Pétur seldi fyrir milljarð í Síldarvinnslunni

Fram­kvæmda­stjóri útgerð­ar­innar Vísis, sem ásamt systk­inum sínum seldi hana til Síld­ar­vinnsl­unnar í fyrra, hefur minnkað hlut sinn í félag­inu um næstum þriðj­ung. Hann fékk tæp­lega 1,6 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni við söl­una en á nú 1,13 pró­sent.

Pétur seldi fyrir milljarð í Síldarvinnslunni
Fram­kvæmda­stjóri Pétur Haf­steinn Pálsson eign­að­ist hlut í Síld­ar­vinnsl­unni í byrjun des­em­ber í fyrra.

Pétur Haf­steinn Pálsson, fram­kvæmda­stjóri Vísis í Grinda­vík, hefur selt hlut í Síld­ar­vinnsl­unni fyrir um millj­arð króna. Pétur eign­að­ist hlut í Síld­ar­vinnsl­unni í byrjun des­em­ber í fyrra eftir að félagið keypti fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki hans, Vísi í Grinda­vík. 

Miðað við gengi í Síld­ar­vinnsl­unni við lokun mark­aða í gær var hlutur Péturs tæp­lega 3,4 millj­arða króna virði áður en að hann seldi tæp­lega þriðj­ung hans. Eft­ir­stand­andi hlutur Péturs er um 2,4 millj­arða króna virði. Þetta má lesa úr breyt­ingum sem orðið hafa á hlut­haf­alista Síld­ar­vinnsl­unnar. 

Hann og systk­ini hans fimm: Páll, Svanhvít, Margrét, Kristín og Sólný Pálsbörn, fengu sam­tals um átta pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni við söl­una á Vísi, sem er alls um 17 millj­arða króna virði miðað við gengi bréfa í félag­inu í lok dags í gær. Í til­felli Páls skipt­ist sá hlutur til helm­inga milli hans og eig­in­konu hans, Guðmundu Krist­jáns­dóttur. Pétur fékk mest í sinn hlut, um 1,6 pró­sent hlut, en hin systk­inin fengu tæp­lega 1,3 pró­sent hlut hvert. Samkvæmt hlut­haf­alista Síld­ar­vinnsl­unnar á Pétur nú 1,13 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni, eða minna en systk­ini hans fimm. 

Hlut­haf­alistiYfirlit yfir 20 stærstu hlut­hafa Síld­ar­vinnsl­unnar um síð­ustu mán­að­ar­mót.

Til við­bótar við hlutafé sem systk­inin eign­uð­ust tók Síld­ar­vinnslan einnig yfir skuldir Vísis upp á ell­efu millj­arða króna og greiddi sex millj­arða króna í reiðufé til að eign­ast útgerð­ina. Reiðuféð var greitt til að gera upp skatt­greiðslur vegna kaupanna. 

Kvótinn verðmætasta eignin sem var seld

Alls heldur Vísir á 3,54 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta sam­kvæmt síð­ustu birtu tölum Fiski­stofu um sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi. 

Í árs­reikn­ingi Síld­ar­vinnsl­unnar vegna árs­ins 2022 kom fram að lang­verð­mætasta eignin sem hún keypti með Vísi voru fisk­veiði­heim­ildir. Mat þeirra á gang­virði þann 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn var 29,6 millj­arðar króna, miðað við með­al­gengi Banda­ríkja­dals á síð­asta ári. Það er meg­in­þorri þess verð­miða sem Síld­ar­vinnslan greiddi fyrir Vísi í fyrra.

Heild­ar­virði þeirra fisk­veiði­heim­ilda sem Síld­ar­vinnslan heldur á er 67 millj­arðar króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi sam­stæð­unnar. 

Hagnaður Síld­ar­vinnsl­unnar var 10,2 millj­arðar króna á árinu 2022. Rekstr­ar­tekjur útgerð­ar­ris­ans voru 42 millj­arðar króna og eignir hans í árs­lok voru metnar á 150,5 millj­arða króna. Eigið fé sam­stæð­unnar var 83,1 millj­arður króna en hafði verið 55 millj­arðar króna í lok árs 2021. Þar skipta kaupin á Vísi miklu máli. 

Vegna frammi­stöðu síð­asta árs fá hlut­hafar Síld­ar­vinnsl­unnar um 3,4 millj­arða króna í arð. Ef miðað er við með­al­gengi Banda­ríkja­dals, sem er upp­gjörs­mynt Síld­ar­vinnsl­unnar, á síð­asta ári þá greiddi sam­stæðan 2,4 millj­arða króna í tekju­skatt á árinu 2022 og 672 millj­ónir króna í veiði­gjald. Þegar veiði­gjalda­greiðslum Vísis er bætt við fer sú upp­hæð upp í 959 millj­ónir króna. Samtals hefur Síld­ar­vinnslan greitt 1,8 millj­arð króna í veiði­gjöld á síð­ustu þremur árum, eða rétt rúm­lega helm­ing þeirrar upp­hæðar sem útgerðin greiðir eig­endum sínum í arð vegna frammi­stöðu síð­asta árs.

Blokk með næstum fjórðung alls kvóta

Eftir að kaupin á Síld­ar­vinnsl­unni gengu í gegn varð til stærsta útgerð á Íslandi, ef miðað er við úthlut­aðan kvóta í afla­marks­kerf­inu. Síld­ar­vinnslan átti fyrir tvö dótt­ur­fé­lög í útgerð, Berg-Hug­in og Berg ehf. Sam­an­lögð afla­hlut­deild þess­ara fjög­urra útgerða er 12,11 pró­sent og rétt yfir lög­bundnu tólf pró­sent hámarki sem tengdir aðilar mega eiga. 

Stærstu eig­endur Síld­­­­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji, sem á 30,1 pró­sent hlut, og félagið Kjálka­­­­­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík og á 16,1 pró­sent hlut. Þar er meðal ann­­­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­­­son, sem var um tíma annar for­­­­­stjóri Sam­herja, og fólk sem teng­ist honum fjöl­­­­skyld­u­­­­bönd­um, meðal ann­­­ars syst­k­ini hans. Auk þess á Kald­bak­­­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­­­ar­halds­­­­­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á hlut í Síld­­­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­­­ur. Samtals eiga þessir aðilar 49,7 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni eftir hluta­fjár­aukn­ing­una sem fram­kvæmd var í fyr­ir­tæk­inu til að greiða Vísis-systkin­unum.

For­stjóri Samherja, sem á dótt­ur­fyr­ir­tækin Samherja Ísland og Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga, er Þor­steinn Már Bald­vins­son, stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar. 

Þegar talin er saman afla­hlut­deild Sam­herja Ísland, Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga, Síld­ar­vinnsl­unn­ar, Vís­is, Gjög­urs og Bergs-Hug­ins og Bergs (sem eru báðar dótt­ur­fé­lög Síld­ar­vinnsl­unn­ar) þá heldur sú blokk á 23,39 pró­sent úthlut­aðra afla­heim­ilda. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Að kunna að fara kringum kerfið það er kúnstin.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár