Yfir 300 ungmenni nýtt sér Sjúkt spjall - „Þá vildi hann alltaf meira, líka ef ég var veik og vildi slaka á“

Börn og ung­menni hafa alls átt yfir 300 sam­töl við ráð­gjafa hjá Stíga­mótum eftir að nafn­lausa net­spjallið Sjúkt spjall var opnað fyrir rúmu ári. Talskona Stíga­móta segir spjallið mik­il­vægt því ung­lingar sem verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi veigri sér við að leita til for­eldra eða starfs­fólks skóla. Sjúkt spjall er nú opið þrjú kvöld í viku, í alls sex klukku­tíma, og biðla Stígamót til almenn­ings þannig að hægt sé að auka þessa þjón­ustu við börn og ung­menni. Stór­átaks sé þörf til að fræða ung­linga um sam­þykki og mörk, og vinna gegn áhrifum klám­iðn­að­ar­ins.

Yfir 300 ungmenni nýtt sér Sjúkt spjall - „Þá vildi hann alltaf meira, líka ef ég var veik og vildi slaka á“

„Hvatinn til að stofna þetta spjall er að krakkar og ung­menni sem verða fyrir ofbeld­is­broti eða slíku eru ekki að leita til for­eldra eða til skól­ans. Þau eru hrædd við afleið­ing­arnar og þurfa öruggt rými til að spegla reynslu sína,“ segir Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, um nafn­lausa net­spjallið Sjúkt spjall. Börn og ung­menni hafa alls átt yfir 300 sam­töl við ráð­gjafa hjá Stíga­mótum síðan spjallið var opnað fyrir rúmu ári. 

Sjúkt spjall er fyrir ung­menni til að ræða áhyggjur af sam­bönd­unum sínum, sam­skiptum eða ofbeldi. Spjallið er á vegum Stíga­móta, fyrir ung­menni yngri en 20 ára af öllum kynjum.  Það er opið mánu­daga til mið­viku­daga á milli klukkan 20:00 og 22:00.

Vilja vita hvað má og hvað má ekki

Hið dæmi­gerða ung­menni sem hefur nýtt sér Sjúkt spjall er stelpa á ung­lings­aldri í ofbeld­is­sam­bandi með strák. 

„Hann suð­aði þar til ég sagði já til að klára það bara af“

„Hann suð­aði þar til ég sagði já til að klára það bara af. Þá vildi hann alltaf meira, líka ef ég var veik og vildi slaka á,“ sagði einn not­andi spjalls­ins til að mynda. Önnur frá­sögn er ekki síður óhuggu­leg: „Ég hélt áfram að segja nei en hann hætti ekki, síðan byrj­aði hann að taka um háls­inn minn og kreista mjög fast þar til ég gat eig­in­lega ekki andað. Síðan loks­ins þegar ég var byrjuð að gráta og öskra þá hætti hann.“

Drífa Snædaltals­kona Stíga­móta

Drífa segir Sjúkt spjall skipta máli því þarna geti börn og ung­menni leitað án þess að þurfa að gefa upp nafn. „Við getum ekki til­kynnt til barna­verndar neitt sem kemur fram í spjall­inu. Mörgum finnst skjól í því þar sem þau vilja ákveða sjálf hvenær þau tala við fag­fólk eða til­kynna. Við höfum rekið okkur á að þau sem hafa sam­band eru mikið að velta fyrir sér sam­þykki, mörkum og hvað sé í lagi í sam­böndum og í kyn­lífi. Hvað má gera og hvað má ekki gera,“ segir hún. 

Fyrirmyndin frá Svíþjóð og Noregi

Almennt hefur Stígamót veitt full­orðnum brota­þolum þjón­ustu en sam­kvæmt tölum frá Stíga­mótum urðu 70 pró­sent þeirra fyrir kyn­ferð­is­of­beldi fyrir 18 ára aldur og mörg segja aldrei frá. 

Fræðslu- og for­varna­verk­efn­inu Sjúk ást var ýtt úr vör af Stíga­mótum snemma árs 2018 en mark­mið þess er að fræða ungt fólk um mörk og sam­þykki með það að leið­ar­ljósi að útrýma kyn­bundnu ofbeldi í íslensku sam­fé­lagi. Frá árinu 2019 hafa Stígamót átt í sam­starfi við Samfés, lands­sam­tök félags­mið­stöðva og ung­menna­húsa á Íslandi, vegna fræðsl­unnar með góðum árangri.

Verk­efnið Sjúk ást sýndi að mikil þörf var fyrir þess konar fræðslu, og í mars 2022 varð fram­halds­verk­efnið Sjúkt spjall að veru­leika. 

Drífa segir að fyr­ir­myndin að þessu nafn­lausa spjalli fyrir börn og ung­menni sé frá Svíþjóð og Noregi, og Stígamót séu í sam­starfi við þau sem halda úti slíku spjalli þar. „Við erum að reyna að spegla okkur í þeirra reynslu því það er ekk­ert sam­bæri­legt í boði hér á landi, þar sem við erum með þaul­reyndra ráð­gjafa á hinni lín­unni sem hafa fengið þjálfun hjá Stíga­mótum,“ segir hún.

„Hann sagði að þannig væri það í sam­böndum, er það rétt?“

Ýmsar ástæður séu fyrir því að ungir brota­þolar segi ekki frá. Til að mynda eiga þau oft erfitt með að skil­greina eigin reynslu, eins og birt­ist í spurn­ingu einnar þeirra sem tal­aði við ráð­gjafa í gegn um Sjúkt spjall: „Hann var 7 árum eldri. Stundum reið hann mér þótt ég segði nei. Hann sagði að þannig væri það í sam­böndum, er það rétt?“

Önnur lýsti þess­ari atburða­rás: „Hann spurði mig ekki, bara gerði það og ég sagði ekk­ert allan tím­ann og ég veit ekki hvort þetta hafi verið nauðgun eða ekki.“

Sum ung­mennin ótt­ast síðan að vera stimpluð af félögum og nærum­hverf­inu ef þau segja frá, í sam­bland við sjálfs­á­sak­anir, eins og stúlkan sem sagði í Sjúku spjalli: „Ég sagði vin­konu minni og hún sagði að ég væri bara algjör hóra og hefði átt að sjá þetta koma.“

„Ég er hætt að finna fyrir sorg þegar hann er vondur við mig, er eig­in­lega bara dofin“

Þá fari oft fljótt að mynd­ast sama mynstur í sam­böndum ung­menna sem eru í ofbeld­is­sam­bandi og hjá full­orðnu fólki sem býr við heim­il­is­of­beldi. „Ég er hætt að finna fyrir sorg þegar hann er vondur við mig, er eig­in­lega bara dofin,“ sagði ein sem leit­aði sér aðstoðar í gegn um Sjúkt spjall. Því sé mik­il­vægt að veita þessum ald­urs­hópi þjón­ustu af þessu tagi.

Kallar eftir stórátaki til að fræða unglinga

Drífa segir að Stígamót sé að miklu leyti rekið vegna fjár­stuðn­ings frá almenn­ingi, og nú eru mán­að­ar­legir styrkt­ar­að­ilar sam­tak­anna um 6.700 tals­ins.

For­sæt­is­ráðu­neytið og Stígamót gerðu með sér sam­starfs­samn­ing á síð­asta ári vegna verk­efn­is­ins Sjúkt spjall upp á tólf millj­ónir króna. Innan Stíga­móta sé vilji til að bjóða upp á net­spjallið fleiri daga vik­unnar en mánu­daga, þriðju­daga og mið­viku­daga, og jafn­vel lengur en í tvær klukku­stundir hvern dag.

„Við höfum séð að þörfin er til staðar og viljum efla þetta enn frekar. Það er ljóst að það þarf stór­á­tak til að fræða ung­linga um sam­þykki og mörk í sam­skiptum og vinna gegn áhrifum klám­iðn­að­ar­ins,“ segir hún. 

Því hvetja Stígamót almenn­ing til að styrkja Stígamót um and­virði eins spjalls við ung­ling sem þarf aðstoð „og aðstoða okkur þannig við að grípa ung­ling­ana okkar,“ segir á heima­síðu þeirra en þar er miðað við að eitt spjall kosti 2.500 krónur, en hægt er að styrkja um aðrar upp­hæðir. 

Þar er einnig bent á að Stígamót hafa gert aðgengi­legt próf fyrir for­eldra þar sem þeir geta kannað þekk­ingu sína á ofbeld­is­sam­böndum, sem geri þau þá með­vit­aðri um hvort börnin þeirra séu í sjúku eða heil­brigðu sam­bandi. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár