem aldrei áttu sér stað. 

Í síð­ustu seríu þátt­anna var mikið fjallað um ást­ar­sam­band Karls og Díönu prinsessu. Ragn­heiður segir að sú mynd sem dregin var upp af Karli í þátt­unum geti haft áhrif á opin­bera ímynd hans, sér­stak­lega vegna þess að sam­skipti þeirra í þátt­unum ríma við almenna umfjöllun um sam­bandið.  

Húmoristi eða húmorslaus?

Karl nýtur þó enn ein­hverra vin­sælda á sam­fé­lags­miðlum. Sumir not­endur segja hann afar við­kunn­an­legan húmorista. Á síð­asta ári þaut mynd­band af Karli skrifa undir sitt fyrsta plagg sem kon­ungur Bret­lands eins og eldur um sinu á inter­net­inu. Sam­fé­lags­miðla­not­endur sögðu hann dóna­legan við starfs­menn hall­ar­innar. Ein­hverjir bentu á í athuga­semdum að ef betur væri að gáð virt­ist Karl brosa til aðstoð­ar­manns­ins áður en hann skipar honum fyrir. 

Mögulega er Karl með ein­stak­lega þurran og hefð­bund­inn breskan húmor. Ef svo er þarf mark­aðsteymi kon­ungs­ins lík­lega að vinna hörðum höndum við að hjálpa honum að aðlag­ast yngri, fjöl­breytt­ari og kröfu­harð­ari mark­hópum. Meðal þeirra er rými fyrir mis­tök og rang­túlk­anir tak­markað. Það gæti reynst manni á átt­ræð­is­aldri snúið en yngri kyn­slóðir eru kröfu­harð­ari en þær eldri á að fá að sjá hvað ger­ist bak við tjöldin og þurfa að líða eins og þær hafi per­sónu­legri tengsl við þekkt fólk í gegnum inter­netið.

Yfirsýn og reynsla mikilvæg forsætisráðherrum

Fyrir utan það að vera orð­inn gam­all ólst Karl upp í ákveðnu teng­ing­ar­leysi við sam­fé­lag sitt. Nám í fín­ustu skólum lands­ins, þjálfun í hernum, lífið í höll­inni og efna­hags-, menn­ingar- og félags­legt auð­magn gerði veru­leika Karls allt annan en hins almenna Breta. Sem kon­ungur er Karl þjóð­höfð­ingi Bret­lands en fyrir utan það er hans hlut­verk innan stjórn­mála afar tak­markað. Karl fundar með for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Rishi Sunak, einu sinni í viku um mál­efni líð­andi stundar, mætir á við­burði og tekur á móti öðrum þjóð­höfð­ingjum.

Kátt í höll­inniKarl hinn þriðji, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Rishi Sunak og Stella McCartney.

Aðspurð út í viku­legu fund­ina nefnir Ragn­heiður umtöluð áhrif Elísa­betar: „Það sem fer fram á þessum fundum drottn­ingar, núna kon­ungs, og for­sæt­is­ráð­herra er trún­að­ar­mál. Það er samt talað um að Elísabet hafi haft ein­hverja yfir­sýn og sam­fellu. Sú yfir­sýn og reynsla sem hún öðl­að­ist á þess­ari löngu starfsævi hafi verið for­sæt­is­ráð­herr­unum mik­il­væg og þar með hafi hún í raun gegnt mik­il­vægu hlut­verki í stjórn­málum, ósýni­legu eig­in­lega.“

Ákveðnar þver­stæður eru í nútíma­legu og frjáls­lynd­ara við­horfi fjöl­skyld­unnar. Til að mynda verður Karl ósjálfrátt æðsti maður kirkj­unnar í Englandi frá og með form­legri krýn­ingu, en rúm­lega helm­ingur Breta segj­ast ekki vera trú­aðir.

Tæpir átta mán­uðir eru síðan Karl tók við hlut­verk­inu. Á þeim stutta tíma sagði fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Liz Truss, upp störfum og Karl sam­þykkti Rishi Sunak í emb­ætti. Auk þess er svokölluð fasta­kostn­að­ar­krísa í Bret­landi vegna mik­illar verð­bólgu og aukin skautun er á milli stjórn­mála­flokk­anna tveggja sem stærstir eru á þingi. 

Enginn erfðaskattur

Krýn­ing­ar­at­höfnin er sögð eiga að vera í takt við nútím­ann. Færri gestum er boðið en þegar Elísabet var krýnd og eru hátíð­ar­höldin tak­mörkuð að hluta til vegna erf­iðrar efna­hags­stöðu margra Breta. Netvirði Karls þriðja stendur í rúm­lega 120 millj­örðum íslenskra króna en hann greiddi engan erfða­fjár­skatt af því fé sem hann erfði frá móður sinni. Karl byrj­aði þó að greiða tekju­skatt af sjálfs­dáðum 21 árs. 

Kostn­aður við athöfn­ina sjálfa mun hlaupa á nokkrum tugum millj­óna punda og greið­ist að fullu af skatt­greið­endum. Samkvæmt nýrri könnun er meira en helm­ingur Breta mót­fall­inn því að greiða fyrir krýn­ing­una. 

Hluti af fjár­munum Karls fara í góð­gerð­ar­mál en fjöl­skyldan er þekkt fyrir að styrkja ýmis mál­efni. Gallinn við þessar fjár­veit­ingar er að þær fara í þau mál­efni sem eru Karli kær og mið­ast því við hans per­sónu­lega áhuga­svið. Þökk sé lof fyrir lofts­lags­að­gerða­sinna hefur Karl mik­inn áhuga á umhverf­is­málum og því að tryggja að kom­andi kyn­slóðir búi við mann­sæm­andi lífs­skil­yrði. Fyrst þegar Karl lagði áherslu á umhverf­is­mál þótti það póli­tísk afstaða af hans hálfu. Vænta má þess að hann geti haldið vinnu sinni á þessu sviði áfram sem kon­ungur vegna þess hve víð­tækt vanda­málið er orðið.

Dægurmenning skiptir konungsfjölskylduna máli

Storma­samt sam­band Harry Breta­prins við föður sinn og aðra fjöl­skyldu­með­limi lit­aði opin­bera ímynd fjöl­skyld­unnar síð­ustu ár. Hjóna­band hans við banda­rísku leikkon­una Meghan Markle er lík­lega eitt umdeildasta ást­ar­sam­band tutt­ug­ustu og fyrstu ald­ar­innar. Í Netflix þátta­röð sinni, Harry & Meghan, sagði prins­inn að fjöl­skylda hans hefði misst af gríð­ar­lega góðu mark­aðstæki­færi með því að hrekja hann og Meghan á brott. Harry sagði að hægt hefði verið að gera nýja hluti og ná til stærri hóps af fólki með Meghan í fjöl­skyld­unni.

Bróðir Karls, Andrés Breta­prins, var sak­aður um kyn­ferð­is­of­beldi gegn ósjálf­ráða ein­stak­ling árið 2014 en kon­ungs­fjöl­skyldan neit­aði að tjá sig um málið.

Bandarískir skemmtikraftar fyrir breskan konung

Per­sónu­legar deilur fjöl­skyld­unnar og ósæmi­leg hegðun bak við luktar dyr eru farin að hafa áhrif á afstöðu fólks til kon­ungs­veld­is­ins. Haldnir verða tón­leikar til heið­urs konungnum sunnu­dag­inn 7. maí í Lund­úna­borg. Fréttir herma nú að skær­ustu popp­stjörnur Bret­lands hafi neitað að koma þar fram til að vernda orð­spor sitt. Breska hljóm­sveitin Take That stað­festi komu sína fyrr á árinu. Ekki svör­uðu fleiri Bretar kall­inu og leit­aði Karl þá yfir hafið til vina sinna í Norður-Ameríku. Hin banda­ríska Katy Perry kemur fram á tón­leik­unum ásamt Lionel Richie. Ítalski sópran­söngv­ar­inn Andrea Bocelli mun einnig prýða sviðið í London.

Ragn­heiður telur breyt­ingar á þremur sviðum orsaka það hvers vegna popp­stjörnur hika við að koma fram á krýn­ing­ar­at­höfn­inni. „Í fyrsta lagi er ger­breytt umhverfi popp­menn­ing­ar­innar í kjöl­far #metoo bylgj­unnar og umræðu um kyn­bundið ofbeldi og jafn­rétti almennt. Í öðru lagi hrær­ingar innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar og í þriðja lagi breyt­ingar á kon­ungs­dæm­inu.“

Per­sónu­töfrar Elísa­betar eru aðrir en Karls sem hefur ávallt lifað í skugga vin­sælda móður sinnar. Nú reynir á hann að vinna breska fólkið yfir á sitt band og sann­færa yngri kyn­slóðir um að hann skilji og virði þarfir þeirra í bresku nútíma­sam­fé­lagi. Fjöl­skyldupóli­tíkin dregur athygl­ina frá því að kon­ungs­veldið á lík­lega ekki heima í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi 21. ald­ar­innar. Ragn­heiður segir að þegar tekin er hlið­sjón af öllum þeim breyt­ingum sem hafa orðið á bresku sam­fé­lagi frá því að Elísabet varð drottn­ing rétt eftir seinni heims­styrj­öld er nú tæki­færi og til­efni til að spyrja áleit­inna spurn­inga um fram­tíð kon­ungs­dæm­is­ins.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þórunn Blöndal skrifaði
    Hefði þurft að lesa greinina yfir
    0
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Það er mjög sérstakt að enn skuli vera til stofnun sem kemst upp með að baða sig opinberlega í illa fengnum auði frá nýlendukúgun, þrælasölu og þrælahaldi. Það felast ekki minni ólíkindi í því að helstu hátíðir þjóðar, sem telur sig vera vöggu lýðræðis í heiminum, skuli að mikli leyti snúast um ólýðræðislegustu stjórnarhætti sem fyrir finnast. Um þetta fjallar þessi grein ekki frekar en flestar greinar um breska konungsdæmið.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár